Þjóðmál - 01.03.2011, Page 16

Þjóðmál - 01.03.2011, Page 16
14 Þjóðmál VOR 2011 Bergþór Ólason Icesave­málið er ekki svo flókið Nú þegar stjórnarflokkarnir gera enn eina tilraunina til að hengja Icesave­ klafann um háls íslenskra skattgreiðenda, og í þetta sinn með óvæntum og lítt út­ skýrð um liðs auka, er rétt að staldra við og fara yfir málið . Innan skamms fær þjóðin tækifæri til að svara því í annað sinn hvort hún sé fá anleg til að taka að sér að greiða breskum og hollenskum stjórnvöldum aftur þær upp hæðir, sem þessi stjórnvöld greiddu eigin þegnum til að koma ró á eigin fjár­ málamarkað í ólgusjó bankakreppunnar haust ið 2008 . Oft er það svo, að ágreiningsmál eru raun­ verulega flókin úrlausnar og sterk lagarök á báða bóga . Þegar kemur að Icesave­málinu eru aðalatriðin merkilega einföld . Sé spurningum og álitaefnum Icesave­ máls ins raðað á tímalínu og því næst spurt og svarað í réttri röð, þá vill svo til að fremst á línunni er ein spurning sem er þess eðlis að neikvætt svar gerir allar síðari spurningar óþarfar . Sú ágæta spurning er þessi: Er, eða hefur verið, ríkisábyrgð á tryggingasjóði innstæðueigenda og fjár­ festa? Flestir sjá, að sé slík ríkisábyrgð til staðar, eða hafi verið það, þá beri íslenska ríkinu að koma til skjalanna með veskið opið, þegar tryggingasjóðurinn kemst í þrot við að reyna að bæta innstæðueigendum tjón þeirra . Og að sama skapi: Hafi aldrei nein slík ríkisábyrgð verið til staðar, þá beri íslenska ríkinu engin skylda til að hlaupa til og borga . Er ríkisábyrgð, eða er ekki ríkis­ ábyrgð? Svarið við því er einfalt . Slík ríkisábyrgð er ekki fyrir hendi og hefur aldrei verið . Engum hefur tekist að benda á þann stað þar sem ríkisábyrgð er sett við tryggingasjóðinn, enda er hann ekki ríkisstofnun, hvorki á Íslandi né í öðrum löndum . Auðvitað blasir við öllum, að ef til hefði staðið að þjóðríkin ábyrgðust tryggingasjóðina þá hefði það verið gert með þeim hætti að enginn vafi léki á því . Þá þyrfti engar hártoganir, móralíser­ íngar eða hótanir . Þá væri ein faldlega hægt að benda á lagabókstafinn og þrætum væri lokið . Það er einmitt vegna þess að skyldan er alls ekki fyrir hendi, sem rök þeirra, sem vilja hengja klafann á Íslendinga, eru öll svo loftkennd . Þingmaður Samfylkingarinnar sagðist á Alþingi vilja samþykkja Icesave II samninginn, þann sem felldur var í þjóðar­ atkvæða greiðslunni í fyrra, „til þess að

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.