Són - 01.01.2015, Page 173
ljóð 171
Uppruni síðari poppsonnettunnar er í rapptexta Erps Eyvindarsonar VILTU
DICK? í samnefndu lagi Erps og hljómsveitarinnar Sykurs. Áhugasamir
geta slegið laginu upp á tónlistarveitunni Youtube, en það er nokkuð
fjörlegt. Í rappinu rekur ljóðmælandi, líkt og algengt er í rapptextum,
afrek sín á sviði drykkju, rapptónlistar og kvennafars af miklu hispurs-
leysi, en viðrar um leið áberandi neikvæð viðhorf til hugmyndarinnar
um fasta atvinnu. Í sonnettunni er efni rapptextans dregið saman með
þeim formerkjum sem bragarhátturinn gerir kröfu um. Lokalínur sonn-
ettunnar eru þannig, svo dæmi sé tekið, byggðar á viðlagi rapptextans,
sem hljómar svo í upprunalegri gerð: „Ég vil ekki vinna, ég vil bara drekka
drykk, og slæda upp á „frænku“ og segja bitch, viltu dick?“.
Er finn jeg hvernig laugast sjerhver synd
úr sálu mjer, hver angurtregi og hryggð,
í Kúburommsins köldu svalalind —
jeg kveð mitt strit en sukki heiti tryggð.
Í fjöldann stekk jeg fimlega sem hind
þótt fjör mitt mæti kenndra guma styggð;
þeir virðast líflaus hræ hjá minni mynd
og mansöng þeim er svönnum vekur frygð.
Við sjerhvert fljóð jeg teitur trúss mitt bind
á trylltri för um Reykjavíkurbyggð
og ólmur klíf hvern ástarsælutind,
það er í senn minn löstur og mín dyggð:
Jeg hneigist mjög til víns en vinnu ei
og völsa mínum ota að hverri mey!