Skírnir - 01.01.1961, Qupperneq 21
Skirnir
Jón Sigurðsson
19
3.
Islenzkur stjórnmálaáhugi og síðan frelsisbaráttetn er í
tengslum við vaknandi lýðræðishreyfingu Evrópu eftir júlí-
byltinguna frönsku 1830. Stofnun ráðgefandi stéttaþinga í
Danmörku markar hér glögg tímamót. Islendingar áttu þar
að hljóta 2 fulltrúa á þingi Eydana. Sú ákvörðun tók að
stjaka við fslendingum, rifja upp þá staðreynd fyrir þeim,
að þess væri ekki ýkja-langt að minnast, að þeir hefðu átt
sitt eigið þing, — Alþingi við Öxará. Frá þeirri stundu hefst
á loft krafan um endurreisn Alþingis, og hún verður kveikj-
an, er tendrar bálið, sem í vændrun var. Sá, sem fyrstur ríð-
ur á vaðið af íslendinga hálfu, er Baldvin Einarsson, þá nýút-
skrifaður lögfræðingur í Höfn, sem í tímariti sínu, Ármanni
á Alþingi, færði sterk rök því til stuðnings, að íslendingar
ættu að hafa sitt eigið þing innanlands á Þingvöllum sem
að fornu. Varð ritgerð hans til þess, að hreyfing komst á
málið bæði á fslandi og Danmörku og tekið alvarlega að
hyggja að, hverja skipan upp skyldi taka, svo að til gagns
mætti verða. Var málið í deiglunni næstu árin, en sú skipan
viðhöfð, sem í upphafi var ákveðin, þó til bráðabirgða, að því
hermt var. Þess var eigi að vænta, að Jón Sigurðsson léti að
sér kveða í þessu máli enn þá fyrir æsku sakir á þeirra tíma
mælikvarða, og þá jafnframt bundinn við nám. Þó mun rit-
stjórn hans við Skírni 1837 hafa sýnt, hver hugur hans var,
þar sem vikið var að þeim þjóðum, er fengið höfðu frjálsari
skipan mála sinna. Mátti það vera íslendingum íhugunar-
efni. En þess var skammt að bíða, að Jón Sigurðsson geystist
fram á völlinn landi sínu til vamar, er hagstætt tækifæri
gafst. Þá sást og glöggt, hvílíkur styrkur var að liðveizlu hans
í þágu hins íslenzka málstaðar.
Fyrstu spor Jóns á vettvangi þjóðmála em tengd baráttu
íslendinga fyrir lausn verzlunarfjötranna, en mönnum varð
æ Ijósara, hverja ógæfu þeir höfðu í för með sér. Þar er þess
fyrst að geta, að Sunnlendingar höfðu sent þingi Eydana
bænarskrár um lagfæringar á verzlunarhögum. Leiddu þær
til deilna í dönskum blöðum um verzlunina á íslandi, þar