Skagfirðingabók - 01.01.2002, Blaðsíða 215
NOKKRIR ELDJÁRNSNIÐJA
m.h. Helgi Guðmundsson bóndi á Keldum í Sléttuhlíð og víðar
(Skagf. æviskrár 1850-1890 VII: 142-147). Sonur þeirra: a) Hall-
grímur. K.: 30. september 1850, Guðrún Magnúsdóttir, f. um
1810, d. um 1877, vinnu- og húskona. Þau voru barnlaus en hún
átti börn frá fyrra hjónabandi.
3a Hallgrímur Hallgrímsson, f. 1845, d. 1847.
2b Þorgerður Jónsdóttir, f. um 1820 á Óslandi í Óslandshlíð,
d. 1878 á Skuggabjörgum í Deildardal, húsmóðir; var hjá
foreldrum sínum í Brekkukoti til 1837, vinnukona í Hofsósi
1837-41 eða lengur, síðan húsmóðir á Marbæli í Óslandshlíð
til 1858 og eftir það á Skuggabjörgum. M.: um 1843, Jón
Jónsson, f. um 1818 í Flugumýrarsókn, d. 1887 á Marbæii
í Óslandshlíð, bóndi á Marbæii og Skuggabjörgum (Skagf.
æviskrár 1850—1890 V:180-181). For.: Jóhanna Jónsdóttir hús-
móðir og m.h. Jón Sigurðsson bóndi á Marbæli (Skagf. æviskrár
1850—1890 V:194—196). Börn þeirra: a) Júlíana Jóhanna, b) Jón,
c) Jóhanna Ingibjörg, d) Júlíana, e) Guðbjörg Kristín.
3a Júlíana Jóhanna Jónsdóttir, f. um 1844 á Marbæli, d. 1850.
3b Jón Jónsson, f. 25. ágúst 1847 á Marbæli, d. 21. desember
1925 í Hjaltastaðakoti í Blönduhlíð, bóndi víða í Skagafirði,
meðal annars á Skuggabjörgum 1878-83 og í Hringveri í
Hjaltadal 1908—13, síðan húsmaður í Enni í Viðvíkursveit (Skagf.
æviskrár 1890-1910 IV: 128-129). K.: 1875, Guðrún Stefáns-
dóttir, f. 13. ágúst 1853 á Þverá í Blönduhlíð, d. 24. febrúar 1923
í Enni, húsmóðir. For.: Guðbjörg Tómasdóttir húsmóðir og m.h.
Stefán Jónasson bóndi á Þ.verá. Synir þeirra: Hallgrímur Helgi
bóndi í Hringveri, Stefán bóndi á Sæunnarstöðum í Hallárdal og
víðar, Jón bóndi í Enni í Viðvíkursveit og Þorgeir prófastur á
Seyðisfirði.
le Egill Eldjárnsson, fæddur 1792 á Brúarlandi, drukknaði í
sjóróðri suður í Njarðvíkum 21. apríl 1813; fóstraður af Jóni
Jónssyni og Guðrúnu Hallsdóttur á Valabjörgum.
lf Eyjólfur Eldjárnsson, f. 1794 í Enni á Höfðaströnd, d. 6. júní
1866 á Kjarvalsstöðum í Hjaltadal, bóndi í Smiðsgerði í Kol-
213