Þjóðmál - 01.03.2011, Síða 14

Þjóðmál - 01.03.2011, Síða 14
12 Þjóðmál VOR 2011 menn hennar óttast kosningar? Eða telja þeir sér trú um að stjórnmál af þessu tagi auki virðingu á störfum þeirra? Sé tekið mið af hinu litla trausti sem almenningur ber til alþingis fara þessir þingmenn villur vega . Hinn 9 . apríl verður gengið til þjóðar­ atkvæða greiðslu um Icesave III­samningana . Eins og fyrri samningar byggjast þeir á löglausum kröfum Breta og Hollendinga um að Íslendingar ábyrgist skuldbindingar einkabanka sem nema rúmlega 600 milljörð um króna . Um þetta mál falla svipuð orð og önnur flókin mál í umræðum og fréttum: „Ég hef fengið leið á þessu .“ Í þessum anda segjast margir ætla að veita Icesave III brautargengi . Stjórnarandstöðuþingmenn, þar á meðal níu úr Sjálfstæðisflokknum, studdu Icesave III lögin sem Ólafur Ragnar Grímsson neitaði að staðfesta 20 . febrúar 2011 . Töldu þeir lögin íslenskum hagsmunum fyrir bestu . Ég er ósammála þeirri niðurstöðu . Haustið 2008, þegar ríkisstjórn Geirs H . Haarde ræddi Icesave, blandaði ég mér ekki í umræðurnar að öðru leyti en því að ég hvatti til þess að menn hyrfu ekki frá því að halda lögfræðilegum fyrirvörum til haga . Mikilvægi þeirra hefur skerpst svo mjög í umræðum um málið að mér finnst í raun fráleitt að nokkur íslenskur stjórn­ málamaður telji sér fært að binda enda á deiluna við Breta og Hollendinga án þess að vera viss um réttarstöðuna . Ég tek heilshugar undir með Tómasi Inga Olrich, fyrrverandi ráðherra og sendiherra, þegar hann sagði í Morgunblaðinu 5 . febrúar 2011: „Það er mikill misskilningur að auðmýkt og auðsveipni auki mönnum virðingu í alþjóðasamskiptum . Það er þvert á móti ekki til beinni né breiðari vegur til að öðlast fyrirlitningu á alþjóðavettvangi en að samþykkja rangindin sjálfviljugur, í þeirri trú að betra sé að kaupa sér frið en að standa á rétti sínum .“ Ég hvet alla til þess að hafna Icesave III í kosningunum 9 . apríl . Með því er ekki aðeins sagt nei við löglausum kröfum heldur einnig stuðlað að því að vond ríkisstjórn fari veg allrar veraldar . Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi for mað ur Sjálfstæðisflokksins, sem tók sæti í aðal ­ viðræðunefnd Íslands við ESB að ósk Össur­ ar Skarphéðinssonar, utanríkis ráð herra, og telur að Ísland eigi að ganga í sam band ið, óttast að það renni upp fyrir fólki að líf ríkisstjórnarinnar sé í húfi í þjóðar at kvæða­ greiðslunni . Þorsteinn mælir með Icesave III . Hann segir í Fréttablaðinu 5 . mars: „Þó að stjórnin ætli að sitja hvernig sem fer [í þjóðaratkvæðagreiðslunni] má ljóst vera að hún yrði fullkomlega lömuð eftir tap í þjóðaratkvæðagreiðslu . Hins vegar getur hún ekki lagt allan þunga sinn í málsvörnina því að hún segist geta setið þótt málið falli . Þannig verður tilvera hennar ekki með öllu óháð málinu sjálfu í kjörklefanum .“ Þessi ósannfærandi málflutningur Þor­ steins um að ríkisstjórnin lifi, þótt hún andist vegna nei­atkvæða í þjóðar atkvæða­ greiðslunni, á að auðvelda stjórnar and­ stæðingum, sem ætla að segja já, að axla tvöfalda byrði hinn 9 . apríl: að beygja sig í duftið vegna Icesave og lengja líf lánlausrar ríkisstjórnar . Í kosningunum 9 . apríl er meira í húfi en afstaðan til Icesave III . Þetta veit ríkis­ stjórnin, þess vegna fagnar hún hverjum stjórn arandstæðingi sem leggur Icesave III lið . Svartbók kommúnismans Hannes Hólmsteinn Gissurarson þýddi Kommúnisminn var einn afdrifaríkasti þátturinn í sögu tuttugustu aldar. Eftir fall hans í Mið- og Austur-Evrópu varð aðgangur að upplýsingum greiðari, ekki síst í skjalasöfnum, sem áður voru lokuð. Það hafa höfundar þessarar bókar nýtt sér, og áætla þeir, að komm- únisminn ha kostað hátt í 100 milljónir manna líð (líklega 20–25 milljónir í Ráðstjórnarríkjunum og ef til vill um 65 milljónir í Kína). Honum ha hvarvetna fylgt öldamorð, hungursneyðir, nauðungarutningar stétta og þjóðokka, sýndarréttarhöld, aftökur og þrælkunarvinna. Svartbók kommúnismans hefur komið út á öllum heimstungum, víða verið á metsölulistum og leitt til örugra umræðna. Hún var kveikjan að ályktun Evrópuráðsins í janúar 2006, þar sem afbrot kommúnistastjórna um allan heim voru fordæmd. 840 bls. H Á S K Ó L A Ú T G Á F A N haskolautgafan.hi.is – hu@hi.is – s. 525 4003
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Þjóðmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.