Litli Bergþór - 01.07.2016, Blaðsíða 9

Litli Bergþór - 01.07.2016, Blaðsíða 9
Litli-Bergþór 9 TEIGUR 1967 Óttar Guðmundsson (f. 19.12.1940) og Gíslunn Jóhannsdóttir (f. 19.11.1940) fluttu í Laugarás frá Hveragerði 1967, en í Hveragerði höfðu þau búið frá 1962. Þau fengu inni til að byrja með í sumarhúsi á Sigurðarstöðum, en fluttu nokkrum mánuðum síðar í gamla bæinn í Hveratúni og þar bjuggu þau þar til þau höfðu byggt yfir sig á Teigi sumarið 1969. Þau fluttu svo frá Laugarási í júní 1970 til Lundar í Svíþjóð. Eftir heimkomu til Íslands 1988 fóru þau til Reyðarfjarðar. Þar starfaði Óttar sem byggingafulltrúi og síðar tók hann við starfi skipulagsstjóra Fjarðabyggðar 1998 og gegndi því starfi til 2011. Gíslunn starfaði sem læknaritari á Heilsugæslustöð Reyðarfjarðar frá 1989-1995 og frá 1995-2007 á Skólaskrifstofu Austurlands. Óttar og Gíslunn búa í Hafnarfirði síðan í maí 2013. Þau eignuðust 3 börn, sem eru: Kári (f.14.01.1961) búsettur á Reyðarfirði, Björk (f. 21.01.1962) búsett í Kópavogi og Margrét Drífa (f.20.04.1969) fædd meðan á dvölinni í Laugarási stóð, býr í Málmey í Svíþjóð. Ágúst Guðmar Eiríksson (f. 14.04.1937) („Gústi langi“) og Ingveldur Valdemarsdóttir (f.28.09.1933) keyptu Teig 1970 og bjuggu þar fram undir síðustu aldamót. Ágúst og Ingveldur áttu einn kjörson, sem heitir Þórhallur Jón Jónsson (f. 23.04.1967), hann býr í Kópavogi. Teigur. Ágúst, Ingveldur og Þórhallur Jón. Fjölskyldan í Heiðmörk. Við býlinu tóku Ómar, sonur þeirra og kona hans Sigurlaug Angantýsdóttir (f. 14.05.1958). Sigurlaug og Ómar eignuðust tvær dætur, en þær eru: Bára Sif (f.02.10.1991) og Anna Karítas (f.12.04.1993). Ómar og Sigurlaug keyptu Birkiflöt í desember 2002 og ráku þá garðyrkjustöð ásamt Heiðmörk til 2015, en þá seldu þau hana. Þau eru nú flutt í nýtt hús sitt í Bæjarholti 3. Þegar Ágúst og Ingveldur fluttu til Reykjavíkur 1997, keyptu þau Ingibjörg G. Einarsdóttir (f. 11.01.1965) og Sebastian Peter Patrick Becker (f. 20.03.1966) Teig. Ingibjörg býr þar nú með dóttur þeirra. Ingibjörg og Sebastian eignuðust 2 börn, sem eru: James Einar Becker (f. 06.01.1987), býr á Bifröst í Borgarfirði og Dana Heiða Becker (f. 22.09.1998). Facebook Ritstjórn vill benda lesendum Litla-Bergþórs á Facebook síðu blaðsins. Gaman væri ef fólk rifjaði upp gamlar sögur úr sveitinni - setti inn gamlar (og nýjar) myndir með skýringum á við hvaða tilefni þær eru teknar og hverjir eru á þeim. Kannski verður til grein í Litla-Bergþóri úr svona innleggi á síðuna. Kveðja, ritstjórn Litla-Bergþórs.

x

Litli Bergþór

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.