Skagfirðingabók - 01.01.2002, Blaðsíða 122
SKAGFIRÐINGABÓK
Alls urðu námskeiðin því sjö á þessari önn og nemendur 56.
Kennarar voru: I vefnaði Margrét Jónsdóttir á Löngumýri,
Arnór Sigurðsson í leirmunagerð, Anna Rósa Skarphéðins-
dóttir í matargerð og Margrét Gunnarsdóttir kenndi spænsk-
una. Vefnaðarnámskeiðinu á Löngumýri lauk fyrir áramót en í
öðrum greinum var haldið áfram.
Með fjölritaðri auglýsingu 11. jan. 1977 sem borin var í hús
er enn boðið upp á margar greinar. Þar var gerð grein fyrir
tímalengd hvers námskeiðs, sem var í flestum greinum 20
kennslustundir, og þátttökugjöldum en þau voru yfirleitt kr.
2.000 nema í matargerð kr. 3.500-6.000. Á þessu tímabili
komust á námskeið í eftirtöldum greinum: Gerbakstur, 2
námskeið, nemendur 19. Glóðarsteiking, 2 námskeið, nem-
endur 20. Bókband, 2 námskeið, nemendur 14. Leirmunagerð,
3 námskeið, nemendur 18. Vélritun, 1 námskeið, nemendur 8.
Enska, 2 námskeið, nemendur 12. Spænska, 1 námskeið, nem-
endur 4.
Kennarar á þessum námskeiðum voru hinir sömu og fyrir
áramótin en auk þeirra kenndi Margrét Gunnarsdóttir enskuna
og Guðjón Ingimundarson bókbandið. Þennan vetur voru því
haldin 20 námskeið með um 150 þátttakendum.
'Veturinn 1977—78
Hlé varð á starfsemi Námsflokkanna haustið 1977. Á fundi
skólanefndarinnar 9- janúar 1978 gerði formaður nefndarinnar
nokkra grein fyrir starfseminni og óskaði eftir að nefndarmenn
létu uppi óskir sínar um starfsemi þeirra og nýjar námsgreinar.
Bókað er:
„Málið var rætt óformlega fram og aftur, nefndu menn ýmsar
greinar og lýstu ánægju sinni með framkvæmdina á undan-
förnum árum og lofaði formaður að sjá um málið og kvaðst
auglýsa næstu daga.“
Með fjölritaðri auglýsingu 11. janúar 1978, sem dreift var í öll
120