Einn Helsingi - 01.03.1946, Blaðsíða 9

Einn Helsingi - 01.03.1946, Blaðsíða 9
EINN HELSINGI 7 boðendur valdboðstrúarinnar í sín- um sturlaða hugsanaheimi þykjast ætla að uppraeta með því að spýta graftrarsýklum og strá rotnunar- eitri í hvert slíkt einstakt sár. Ef mér síðar auðnast að hafa meira rúm til umráða, mun ég þessum orðum mínum til sönnun- ar, draga fram í dagsljósið nokkur dæmi sem flytja rök sín sjálf, svo að ekki verður véfengt, — bera með sér rök sín og sannanir svo augljósar, að jafnvel hinum trúblinduðu og múgsefjuðu í þess- um málum geta tæplega dulizt þær — já, svo hrópandi og skýr, að jafnvel þeir verða knúðir til að hugsa sér þann möguleika, að á þessu viðfangsefni, sem öllu öðru á himni og jörðu, séu til fleiri hlið- ar en. nú, sem þeir einblína á, — sú eina, sem þeir sjá í sínum trú- andi óskeikulleik á sína eigin al- vitneskju — og sinn algjöra skiln- ing. Já, því miður er hægt að benda á mörg slík dæmi hvar þau liggja við veginn, blasa við meðfram öll- um mannanna vegum, svo blóðug og biturleg, að þau rjúfa jafnvel kafþykkni sefjanaþr^aðra lífsskoð- ana og almenningsálits, sem yfir þeim vegum grúfir eins og dauðans helmyrkur; — og svo raddstyrk í sínum ægilegu ákærum, að þau hljóta að heyrast, jafnvel gegnum þotvindarokur og glamrandi geyp- an 'þeirra legíóna andlegra ómerk- inga í ræðu og riti, sem standa fyr- ir framleiðslu þeirrar gastegundar. sem þeir nefna: baráttu gegn á- fengisbölinu En eins og ég tók fram í for- spjallinu, er nú síður en svo, að ég ráði yfir því rúmi er til slíks þyrfti. Enda mundi ég fyrst og fremst, ef rúm leyfði, reyna að gera nokkra grein fyrir þeirri hugmynd minni, sem persónuleg reynsla og athug- anir mikinn hluta ævinnar í miðju öngþveiti þessa viðfangsefnis, — hefur mótað og þróað, hugmynd, sem óhjákvæmilega mundi draga á land eitt og eitt viðamikið rek- ald, sem ella væri glötuninni ofur- selt, — ef einhverjir einhvem tíma gætu komið henni áleiðis. í uppkasti að langri reglugerð fyrir væntanlegan „Helsingjasjóð", sem búið er að liggja þannig í hraðrissuðu handriti, síðan að ég sat yfir skriftum opna bréfsins fyr- ir tveim árum, þar segir: „Tilgangur sjóðsins er að gefa illa stöddum hæfileikamönnum, á sviði lista eða vísinda ný tækifæri ef unnt er, til að inna eitthvert verk af hendi á því sviði, stórt eða smátt, þó ekki væri nema um stundarsakir." Forsendurnar, sem fyrir þessu eru: I fyrsta lagi: Margir ungir listamenn með langt háskólanám eða Iistnám að baki, menn með af- burðahæfileika og mikla þekkingu, hafa oft og þráfaldlega farið alger- lega forgörðum og tortýmst af völdum fjárskorts og óreglu, — eða grotnað niður í sinnuleysi og andlegri meðalmennsku í hinum ýmsu „skrifara“-embættum, bæði í borginni og úti á landsbyggðinni. Oft mundi eitt og eitt tækifæri, gefið á réttan hátt, hafa getað orð- ið algerra umskipta valdandi í lífi þeirra, og skapað áframhaldandi

x

Einn Helsingi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Einn Helsingi
https://timarit.is/publication/1212

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.