Stjórnartíðindi fyrir Ísland: B-deild - 01.12.1874, Page 17

Stjórnartíðindi fyrir Ísland: B-deild - 01.12.1874, Page 17
3 una út í einhýsi, skal hann forðast allar tilraunir til að komast ( kunningskap við meðfanga sína. 3. gr. Bæði ( einhýsinu og á vinnustofunni skal fanginn hafa um sig hljótt og kyrt. Allr hávaði, kveðskapr og annar órói er fyrirboðinn. Alla hreinsun hýbýlanna skal vel vanda og framkvæma á þeim tíma, sem húshættir bjóða; þó skal glugga fága að eins, þegar um- sjónarmaðr skipar. Fangi skal varast alla lilraun til að komast í samband við nokkurn mann, sem ekki er viðriðinn hegningarhúsið. Veggi, hurðir, þil og föst áhöld í fanga- hýbýlunum má eigi skaða né óhreinka með höggum, útskurði, eða með að klína þau, eða öðruvísi. Fangi skal ábyrgjast áhöld og verkfæri, sem honum cru fengin. Brotni eðrbili nokkuð, sem honnm er trnað fyrir, skal hann þá þegar segja umsjónarmanni til, en hegn- ingu skal það varða, ef skemdir komast upp, sem hann eigi heflr til sagt. Hins sama skal fangi gæla, ef eitthvað týnist, sem honum heflr verið fengið. Aldrei má hann undir höndum hafa neitt það, sem honum hefir ekki verið fengið af einhverjum yflrboðara sinna, en samstundis afhenda umsjónarmanni alt það, er honum eigi kemr við, og hann kynni að finna, eða honum vera geflð án vitundar umsjónarmanns. Fyrir hverskouar vanrækt eða brot á móti þessu, bakar fangi sér hegningu. i. gr. Fangi skal núkvæmlega hlýða hverri þeirri reglu, sem honum verðr sett til viðrhalds heilbrigðinni. Án sérstaks leyfis læknisins getr hann ekki undanþegist ráðstöfunum þeim, sem í þá stefnu eru gjörðar. Öllu, sem umsjónarmaðr skipar til viðrhalds nauðsynlegu hreinlæti, skal fangi tregðulaust hlýða. Hann skal leggja sitt fram til þess, að ætíð sé hreint og gott loft í herbergjum þeim, er hann skal ( vera. Ef fangi verðr lasinn, segir hann umsjónarmanni frá því. Mun þá læknirinn Kta til hans, og skal hann þá nákvæmlega fara að ráði læknis, hvort sem hann verðr kyrr í fanga- herbergi sínu, eða hann verðr lagðr á sjúkrastofuna. 5. gr. Þegar fanga er hleypt út í garðinn, skal hann vera í sífeldri hreifingu. Að skera í eðaklfna á múreða skiðgarð er strengilega bannað, og skal fangi varast þar allan hávaða og skarkala, eins og sérhverja aðra óreglu. 6. gr. Þegar fangi fer milli einhýsis síns og vinnustofunnar eða garðsins, skal hann vera í sinum fyrirskipaða fangabúningi, og sérhver háreysti eða jafnvel samtaler honum fyrirboðið, þá er hann gengr hér á milli til og frá. Frá vinnustofunni má hann ekkert með sér taka af verkfærum né áhöldum, nema það, sem honum berlega er skipað. 7. gr. Að undanteknum sunnu-og helgidögum, hvíldarstundum ogþeim stundum, sem fanga eru ætlaðar til að vera í garðinum, skal hann stöðugt vera að verki sínu og gjöra það eptir reglunnm fyrir skylduvinnunni. I*að er fanga leyft að sýsla við daglegt verk sitt á tóm- stundum hans, þegar annars ckkert er því til fyrirstöðu. Fangi er skyldr lil af fremsta megni að sýna námfýsi, nákvæmni og iðjusemi, og að fara vel og gætilega með verkfæri þau og verkefni, sem honum eru fengin. 8. gr. Með tlllili lil fullnægjngjörðar hegningarvinnunnar og heimildar fanga til að fá hlutdeild ( arði vinnu sinnar, er hegningarlfmanum skipt á þessa leið.

x

Stjórnartíðindi fyrir Ísland: B-deild

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stjórnartíðindi fyrir Ísland: B-deild
https://timarit.is/publication/1201

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.