Orð og tunga - 01.06.1990, Qupperneq 20

Orð og tunga - 01.06.1990, Qupperneq 20
xviii Orð og tunga Yfirskrift þessarar ráðstefnu er „Þýðingar á tölvuöld". Spyrja má að hvaða leyti þýðingar á tölvuöld séu frábrugðnar þýðingum á öðrum tímum. Þýðing- ar hafa ætíð gegnt miklu hlutverki í íslensku samfélagi. Guðsorð, bókmenntir, nytjatextar; margir ágætir menn hafa lagt sitt af mörkum til að koma þessum textum til Islendinga á móðurmálinu. Að hvaða leyti sker tölvuöldin sig úr? Hér hljótum við kannski fyrst og fremst að staldra við tölvuna sjálfa. Hún hefur að því leyti sérstöðu í heimi véla að hún vinnur með tákn, er táknvél, og getur því m.a. unnið með tákn mannlegs máls, stafi og orð. Flestum vélum stjórnum við með hreyfingum en öðru máli gegnir um tölvuna; henni er stjórnað með stafrænum skipunum. Að þessu leyti svipar tölvu kannski meir til bókar en vélar—við notum málið í samskiptum við tölvuna. Af þessurn sökum er einkar brýnt að þýða sem mest af þeim hugbúnaði sem er í almennri notkun á íslensku, að öðrum kosti verður öll umræða manna á meðal á enskuskotinni íslensku. Þess sér vitaskuld víða merki í máli manna að tiltölulega stutt er síðan farið var að þýða tölvumálið að einhverju gagni á íslensku, þeir eru ófáir sem „seiva“ skrár frekar en að forða þeim eða vista þær. Vegna þess hve snar þáttur tölvur eru orðnar í íslensku samfélagi hlýtur öllum að vera ljóst að íslenskun tölvumálsins er brýnt málræktarverkefni. A seinni árum hefur það mjög færst í vöxt að Háskólinn stofni til samstarfs við atvinnulífið. Þegar rætt er um tengsl af þessu tagi koma mönnum vafalítið fyrst í hug verkefni á sviði raunvísinda og verkfræði og vissulega eru mörg slík verkefni í gangi. En fimm ára samstarf Orðabókarinnar og IBM sýnir svo ekki verður um villst að húmanistar geta einnig stofnað til slíks samstarfs sem gagnast getur báðum aðilum. Hvað Orðabókina áhrærir er enginn vafi á því að samstarf þetta hefur orðið til að efla stofnunina. Hér kemur margt til. Mig langar sérstaklega að víkja að einum þætti, rannsóknarverkefnum sem Orðabókin hefur lagt stund á og beinlínis er liægt að rekja til þessa samstarfs. Eg hef þá einkum í huga tvö verkefni sem spruttu upp af fyrsta samvinnuverkefni Orðabókarinnar og IBM, þ.e.a.s. Ritskyggni. Ritskyggnir er þannig úr garði gerður að hann þekkir heimilar línuskipting- ar þeirra orða sem hann geymir í orðasafninu. Arið 1986 tók Orðabókin, fyrst íslenskra aðila, í notkun hið víðkunna setningar- og umbrotsforrit TgX, sem ætt- að er frá Stanford-háskólanum í Bandaríkjunum og hefur það haft rneiri áhrif á vinnubrögð á Orðabókinni en nokkur hugbúnaður annar sem við notum. TgX hefur einstaka aðferð til að skipta orðum milli lína og svo vel vill til að með TEX-hugbúnaðinum kemur forrit sem getur búið til þau mynstur sem TgX notar ef til er orðasafn sem sýnir leyfilegar skiptingar í orðunum. Orðasafn Ritskyggnis geymir yfir 200.000 slík orð og því lá beint við að nota það til þessara hluta, sem við og gerðum og með þeim árangri að TeX skiptir rétt um 98% orða í venjulegum texta. Á síðastliðnu ári gaf Orðabókin út hina miklu orðcisifjabók Ásgeirs Blöndals Magnússonar. Sú bók er að öllu leyti unnin í TgX og hér kom því línuskiptingartafla TgX að góðum notum. Þess má geta að Orðabókin lætur mönnum þessa línuskiptingartöflu í té endurgjaldslaust. í öðru lagi er þess að geta að Orðabókin hefur haldið áfram tíðnikönnunum eftir að vinnu við Ritskyggni lauk og á næsta ári er væntanleg rækileg orðtíðni-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Orð og tunga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Orð og tunga
https://timarit.is/publication/1210

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.