Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.2011, Page 35
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 1. tbl. 87. árg. 2011 31
Í tímaritinu Journal of Family Nursing, 1. tbl. 2010, skrifar Janice Bell
ritstjóragrein um ákvörðun Önnu Stefánsdóttir, hjúkrunarforstjóra á
Landspítala, að hefja innleiðingu á fjölskylduhjúkrun á öllum deildum
sjúkrahússins. Þar kemur fram að Landspítali er í fararbroddi í
heiminum hvað fjölskylduhjúkrun varðar. Margir horfa nú til þess
hvernig verkefnið hefur gengið og hvað sé hægt að læra af þessari
mikilfenglegu tilraun.
Þess er einnig getið í blaðinu að þrír íslenskir hjúkrunarfræðingar
voru heiðraðir á 9. alþjóðlegu fjölskylduhjúkrunarráðstefnunni sem
haldin var 2009 í Reykjavík. Það voru þær Anna Ólafía Sigurðardóttir,
Elísabet Konráðs dóttir og Eydís Kristín Sveinbjarnardóttir. Verðlaunin
heita á ensku Innovative Contribution to Family Nursing Award og
hlutu þær þau fyrir framúrskarandi framlag til að efla fjölskylduhjúkrun.
Ítarleg umfjöllun um fjölskylduhjúkrun var í 5. tbl. Tímarits
hjúkrunarfræðinga 2009 og voru meðal annars viðtöl við alla þessa
hjúkrunarfræðinga.
HEIÐRAÐAR FYRIR
FRAMLAG SITT
TIL FJÖLSKYLDU-
HJÚKRUNAR
Anna Ólafía
Sigurðardóttir
Eydís Kristín
Sveinbjarnardóttir
Elísabet
Konráðsdóttir
Breyttar reglur
starfsmenntunar sjóðs Félags
íslenskra hjúkrunar fræðinga
Starfsreglum starfsmenntunarsjóðs var
nýlega breytt og geta sjóðfélagar nú sótt
um 40.000 kr. á ári. Stjórn starfs menntunar-
sjóðs hvetur hjúkrunar fræðinga til að kynna
sér reglurnar og sækja um hafi þeir sótt
námskeið eða ráðstefnu.
Breytingar á reglunum tóku gildi 1. janúar
2011. Áður gátu sjóðfélagar sótt um 50.000
kr. á tveggja ára fresti en frá og með
úthlutuninni í janúar 2011 er styrkupphæðin
40.000 kr. á hverju ári. Það þýðir til dæmis að
hjúkrunarfræðingur í meistaranámi í HÍ getur
fengið greiddan meiripart innritunargjalds á
hverju ári, samtals 80.000 kr. í staðinn fyrir
45.000 kr. (eða 50.000 kr. ef sótt var um
fyrir annað námskeið að auki).
Aftur á móti fá hjúkrunarfræðingar aðeins
minna greitt fyrir dýrari stök verkefni, eins
og erlendar ráðstefnur eða löng námskeið.
Hins vegar er nú hægt að fá greidd að fullu
stutt námskeið á hverju ári.
Úthlutað er fjórum sinnum á ári og þarf að
sækja um fyrir 1. janúar, 1. apríl, 1. júní eða
1. október. Vert er að minna á að sækja þarf
um innan 9 mánaða frá lokum verkefnis. Ef
til dæmis námskeiði eða ráðstefnu lauk í
janúar sl. þarf að sækja um í síðasta lagi
30. september.
Eins og áður er hægt að sækja um 100.000
kr. styrk fyrir 1. júní árlega. Úthlutað er allt að
20 slíkum styrkjum en skilyrði er að námið
sé vegna framhalds- eða viðbótarnáms í
hjúkrunarfræði, fari fram við viðurkennda
menntastofnun og því ljúki með formlegu
námsmati.
Stjórn starfsmenntunarsjóðs úthlutaði 20.
október sl. styrkjum fyrir um 4,5 milljónir
króna og í janúar var styrkupphæðin um 3
milljónir. Reglur sjóðsins er að finna á vef
félagsins undir yfirskriftinni Styrkir og sjóðir.