Kópavogsblaðið - 01.06.2007, Blaðsíða 12

Kópavogsblaðið - 01.06.2007, Blaðsíða 12
KÓPAVOGSBLAÐINU lék for- vitni á að vita hvernig formenn knattspyrnudeilda Breiðabliks væru stemmdir fyrir leikinn, og leitaði því eftir svörum nokk- urra spurninga hjá þeim. Spurningar eru: 1) Hversu mikilvægt er það fyrir Kópavogsbæ að eiga tvö lið í efstu deild karla í knattspyrnu, Lands- bankadeildinni, þ.e. Breiðablik og HK? 2) Hefur gengi þíns félags verið samkvæmt þeim væntingum sem þú gerðir persónulega í vor áður en mótið hófst? Ef svo er ekki, hvað telurðu að valdi? 3) Eru innibyrðis leikir Breiða- bliks og HK í sumar að þínu mati mikilvægstu leikir félagsins í deild- inni? Ef svo er, hvaða leikir koma þar í kjölfarið? Einar Kristján Jónsson, formaður knattspyrnudeildar Breiðabliks: 1. “Það er erfitt að svara því hversu mikilvægt það er, en mik- ilvægt er það. Í ár eru tíu lið í deildinni, næsta ár verða þau orð- in 12. Að Kópavogur eigi tvö af þessum tíu er vitaskuld merki um hversu burðugt og blómstrandi bæjar--félagið er. Gott íþróttalíf er eitt helsta merkið um gott og heil- næmt samfélag sem sýnir hvað í íbúunum býr. Að ná árangri í íþróttum er því mikilvægt fyrir Kópavog og ekki skemmir fyrir að um er að ræða knattspyrnu sem er ein allra vinsælasta íþrótt allra tíma. Íbúafjöldi Kópavogs er samt undir tíu prósentum af íbúafjölda landsins og því hlýtur það að telj- ast gott að vera með einn fimmta hluta liðanna í deildinni. Kópa- vogsbúar mega vera stoltir yfir því. Það sýnir hversu vel hefur verið hlúð að knattspyrnu í bæjar- félaginu. Félögin hafa sjálf hugað vel að starfi sínu og bæjaryfirvöld og einkaaðilar hafa einnig lagt hönd á plóg. Í knattspyrnu reyna menn fyrst og fremst að uppskera titla og að vera í fremstu röð. Tvö lið í efstu deild er góð uppskera, næsta skref er að vinna titla í efstu deild karla fyrir Kópavogs- búa. Á það setur Breiðablik stefn- una, titla í efstu deild karla.” 2. “Ég gerði mér vitaskuld vonir um fleiri sigra í þeim umferðum sem búnar eru. Hins vegar hafa þetta verið erfiðari mótherjar en þeir sem eftir eru að margra mati. Árangur Breiðabliks í Lengju- bikarnum var mjög góður fram að þessum eina tapleik sem olli því að Breiðablik datt úr keppni. Liðið tapaði fyrsta leiknum þrátt fyrir að hafa verið betri aðilinn og síðan höfum við rakað inn jafn- teflum. Liðið hefur líka verið að spila vel og það gerir mann sátt- ari við árangurinn. Við höfum alla burði til að landa mörgum sigr- um í sumar enda hefur liðið sýnt að það getur sigrað öll lið í deild- inni. Breiðablik skoraði grimmt í Lengjubikarnum en mörkin hafa látið kræla á sér eftir að Íslands- mótið fór af stað. En það hefur verið umrætt hve vel liðið hefur spilað. Það sem hefur því einkum vantað upp á er að koma boltan- um inn í netið, það hefur vantað herslumuninn. En í ljósi þess hve vel liðið hefur verið að spila og hefur aðeins tapað einum leik er ég bjartsýnn og tel að engar stór- ar skýringar sé að finna á því að ekki hefur gengið betur.” 3. “Ég get ekki sagt að þeir séu mikilvægustu leikir félagsins í deildinni. Allir leikirnir eru mikil- vægir. Fyrir mótið settum við okk- ur há markmið, við ætlum okkur að vera í toppbaráttunni, og þá er vitaskuld lagt upp með að sigra sem flesta leiki og tapa sem fæst- um. Þá er mikilvægt að ná stigum af sterkari liðunum en ég álít alla leiki mikilvæga og þrjú mikilvæg stig eru í boði í hverjum leik. Hins vegar er það spurning um stolt að vinna nágrannana í HK. Vitaskuld hugsa menn öðruvísi þegar um er að ræða nágrannaslagi. Þá er sigurviljinn oft sterkari og tapið sárara.” Halldór Valdimarsson, formaður knattspyrnudeildar HK: 1. “Gott gengi íbúa hvers bæjar- félags hlýtur að vera samfélaginu mikilvægt. Það á við í íþróttum jafnt sem öðrum þáttum mann- lífsins. Íþróttafélög í Kópavogi eiga keppnisfólk í fremstu röð í mörgum íþróttagreinum. HK og Breiðablik eiga afreksfólk í hand- knattleik, blaki og frjálsum íþrótt- um, jafnframt knattspyrnunni og önnur íþróttafélög láta verulega að sér kveða bæði á landsvísu og jafnvel alþjóðavettvangi. Þessi árangur staðfestir að fjárfesting í uppbyggingu íþróttamála er arð- vænleg og hlýtur að vera stjórn- völdum hvatning. Jafnframt vekur þetta athygli á Kópavogi sem bæj- arfélagi þar sem árangri er náð og það er vel. Við erum stolt af bænum okkar, á hverju sem geng- ur í íþróttunum, en það sakar aldrei að fá aukreitis farveg fyrir stoltið.” 2. “Gengi félagsins í Landsbanka- deildinni hefur fyllilega náð vænt- ingum mínum til þessa. Hópurinn hefur skilað hverjum leik þannig að við erum stolt af. Sigrarnir hafa verið verðskuldaðir og í töpuðum leikjum hefur verið barist fram á síðustu mínútu. Um meira getur enginn beðið.” 2. “Innbyrðis leikir HK og Breiðabliks eru alltaf mikilvægir. Mér er hins vegar ómögulegt að raða deildarleikjum í einhverja mikilvægisröð. Mikilvægasti leik- ur deildarinnar hlýtur á hverjum tíma að vera næsti leikur, því það má aldrei neitt skyggja á yfirstand- andi verkefni. Ég býst hins vegar við því að margir HK-ingar séu mér sammála um að viðureignir þessara tveggja félaga séu þær skemmtilegustu. Það er alltaf svo í systkinahópi að innbyrðis keppni er skemmtilegri en að slást við ókunnuga.” FJÖLMENNUM Á VÖLLINN KÓPAVOGSBÚAR Mikilvægustu leikir sumarins? 4 Einar Kristján Jónsson, formaður knattspyrnudeildar Breiðabliks skrifar undir samning vegna Lands- bankadeildarinnar þegar Landsbankadeildin var kynnt í vor. Björgólfur Guðmundsson, stjórnarformaður Landsbankans er viðstaddur. .............. og það gerði líka Halldór Valdimarsson, formaður knattspyrnudeildar HK.

x

Kópavogsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kópavogsblaðið
https://timarit.is/publication/1117

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.