Jökull


Jökull - 01.12.1984, Side 157

Jökull - 01.12.1984, Side 157
eldarnir sáust frá Lunansholti á Landi var talið að gosið væri í Vatnajökli og þá helst í honum norðaustanverðum (Morgunblaðið, 288. tbl., Dagur, 49. tbl., Islendingur, 53. tbl.). Jóhannes Áskelsson (1936) taldi að ef gosið hefði á annað borð þá væri það í suðvesturhluta Vatnajökuls en Ólafur Jónsson (1945) telur að gosið hafi í Dyng- juhálsi eða í jökulbrúninni suður af honum og telur raunar að gosið hafi verið undanfari Grím- svatnagossins í mars-apríl 1934. Einhverra hluta vegna, hefur mönnum láðst að setja út á landabréf þau mið, sem fengust á eldinn. Fjögur allnákvæm mið eru nú þekkt: 1. frá Víðikeri yfir Trölladyngju vestanverða. 2. frá Svartárkoti yfir Þríhyrning. 3. frá Skútustöðum skammt vestan Sellanda- fjalls. 4. frá Lunansholti milli Valahnúks og Valafells. Á 1. mynd eru miðin sett út á kort. Þessi fjögur mið benda á stað 11-12 km norður af Svíahnúk, skammt austan við sigketilinn, sem myndaðist í Skeiðarárhlaupinu 1938 (Sigurður Pórarinsson, 1974). Miðið, sem Húsavík gefur upp, var eilítið vestar en hásuður, en það gefur stefnu vestan til í miðja Grímsvatnaöskjuna og því ekki langt frá hinum. Miðin frá Akureyri eru aftur ógleggri. Bjarmi er ýmist sagður vera í suðurátt af Súlum eða í suðausturátt frá Akureyri, og þá yfir Garðs- árdal og fjöllunum sunnan hans. í seinna tilvikinu getur verið að landslagið villi fyrir. T. d. er sagt, að hinn 6. desember hafi sést bjarmi yfir Garðsár- dal sem hækkaði og lækkaði á víxl. Þegar hann var sem hæstur bjarmaði yfir fjöllin sunnan Garðsárdal. Bjarminn gæti hafa sýnst austar en hann í rauninni var þar sem honum brá ekki yfir fjöllin sunnan Garðsárdals nema þegar hann var mestur. En stefnan yfir Staðabyggðarfjöllin sunn- an Garðsárdals er einmitt á Grímsvötn. Hvers vegna gleymdist gosið 1933? Eins og að ofan greinir er hvergi minnst á þetta gos nema í grein Jóhannesar Áskelssonar (1936) um Grímsvatnagosið 1934 og bók Ólafs Jóns- sonar (1945) um Ódáðahraun, utan þess sem í dagblöðum er. Sigurður Þórarinsson (1974) víkur ekki einu orði að því og verður að álíta að hann hafi ekki talið þetta Grímsvatnagos, en í grein Sigurðar Þórarinssonar og Kristjáns Sæmunds- sonar (1979) er aftur á móti getið um gos í Vatnajökli 1933 en staðsetning talin óviss. Eftir viðtöl við Kára og Sverri Tryggvasyni frá Víðikeri og Gunnbjörn Egilsson, þá virðist sem mestur vindur hafi verið úr mönnum eftir ferð Steinþórs Sigurðssonar og sumir jafnvel verið vantrúaðir að þetta væri eldgos, þó þeir hefðu í raun enga aðra haldbæra skýringu. Sverrir og Gunnbjörn eru þó ekki í neinum vafa um að þetta hafi verið eldgos, en ekki eldingaveður. Ég tel ástæðuna fyrir því að gosið var kraftlítið og annað stærra hófst um mánaðarmótin mars-apríl 1934 sem skyggði á. Gosið í hnotskurn Gosið hefur ef til vill hafist 28. eða 29. nóvem- ber en ekki náð að brjótast upp úr jöklinum fyrr en upp úr hádegi hinn 30. nóvember og virðist eldur vaka allan þann dag og fram á kvöld þ. 1. desember. Dregið hefur niður í gosinu að ein- hverju leyti 2. desember en það virðist hafa sótt í sig veðrið 5. og 6. desember, en síðast sást til elds að morgni þess 8. desember. Öskufall hefur verið afar lítið en mistur og öskumóða virðist þó hafa borist norðaustur eftir öræfum, einkum fyrstu dagana. Ekki varð vart við öskulag frá þessu gosi í ískjarnanum af Bárðartungu (Sigurður Stein- 19-21 sept. Skeiðarárjökull hækkar 27 Skeiðará vex 28 Skeiðarárhlaup hefst 29 Eldgos hefst 4—5 okt. Eldgos í algleymingi — Skeiðarárhlaup í hámarki 9 Skeiðará þorrin 23 Síðast vitað um gos 1. TAFLA Grímsvatnagosið 1922 í stórum dráttum. Table 1. The main events of the 1922 Grímsvötn eruption. þórsson 1978) en öskulagið frá Grímsvatnagosinu 1934 sást vel. Aðdragandi að Skeiðárhlaupum er oft á þann veg, að skömmu fyrir hlaup hækkar Skeiðarár- jökull verulega milli Eystrafjalls og Skaftafells- fjalla en lækkar eftir að hlaupin eru um garð gengin. Þorkell Þorkelsson (1923) safnaði skipu- lega upplýsingum um hlaupið og gosið 1922. Gos- inu er lýst í stórum dráttum í 1. Töflu. Skeiðarárj- ökull hækkaði um viku fyrir hlaup og eldgossins varð fyrst vart degi eftir að hlaupið var hafið. Aðdragandinn 1933 var eitthvað flóknari. Ragnar Stefánsson í Skaftafelli getur þess í bréfi dagsettu JÖKULL 34. ÁR 155
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194
Side 195
Side 196

x

Jökull

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.