Skagfirðingabók - 01.01.2002, Blaðsíða 72
SKAGFIRÐINGABÓK
nær það sama: „Æ, þú verður að redda þessu.“ Og þar með var
hann þotinn, fullur af áhuga svo að gustaði af honum."
Öllu því starfsliði Sigurðar, sem Árni minnist á, ber hann
góða sögu. Verslunina rak Bjarni bróðir Sigurðar af miklum
skörungsskap og reglusemi og veit Árni ekki betur en að hún
hafí skilað góðri afkomu. „Árið 1956 var verslun þar mikil,
ekki síst vegna þess að þegar erfitt varð um launagreiðslur tóku
menn út í reikning. Það var ekki ótítt að starfsmaður hjá Sig-
urði keypti inn fyrir tvær eða þrjár fjölskyldur og fékk þannig
öll sín laun borguð. Menn tóku ótæpilega út, miklu meira en
launum þeirra nam og voru því í skuld á meðan aðrir áttu
inni.“
Ljóst má vera, að þeir Sigurður og Árni voru menn ólíkrar
gerðar á flesta lund og þess tæpast von að þeim síðarnefnda
hugnaðist til lengdar það starfsumhverfi og „frjálslegu“ við-
skiptahættir sem tíðkuðust. Atvik, sem hér verða ekki rakin,
leiddu til þess að Árni hvarf frá fyrirtæki Sigurðar síðla hausts
1956, eftir skemmri tíma en að var stefnt í upphafi. Því er full-
komlega trúað að vísvitandi halli Árni ekki á Sigurð í neinu
því efni sem hann getur um í upprifjun sinni. Og athygli er
vakin á eftirfarandi orðum hans: „Þrátt fyrir þetta dáðist ég
alltaf að flestu í fari Sigurðar, og geri enn!”
Þórir Páll Agnarsson, nú búsettur á Akureyri, var sölumaður
á fasteignasölu Sigurðar síðustu tvö árin sem hann starfrækti
hana. Kynni þeirra hófust er Þórir keypti hjá Sigurði íbúð og
fluttist til Reykjavíkur. Þóri segist svo frá, að hvert sinn er
hann mætti Sigurði eftir það, hefði hann heilsað sér af hlýju og
glaðværð og gjarnan tekið upp stutt spjall. Nokkur tími leið
síðan þar til Sigurður bauð Þóri starfið, en tilhugsun um það er
Þóri kær með því hann telur sig hafa fundið glöggt að Sigurður
var góður mannþekkjari. Allt samstarf við Sigurð segir Þórir
hafa verið með miklum ágætum og ólíkt flestri reynslu sinni
annarri í sömu veru að því leyti, að Sigurður hafi frá því fyrsta
reynst sér í senn góður félagi og jafnframt vinur í bestu merk-
70