Þjóðmál - 01.12.2010, Blaðsíða 71

Þjóðmál - 01.12.2010, Blaðsíða 71
 Þjóðmál VETUR 2010 69 UNODC, sem er sú stofnun S .þ ., er hefur umsjón með baráttu gegn skipulagðri alþjóðlegri glæpastarfsemi af margvíslegu tagi, Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu (ÖSE) og fleiri stofnanir .21 Á áttunda áratug síðustu aldar voru reistar miklar og glæsilegar byggingar á Dónárbökkum í Vínarborg undir starfsemi S .þ ., en Kurt Waldheim, síðar forseti Austurríkis, gegndi þá stöðu aðalritara (1972–1981) . En hvað voru Íslendingar að hugsa? Hvernig hugðust þeir haga kosningabaráttu sinni? Hver áttu að vera áherslumál hins hugumstóra smáríkis, sem nú hafði „skynjað“ stærð sína með nýjum hætti og taldi það fjarri öllu lagi að það væri eitthvað „hégómamál“ að varpa sér í djúpulaug alþjóðastjórnmálanna? Í þessu samhengi er mikilvægt að huga að tímaþættinum í sókninni, vegna þess að aðdragandinn er heill áratugur og vart er við öðru að búast, en að sitthvað breytist í áherslum og málatilbúnaði í svo löngu framboðsferli, þar sem fimm utanríkisráðherrar koma að sama verki, sem á sér enga hliðstæðu í Íslandssögunni . Framan af var ekki mikið lagt undir í kosningabaráttunni vegna þess að það var mat manna að trúlega kæmi ekki til þess að þriðja ríkið myndi bjóða sig fram í Vesturlandahópnum og því yrði sjálfkjörið . En því var nú ekki að heilsa, eftir að Tyrkland tilkynnti framboð sitt sumarið 2003, eins og áður greinir . Þegar svo var komið virðist enginn efi hafa kviknað hjá ráðamönnum; að nú væri kannski komið að leiðarlokum, að hér stæðum við frammi fyrir ofjörlum okkar og að frekari sóknaraðgerðir myndu aðeins kalla á vaxandi útgjöld, sem yrðu „smáríkinu“ ofviða . Nei, áfram skyldi haldið og framboð Íslands var kynnt öllum aðildarríkjum S .þ . 19 . september 2003 er 21 Sama heimild, bls . 8 . fastanefndum þeirra var send orðsending og jafnframt falast eftir stuðningi þeirra .22 Davíð Oddsson hafði stólaskipti við Halldór Ásgrímsson um miðjan september 2004 og varð utanríkisráðherra . Hann var áhugalítill um framgang málsins í sinni embættistíð, sem varði aðeins í 377 daga . Undir lok september 2005 tók Geir H . Haarde við embætti utanríkisráðherra og var hann öllu áhugasamari um framgang málsins en forveri hans . Var því fleygt af mótframbjóðendum Íslands í slagnum að lítil alvara fylgdi framboðinu og lá það orð á, að Ísland væri líklega að hætta við framboð sitt . Var sagt að undir þessum kringum- stæðum hefðu Tyrkir og Austurríkis menn aflað sér fylgis margra ríkja .23 Geirs naut ekki lengi við á ráðherrastóli og tók Valgerður Sverrisdóttir við af honum 15 . júní 2006 . Hennar naut sömuleiðis ekki lengi við, rétt tæpt ár, en kappsamlega var unnið að framboði Íslands á öllum vígstöðvum og skipaður sérstakur kosningastjóri, Sigríður Á . Snævarr sendiherra . En nú fara mál að taka óvænta stefnu . Nýr utanríkisráðherra mætir til starfa 24 . maí 2007, í kjölfar alþingiskosninga og stjórnarmyndunar, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar . Nú skyldi tekið til hendinni . Sigríður lét af kosningastjórninni og við tók Kristín 22 Sama heimild, bls . 11 . Davíð Oddsson, lét þess getið í spjalli við höfund 6 . júlí 2010, að hann hefði orðið þess fullviss að Ísland ætti litla möguleika eftir að framboð Tyrklands varð ljóst . Bæði skorti fé og mannafla og víst væri að ekkert múslimaríki myndi styðja Ísland . Því væri sjálfhætt . Þótt hann hefði verið fylgjandi málinu í upphafinu hafði hann algerlega skipt um skoðun eftir að hann varð utanríkisráðherra . 23 Sama heimild, bls . 12 . Í þessu samhengi er vert að hafa í huga að skýrsla ráðuneytisins um fram- boðið er öðrum þræði varnarrit þeirra, sem unnu að framboði Íslands, sem endaði svo illa sem raun bar vitni . Má kannski líta á tal af þessu tagi sem afsökun fyrir slöku gengi?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Þjóðmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.