Jón á Bægisá - 01.12.2001, Page 16

Jón á Bægisá - 01.12.2001, Page 16
Sigurður A. Magnússon réttri frá uppvexti Búddu, en hefur verið snúið upp á kristinn sið. Varla er um það að ræða að farið hafi verið eftir einu einstöku indversku riti, a.m.k. er það þá ekki lengur til, heldur hefur smátt og smátt verið safn- að saman í eina sögu ýmsum þáttum sem í upphafi hafa gengið um Búddu. Þetta verk virðist mega rekja til Maníka í miðlöndum Asíu, og hefur þá sagan orðið til sem guðsorðabók í þeim söfnuði. Síðan hefur henni verið snúið á persneskt mál, og þaðan hefur hún haldið áfram ferð sinni til þjóða í Asíu vestanverðri; en mjög er torvelt að rekja þann fer- il. Einhvern tíma á tímabilinu milli 8ndu og lltu aldar hefur sagan ver- ið lögð út á grísku, en enginn veit með vissu hver það hefur gert, né hvar eða hvenær það hefur orðið. A latínumál var henni þvínæst snarað úr grísku, og svo þaðan aftur á allar helztu menntatungur vesturlanda, þar á meðal á norrænt mál í kringum 1250. - í nokkrum handritum grísku útleggingarinnar er þess getið að sögunni sé snúið á grísku úr georgisku af Evþýmíosi, georgiskum munki á Aþusfjalli (eitthvað um 1000), og slíkt hið sama segir í æfisögu Evþýmíosar. Önnur handrit eigna grísku gerðina Jóhannesi frá Damaskus (í broddi lífsins um 700). Nú eru til á georgisku máli tvær gerðir þessarar sögu, önnur styttri hin helmingi lengri, og mun styttri gerðin vera dregin saman úr hinni lengri. Líklega hefur georgisku sögninni verið snúið úr serknesku, en óvíst er hvar um- breytingin úr sið Maníka í kristinn sið hefur orðið, hvort heldur hjá Georgíumönnum eða hjá einhverjum kristinna manna söfnuði á Serklandi. Margt bendir þó fremur til þess að Georgíumenn hafi hér um vélað, og sé gríska útleggningin runnin frá þeirri georgisku; og heldur jukust líkurnar fyrir því þegar lengri gerðin georgiska, sem varðveitt er í Jórsölum, var birt á árunum 1956-1957. Og sé það haft fyrir satt að kristileg umbreyting Barlaams sögu hafi fyrst orðið hjá Georgíumönnum, en sagan svo búin síðan verið útlögð á grísku, þá mun hér vera hið eina dæmi þess hingað til að georgiskri bók hafi verið snarað á vora tungu, þó ærinn krók hafi hún reyndar lagt á hala sinn.“ 14 á Jföay/iiá - TÍMARIT ÞÝÐENDA NR. 6 / 2001

x

Jón á Bægisá

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jón á Bægisá
https://timarit.is/publication/1166

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.