Lögmannablaðið - 01.12.2014, Síða 7
LÖGMANNABLAÐIÐ TBL 04/14 7
UMFJÖLLUN
AÐ HVERJU
ÞARF ÉG AÐ HUGA?
Almenni lífeyrissjóðurinn veitir
faglega og persónulega ráðgjöf
og fer vel yfir þín mál.
Hafðu samband við okkur og við
finnum hentuga leið fyrir þig og þína
• lífeyrissjóði og eftirlaunum
• vörn gegn tekjumissi
vegna veikinda eða slysa
• skipulegum sparnaði
• uppbyggingu eigna
Borgartúni 25 • sími 510 2500 • www.almenni.is
A
N
TO
N
&
B
ER
G
U
R
hún. Ekki þótt fært að lögleiða slíka
skyldutryggingu í fjöleignarhúsalögunum
en meirihluti eigenda getur hins vegar
tekið ákvörðun þar um. Þannig getur
húsfundur samþykkt með einföldum
meirihluta miðað við hlutfallstölur
að kaupa slíka vátryggingu fyrir alla
eignina, þ.e. fyrir alla séreignarhluta
og sameign.
Lögmenn ekki meðvitaðir um
réttaraðstoðartryggingu
Flest tryggingafélögin eru með
sömu eða sambærilega skilmála
varðandi málskostnaðar og réttar
aðstoðar tryggingarnar. TM er þó eitt
tryggingafélaga með það skilyrði að
vátryggðum sé skylt að láta reyna á
opinbera réttaraðstoð, þ.e. athuga
með gjafsókn, nema augljóst sé að
hann uppfylli ekki skilyrði þess.
Gjafsóknarnefnd fer hins vegar fram á að
fá upplýsingar um hvort umsækjendur
um gjafsókn njóti verndar réttaraðstoðar
eða málskostnaðartryggingar og getur
synjað eða takmarkað gjafsókn ef svo
háttar til. Að sögn Ásu Ólafsdóttur,
formanns gjafsóknarnefndar hefur reynt
á þetta í umsögnum gjafsóknarnefndar:
„Samkvæmt 9. gr. reglugerðar nr. 45/2008,
með síðari breytingum, má takmarka
gjafsókn þegar umsækjandi nýtur
vátryggingaverndar hjá tryggingafélagi.
Gjafsóknarnefnd hefur stuðst við
ákvæði reglugerðarinnar í umsögnum
sínum þar sem mælt hefur verið með
takmörkun gjafsóknar og nærtæk
dæmi um þetta eru gengislánamálin,“
sagði Ása og benti jafnframt á að á
nýlegu málþingi um réttaraðstoð á
Norðurlöndum hafi komið fram að
meginreglan sé sú í nágrannalöndunum
að gjafsókn sé einungis veitt þegar
viðkomandi nýtur ekki annarra úrræða,
s.s. málskostnaðartrygginga. Að sögn
Elvars Guðmundssonar er það ekki
svo að TM bjóði upp á lakari tryggingu
vegna þessa gjafsóknarákvæðis því ef
gjafsóknarnefnd neitar, virki tryggingin:
„Það er stutt síðan gjafsóknarnefnd setti
þetta í sínar reglur og því má segja að
ákvæðið í skilmálum tryggingarinnar falli
um sjálft sig,“ sagði hann. Ása Ólafsdóttir
benti jafnframt á að dæmi væru um að
lögmenn væru ekki nægilega vel vakandi
yfir að kanna hvort skjólstæðingar þeirra
væru með málskostnaðartryggingu þegar
þeir sæktu um gjafsókn.
VÍS er eitt tryggingafélaganna með
í sínum skilmálum að ef fimm eða
fleiri vátryggðir eiga sömu lögvörðu
hagsmuna að gæta, og ef sami lögmaður