Jökull


Jökull - 01.01.2004, Síða 104

Jökull - 01.01.2004, Síða 104
Trausti Einarsson, prófessor, hafði árið 1954 unn- ið það afrek að mæla og gefa út fyrsta þyngdarkortið af Íslandi. Þótt það sýndi megindrættina í þyngdar- sviðinu var það gróft og ónákvæmt. Árið 1967 hóf- ust mun ítarlegri þyngdarmælingar af landinu und- ir stjórn Guðmundar en í samvinnu við Kortadeild Bandaríkjahers. Gunnar Þorbergsson sá að mestu um framkvæmd sjálfra mælinganna og vinnslu þeirra. Að auki var mælt á landgrunninu umhverfis Ísland í sam- vinnu við Sjómælingar Íslands. Stóðu þyngdarmæl- ingarnar með hléum fram til 1985. Nýtt þyngdarkort af Íslandi kom út í skýrslu á veg- um Orkustofnunar árið 1990. Höfundar voru Gunnar Þorbergsson, Ingvar Þór Magnússon og Guðmundur. Í framhaldi af því beitti Guðmundur sér fyrir því að fá hingað rússneskan jarðeðlisfræðing, Mikhail Kaban, sérfræðing í túlkun þyngdarmælinga, sem vann ásamt honum og greinarhöfundi að jarðvísindalegri túlkun þyngdarmælinganna með tilliti til jarðskorpugerðar. Voru þær niðurstöður birtar í grein árið 2002 þar sem m.a. er birt nýtt kort af þykkt jarðskorpunnar á Íslandi. Snemma á níunda áratugnum beitti Guðmundur sér fyrir því að hafin var vinna við að meta jarð- varmaforða Íslands og leiddi hann verkið. Að því kom stór hópur sérfræðinga Orkustofnunar. Matið var rúmmálsmat, sem fól í sér að reikna út hversu mik- ill varmi væri fólginn í efstu 10 km jarðskorpunnar, hversu mikið náttúrulegt varmatap jarðhitasvæðanna væri, hversu mikill hluti þessa bundna varma væri tæknilega vinnanlegur í efstu 3 km og loks hve stór hluti væri hagkvæmur til vinnslu. Þessu verki lauk með útkomu skýrslunnar „Mat á jarðvarma Íslands“ árið 1985. Þetta er enn, tveimur áratugum síðar, helsta matið á stærð jarðhitaauðlindar Íslands. Guðmundur hafði mikinn áhuga á landgrunnsmál- um, bæði frá vísindalegu og efnahagslegu sjónarmiði. Hann beitti sér fyrir ýmsum rannsóknum á landgrunn- inu í samvinnu við erlendar rannsóknastofnanir og birti árið 1974 ágæta yfirlitsgrein um landgrunnið um- hverfis Ísland. Guðmundur var frá 1969 til 1993 í ýmsum opinberum ráðgjafarnefndum um hafsbotns- mál, síðast formaður hafsbotnsnefndar iðnaðarráðu- neytisins 1984–1993. Þá starfaði hann með sendi- nefnd Íslands á hafréttarráðstefnu Sameinuðu þjóð- anna. Um 1970 hófu sovéskir jarðvísindamenn um- fangsmiklar jarðvísindarannsóknir á Íslandi. Komu leiðangrar á vegum sovésku vísindaakademíunnar hingað til lands hvað eftir annað fram til 1986. Einn þekktasti jarðvísindamaður Sovétríkjanna á þessum árum, prófessor Beloussov, hafði umsjón með þess- um rannsóknum. Mest voru umsvif þeirra á sviði jarðsveiflumælinga, bæði bylgjubrotsmælinga og end- urkastmælinga. Þessar rannsóknir fóru fram í nánu samstarfi við Jarðhitadeild Orkustofnunar og var Guð- mundur þeirra helsti samstarfsmaður. Fór hann nokkr- um sinnum til Sovétríkjanna á þessum árum í tengsl- um við úrvinnslu mælinganna. Þrátt fyrir veruleg- an ágreining um jarðfræðilega túlkun á niðurstöð- um rannsóknanna var samstarfið ávallt vinsamlegt og skoðanaskipti opin. Árið 1968 kallaði UNESCO saman alþjóðlegan vinnufund í París til að ræða aðgerðir til að styðja og hvetja til jarðhitarannsókna um víða veröld. Var Guðmundur meðal þeirra sem voru til kallaðir ásamt fjölda þekktra erlendra jarðhitamanna. Vinnuhópur- inn samdi tillögur um aðgerðir sem m.a. leiddu til stofnunar tímaritsins Geothermics, alþjóðlegs fræði- rits um jarðhitarannsóknir og til fjögurra jarðhita- skóla, í Japan, á Ítalíu, Nýja Sjálandi og Íslandi. Guðmundur tók síðar mikinn þátt í undirbúningi að stofnun Jarðhitaskóla Háskóla Sameinuðu þjóð- anna og var í undirbúningsnefnd af hálfu íslenskra stjórnvalda. Hann stýrði alþjóðlegum vinnufundi á Laugarvatni árið 1978 þar sem ákveðið var að mæla með stofnun skólans. Skólinn var síðan vistaður hjá Jarðhitadeild Orkustofnunar. Guðmundur tók mjög virkan þátt í jarðhitaráðstefnum á vegum Sameinuðu þjóðanna í Pisa 1970 og San Francisco 1975. Hann var einn af frumkvöðlum að stofnun Alþjóðajarðhita- sambandsins, IGA, árið 1989 og sat í stjórn þess og framkvæmdastjórn fyrstu tvö kjörtímabilin til 1995. Hann vann mikið þrekvirki sem dagskrárstjóri fyrstu alþjóðajarðhitaráðstefnu sambandsins í Flórens 1995. Þar voru kynnt yfir fimm hundruð fræðileg erindi og þátttakendur voru um þúsund. Guðmundur var einn af frumkvöðlum að stofn- un Jarðhitafélags Íslands árið 2000 og einróma kjör- inn fyrsti formaður þess. Í apríl 2003 var hann kjör- inn heiðursfélagi Jarðhitafélagsins. Í viðurkenningar- 104 JÖKULL No. 54, 2004
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144

x

Jökull

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.