Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.2011, Qupperneq 43
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 1. tbl. 87. árg. 2011 39
starfsfólk verið sett í nýja stöðu
gagnvart skjólstæðingum sínum. Kröfur
eru gerðar um að þverfaglegir hópar
innan spítalans starfi saman og leggi
til fagþekkingu sína við úrlausn þeirra
viðfangsefna sem eru til umfjöllunar í
stað þess að hver faghópur vinni á
sínum forsendum einum (Elliott, 1991).
Þær kröfur eru gerðar til fagstétta að
litið sé á aðstæður skjólstæðinga þeirra
heildrænt og að ólíkar fagstéttir taki
sameiginlega ákvörðun um hvernig
þörfum sjúklinga sé sinnt. Þessi breyting
kallar á að hver starfsmaður taki að
vissu leyti forystu og sýni sjálfstæði í
starfi sínu og reyni að virkja aðra með
viðræðum og samstarfi (Börkur Hansen
og Smári S. Sigurðsson, 1998). Því
skiptir sköpum að stjórnendur geri allt
sem í þeirra valdi stendur til þess að
hlúa að fagmennsku hjá starfsmönnum
sínum.
„Öryggi sjúklinga á að
vera í huga heilbrigðis-
starfsmanna við vinnu og
í hvíld og vera ætíð þeirra
einlæga ósk.“
Stjórnendur geta aukið fagmennsku
á deildinni meðal annars með því að
fjölga gæðavísum og stuðla að notkun
þeirra. Að sögn Institute of Medicine
(2001) eru sex atriði sem auka gæði
og efla fagmennsku starfsfólksins í
heilbrigðisþjónustunni. Þessi sex atriði
gera hjúkrunina öruggari, árangursríkari,
sjúklingamiðaðri, tíma bærari, hagkvæmari
og réttsýnni. Atriðin endurspeglast í
gæðavísum í allri þjónustu sem veitt er
á hjúkrunardeild. Gæðavísarnir stuðla
að árangursríkri hjúkrun, byggðri á
þekkingu og hæfni starfsfólksins.
Hjúkrunin verður sjúklingamiðaðri með
notkun þeirra en hún á að taka mið
af þörfum og skoðunum sjúklinganna.
Með notkun gæðavísa aukast líkur á að
þjónustan sé veitt á réttum tíma. Biðtími
styttist og kemur í veg fyrir tímaeyðslu,
bæði sjúklinga og heilbrigðisstarfsfólks.
Gæðavísar auka hagkvæmni með því að
koma í veg fyrir óþarfa notkun á tækjum,
hugmyndum og orku. Þjónustan á að
vera réttsýn, hjúkrunarfólkið á að bera
öðrum starfsmönnum sjúkrahússins en
oft vilja upplýsingar „leka“ og það getur
auðveldlega boðið upp á misskilning
og leiðindi. Það er ekki nóg að útskýra
væntanlegar breytingar rækilega heldur
þarf að gefa starfsmönnum svigrúm til
að aðlagast þeim, í því felst umhyggja
(Kotter, 1996).
Ekki má gleyma að sýna stjórnendum
umhyggju, þeim líður ekkert síður illa
en undirmönnum í því óvissuumhverfi
sem ríkir á sjúkrahúsum landsins um
þessar mundir. Hvetja þarf til óformlegra
samskipta og afslappaðs umhverfis á
hverri deild. Allir starfsmenn þurfa að vilja
leysa vandamál án tafar. Þeir vilja einnig
að árangur og einfaldleiki séu hafðir að
leiðarljósi.
Fagmennska
Um fátt hefur verið jafnmikið ritað og
fagmennsku. Þegar við heyrum orðið
fagmennska kemur strax upp sú mynd
að í fagmennskunni felist kunnátta, leikni,
ábyrgð, gæði og sjálfstæði í störfum. Á
almennri hjúkrunardeild yfirfæra fagmenn
fræðilega þekkingu á dagleg störf
(McGovern, 2001). Þekking og hæfni
þeirra eru það dýrmætasta sem þeir hafa
upp á að bjóða. Án þeirra væri ekki hægt
að veita bestu hjúkrun og þjónustu sem
völ er á. Stjórnendur hafa meðal annars
því mikilvæga hlutverki að gegna að
styðja við bakið á starfsmönnum sínum
og skerpa og viðhalda fagmennsku þeirra
(Eyþór Eðvarðsson, 2000). Stjórnendur
verða að leggja áherslu á að hafa réttan
starfsmann á réttum stað á réttum tíma
og gæta þess að þeir tileinki sér þær
nýjungar er verða til innan deildarinnar.
Fagmennskan er mikilvæg í hjúkrun
sökum aukinnar tækni og stöðugra krafna
um ódýrari og hagkvæmari þjónustu.
Eitt er víst að símenntun starfsmanna
tekur stöðugt á þáttum er lúta að bættri
þjónustu og auknum gæðum hjúkrunar.
Mikilvægt er að stjórnendur stuðli sjálfir
að fræðslu og bjóði upp á hana reglulega
hvort sem hún fer fram á deildinni eða
utan hennar.
Með tilkomu alnetsins og aukinni
þekkingu almennings á rétti sínum,
hvort sem um er að ræða sjúklinga eða
aðstandendur þeirra, hefur hjúkrunar-
Aðalfundur Félags íslenskra
hjúkrunar fræðinga
verður haldinn 19. maí
næstkomandi.
Þar verður kosið í stjórn og
nefndir samkvæmt lögum
félagsins.
Kjörnefnd auglýsir eftir
framboðum í:
• kjörnefnd
• ritnefnd
• stjórn orlofssjóðs.
Upplýsingar um nefndir og lög
félagsins eru aðgengilegar á
heimasíðu félagsins.
Framboð þurfa að berast
kjörnefnd á skrifstofu Félags
íslenskra hjúkrunar fræðinga eða
á netfangið hjukrun@hjukrun.is
fyrir 7. apríl næstkomandi.
Nánari upplýsingar veitir
kjörnefnd:
Guðrún Jónasdóttir,
gudrujo@landspitali.is
Hildur Rakel Jóhannsdóttir,
hildurjo@gmail.com
Ragna Dóra Rúnarsdóttir,
ragnadr@landspitali.is
Sigríður Lóa Rúnarsdóttir,
svalt@simnet.is.
Kosningar á
aðalfundi