Þjóðmál - 01.12.2010, Blaðsíða 42

Þjóðmál - 01.12.2010, Blaðsíða 42
40 Þjóðmál VETUR 2010 að reglugerðarumhverfi fjármála kerfisins sé þannig að bankakerfið vaxi Seðlabankanum ekki yfir höfuð . Því þarf Seðlabankinn að ráða yfir úrræðum og upplýsingum sem gera honum kleyft að bregðast við í tíma ef minnsti grunur vaknar um að fjármálakefið sé að þenjast of hratt út . Bankastarfsemi yfir landamæri þarf að lúta ströngum reglum og eftirlitshlutverk með fjármálakerfinu og fjármálastöðugleika þarf að vera á einum stað . Því ætti að færa banka- eftirlitshlutverk FME til Seðlabanka og að FME hafi einungis neytendavernd á sinni könnu . Mikilvægt er að verðtrygging lána verði afnumin sem meginform í lánasamningum til að skerpa á virkni vaxtatækis Seðlabanka . Jafnframt er mikilvægt að hamla sem mest gegn erlendum lánum til einstaklinga og fyrirtækja sem ekki hafa tekjur í erlendri mynt . Með því er annars vegar komið í veg fyrir að fólk og fyrirtæki geti vikið sér undan vaxtatæki Seðlabankans og hins vegar minnkar gengisáhætta í hagkerfinu sem styður aftur við fjármálalegan stöðugleika . Vandi stjórnmálanna Sú spurning hlýtur að vakna hvernig framfylgja á fjármálareglu eins og þeirri sem hér er sett fram á vettvangi stjórnmálanna . Sagan sýnir okkur að stjórnmálamenn eru tregir til að binda hendur sínar þegar kemur að útgjöldum . Freistingin fyrir ríkjandi stjórnvöld á hverjum tíma til að „gefa í“ í aðdraganda kosninga er mikil . Það eykur líkurnar á endurkjöri . Þá getur þrýstingur frá hagsmunaaðilum orðið stjórnmálamönnum um megn þegar kemur að andstöðu við útgjaldaaukningu . Hagfræðingar hafa fjallað mikið um skað- leg áhrif óreglubundinnar fjármálastjórnar (e . decretionary policies) sem koma fram í verð bólgu, skuldasöfnun, hærri vöxtum og meiri óvissu og þ .a .l . minni framleiðslu og efna hagslegri velferð . Sjóndeildarhringur stjórn málamann nær oftar en ekki aðeins fram að næstu kosningum og því þarf að koma böndum á þá líkt og þegar Ódysseifur lét binda sig við mastrið til að freistast ekki af söng Sírenanna . Í dag er kjörið tækifæri til að binda slíkar reglur í stjórnarskrá . En auð vitað þarf að vera svigrúm ef eitthvað óvænt kemur upp . Hugsa mætti sér að ef reglan, sem lýst er hér að framan, yrði stjórn arskrárbundin, þyrfti aukinn hluta þing manna til fara á svig við regluna – t .a .m . að 2/3 hluti þingmanna þyrfti að samþykkja til að víkja mætti frá reglunni . Ef svo liti út að brjóta ætti regluna án þess að um einhvers konar ófyrirséð atvik væri að ræða myndi stjórnarandstaða beina athygli að því að um stjórnarskrárbrot væri að ræða . Þannig myndi pólitískur kostnaður fyrir ráðandi stjórnvöld fylgja því að brjóta regluna . Stjórnvöld í mörgum löndum hafa í gegnum tíðina reynt að innleiða reglur sem þessar . Segja má að Maastricht-skilyrðin séu greinar af þessum meiði . Þá hafa Þjóðverjar og Svisslendingar gengið svo langt að innleiða í stjórnarskrá sína að ekki megi reka ríkissjóð með halla . Sama má segja um mörg fylki Bandaríkjanna . Einnig þarf að tryggja að stjórnvöld geti ekki farið á svig við regluna með því að færa ráðstafanir fyrir utan efnahagsreikning . Því ætti að taka upp að nýju kynslóðareikninga á Íslandi en þeir varpa ljósi á stjórnvaldsaðgerðir sem leiða til útgjaldabreyt inga í framtíðinni . Ávinningurinn af fjármálareglunni er stöðugur gjaldmiðill Ábati af fjármálareglunni, sem hér er stungið upp á, kemur fram í minna álagi á pen- ingamálastefnuna, lægri og stöðugri vöxtum og þar með stöðugra gengi . Þessi stöðugleiki og minni óvissa leiðir aftur til meiri framleiðslu og efnahagslegrar velferðar til langs tíma litið . Reglan leiðir einnig til þess að hægt er að framfylgja Maastricht-skilyrðunum mun betur en ella og fyrr yrði hægt að taka upp evru á Íslandi . En það sem meira er um vert: reglan myndi leiða til mun betri hagstjórnar og þar með yrði krónan raunhæfari kostur sem þjóðargjaldmiðill en nú er því að gjaldmiðill endurspeglar aðeins undirliggjandi stjórn efnahagsmála og væntingar um hana – ekkert annað .
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Þjóðmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.