Skagfirðingabók - 01.01.2002, Blaðsíða 211
NOKKRIR ELDJÁRNSNIÐJA
lb Hallgrímur Eldjárnsson, f. 1787 á Brúarlandi, d. 31. júlí
1816 á Vatnsenda í Ólafsfirði, bóndi þar, áður vinnumaður á Tjörn
í Svarfaðardal. Ókvæntur og barnlaus.
lc Þórvör Eldjárnsdóttir, f. 1789 á Brúarlandi, d. 25. maí 1837,
vinnukona í Steinnesi í Þingeyrarsókn 1816, síðar húsmóðir á
Blöndubakka í Engihlíðarhreppi og í Haga í Sveinsstaðahreppi;
M.: 4. nóvember 1824, Jón Sigurðsson, f. í september 1799 í
Hofssókn, d. 4. apríl 1870, bóndi á Blöndubakka, Haga, Flögu í
Asahreppi 1845, þá kvæntur Ingibjörgu Magnúsdóttur, í Yxna-
tungu og síðar á Kolugili í Víðidal. For.: Halldóra Jónsdóttir hús-
móðir og m.h. Sigurður Jónsson bóndi í Króki, Haga og víðar
(sbr. Ættir Austur-Húnvetninga IV: 1344). Börn þeirra: a) Gísli,
b) Sigurður, c) Halldóra, d) Guðrún, e) Guðjón, f) Sigfús.
2a Gísli Jónsson, f. 3- ágúst 1825, bóndi; barst austur á Fljóts-
dalshérað og Eiðaþinghá og þaðan til Vesturheims árið 1883,
landnemi í Akrabyggð í Norður-Dakóta, síðar bóndi í Roseu í
Minnesota (Vestur-ísl. æviskrár 11:43—4; Saga íslendinga í Norður-
Dakota, 213—214). K.: Jarþrúður Halldórsdóttir, f. 12. ágúst
1839, yfirsetukona. For.: Anna Þrúður Eiríksdóttir frá Egils-
stöðum á Völlum Jónssonar - og m.h. Halldór Einarsson. Synir
þeirra: a) Eiríkur, b) Benedikt, c) Gunnar Björgvin.
3a Eirílcur Gíslason, fæddur á íslandi en dó vestanhafs.
3b Benedikt Gíslason, fæddur á Islandi en dó vestanhafs.
3c Gunnar Björgvin Gíslason, f. 20. nóvember 1877 á Tóka-
stöðum á Fljótsdalshéraði, bóndi í Elfros; stundaði landbúnað í
Dakota og síðan 9 ár í Roseau en í Elfros frá 1904 (Vestur-ísl.
æviskrár 11:43-44). K.: 19. mars 1913, Anna Jakobína Bjarna-
dóttir, f. 24. júlí 1887, húsmóðir. For.: Elín Indíana Eirfksdóttir
húsmóðir og m.h. Bjarni Stefánsson seinast bóndi við Foxwarren,
fór til Kanada frá Óspaksstöðum í Hrútafirði. Börn þeirra voru
Bjarni verslunarmaður í Calgary í Alberta og Jarþrúður húsmóðir í
Elfros.
2b Sigurður Jónsson, f. 1826 á Blöndubakka, d. þar 7. septem-
ber 1826.
14 Skagfirðingabók
209