Jón á Bægisá - 01.12.2005, Blaðsíða 85
ÞýSendur og íslenskir höfundar
Jón Þórðarson (1826—1885, Engillinn bls. 46, að hluta til í samvinnu við
Arnljót Ólafsson, B. Sigvaldason og S. Skúlason). Stúdent í Reykjavík
1849, Cand. theol. 1851. Biskupsskrifari í Laugarnesi 1851-1856. Veitt
Auðkúla 1856. Settur prófastur í Húnavatnsprófastsdæmi 1862, skipaður
1864. Lausn frá prófastsstörfum 1872. Settur prófastur aftur þar 1880,
skipaður 1881. Hann skráði margar sögur sem birtust í Þjóðsögum Jóns
Árnasonar 1-2, Grímu og þjóðsagnabók Nordals.
Jónas Hallgrímsson (1807-1945, Leggur og skel bls. 42). Hann ólst upp í
Eyjafirði, varð stúdent í Bessastaðaskóla 1829, stundaði nám við
Hafnarhákóla frá 1832, fyrst í lögfræði en síðan í náttúrufræði, lauk ekki
prófi. Hann var brautryðjandi rómantísku stefnunnar á Islandi og liggur
eftir hann fjöldi ljóða auk sagna af ýmsu tagi.
Jónína Óskarsdóttir (f. 1955, Svona eða hinsegin H.C. Andersen? bls. 31).
Utskrifuð leikskólakennari frá FÍ 1992 og með B.Ed.-próf frá KHÍ 2003.
Starfar nú sem bókavörður á Borgarbókasafni, fjögurra barna móðir.
Hefur haldið fyrirlestra og skrifað greinar um H.C. Andersen í Viðskipta-
blaðið, Uppeldi og Lesbók Morgunblaðsins. Er með vef um Andersen á
www.borgarbokasafn.is/h.c.andersen
Kristján Jónsson, nefndur Fjallaskáld, (1842-1869, Deyjandi barn bls. 41
og Fuglinn Phönix bls. 49). Hann óx upp í Kelduhverfi en var vinnumaður
á Hólsfjöllum 1859-63 og þaðan er viðurnefnið komið. Hann lauk þrem
bekkjum í latínuskólanum í Reykjavík 1864-68 en var síðan barnakennari
í Vopnafirði. Eftir hann liggur allmikið af ljóðum, sjálfsævisaga og eitt
leikrit.
Sigurður A. Magnússon (f. 1928, Stökkgellurnar bls. 60, Smalastúlkan og
sótarinn bls. 62 og Holgeir danski bls. 66), rithöfundur, hefur þýtt úr
ensku, grísku og þýsku; einnig úr íslensku á ensku.
Steingrímur Thorsteinsson (1831-1913, Förunauturinn bls. 45) varð
stúdent í Reykjavík 1851, hóf sama ár nám í Hafnarháskóla, fyrst í lögfræði
en lauk 1863 kandídatsprófi í latínu, grfsku, sögu og norrænu. Stundaði
kennslu í Kaupmannahöfn til 1872 en var eftir það kennari við lærða
skólann í Reykjavík. Auk ljóða liggja eftir hann fjölmargar þýðingar úr
ýmsum tungumálum, þar á meðal ÆJintýri ogsögurehit H.C. Andersen er
út komu 1904 og 1908.
á dSœyösá — Til þess parf skrokk!
83