Þjóðmál - 01.03.2011, Qupperneq 76

Þjóðmál - 01.03.2011, Qupperneq 76
74 Þjóðmál VOR 2011 að halda fyrirtækjasköttum háum og ótti þeirra við að önnur ríki innan sambandsins, einkum í Austur­Evrópu, gætu laðað til sín fyrirtæki með hagstæðara rekstrarumhverfi . Vilji hefur því verið til þess, ekki sízt hjá stjórnvöldum í Þýzkalandi, að koma þannig í veg fyrir skattalega samkeppni á milli ríkja Evrópusambandsins . Nú þegar er ákveðin samræming til staðar varðandi virðisaukaskatt en ríki Evrópu sam­ bandsins verða að hafa virðis auka skattprós entu sína á bilinu 15–25% á allar vörur og þjónustu með fá einum undantekningum . Breyt ingar á fyrir komulagi skattamála innan sam bands­ ins krefjast einróma samþykkis allra ríkja þess .12 Eitt prósent af skattstofni virð is auka­ skatts ríkjanna rennur síðan beint til reksturs Evrópusambandsins til viðbótar við hlutdeild sambandsins í landsframleiðslu ríkj anna og tollatekjur .13 Evrópusambandið hefur sótt það stíft að geta lagt beina skatta á þegna ríkja sambandsins til þess að fjármagna starfsemi sína án milligöngu ríkjanna en ekki hefur orðið af því enn . Heimild til þess er hins vegar að finna í Stjórnarskrá Evrópusambandsins .14 Frjáls markaður? Margir hægrimenn hafa velt upp þeirri spurningu hversu frjáls markaður eins og innri markaður Evrópusambandsins raunverulega er þegar hann býr við jafn mikið regluverk og miðstýringu og raun ber vitni . Heildarregluverk sambandsins telur í dag um 100 þúsund gerðir af ýmsum gerðum .15 Til samanburðar má geta þess að í gildi á Íslandi í dag eru um 5 þúsund gerðir, þar af um eitt þúsund lög og um 4 þúsund reglugerðir . Inni í þeim fjölda er allt það regluverk 12 „Value Added Tax, VAT“ . Euabc .com . http://en .euabc . com/word/941 13 „Own income/Own resources“ . Euabc .com . http:// en .euabc .com/word/768 14 „Taxation“ . Euabc .com . http://en .euabc .com/word/897 15 „Number of laws“ . Euabc .com . http://en .euabc .com/ word/2152 Evrópusambandsins sem tekið hefur verið upp hér á landi í gegnum samninginn um Evrópska efna hagssvæðið (EES) .16 Ef Ísland gengi í Evrópusambandið er ljóst að landið yrði undir langstærstan hluta heildar regluverks sambandsins sett (hluti þess á aðeins við um ákveðin ríki innan þess) og að regluverk í gildi á Íslandi myndi þar með aukast stórkostlega . Þetta er vissulega sagt með þeim fyrirvara að lagagerðir hafa mismikil áhrif og vægi . Þá má geta þess að sá undirbúningur fyrir inngöngu Íslands í Evrópusambandið sem hófst í kjölfar umsóknar ríkisstjórnarinnar miðar einkum að því að undirbúa stjórnsýslu landsins fyrir það að geta að lokum tekið upp allt regluverk sambandsins og starfað samkvæmt því . Með öðrum orðum að gera stjórnsýsluna þannig úr garði að hún sé í samræmi við regluverk upp á tugi þúsunda lagagerða .17 Evrópusambandið hefur síðustu árin viðurkennt að framleiðsla þess á lagagerðum er gríðarlegt vandamál eftir að hafa áður þvertekið fyrir það . Ekki hefur vantað að forystumenn sambandsins hafi ítrekað sett fram hástemmdar yfirlýsingar um að bót yrði ráðin á þessu en þær aðgerðir sem gripið hefur verið til fram til þessa hafa litlu sem engu skilað . Þeir sem fengnir hafa verið af Evrópusambandinu til þess að semja áætlanir um það hvernig bregðast megi við vandanum hafa kvartað yfir takmörkuðum áhuga ráðamanna sambandsins á málinu .18 Þáverandi yfirmaður iðnaðar­ og frum­ kvöðlamála í framkvæmdastjórn Evrópu­ 16 Sjá . Reglugerd .is og lagasafnið á Althingi .is . 17 Sjá t .d . minnisblað fyrir utanríkismálanefnd Alþingis dags . 25 . ágúst 2010 en þar segir m .a . að markmið eitt með aðstoð Evrópusambandsins við undirbúning fyrir inngöngu Íslands sé „að styrkja stjórnsýsluna til að hún geti tekist á við þær breytingar sem innleiðing ESB löggjafarinnar (acquis communautaire) hefur í för með sér .“ Minnisblaðið má nálgast hér: http://www .eldhorn .is/hjorleifur/vett2010/ IPAMinnisblad .doc 18 „Red tape unit lashes out at Charlie McCreevy“ . Euobserver 23 . september 2008 . http://euobserver . com/?aid=26788
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Þjóðmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.