Þjóðmál - 01.09.2017, Síða 67

Þjóðmál - 01.09.2017, Síða 67
ÞJÓÐMÁL Hausthefti 2017 65 af repjuolíu og 2,0 t/ha af repjumjöli. Nægur markaður verður innanlands fyrir repju ræktun á 50 kha lands, þar sem repjuolía fer á skip og vinnuvélar og repjumjöl í dýrafóður, t.d. laxeldi. Íslenzku flugfélögin eru farin að nota meiri orku á ári en allur iðnaðurinn hérlendis og nemur losun millilandaflugsins 59% af heildar- losun Íslands í kolefnisjafngildum. Hlutdeild fiskiskipa, strandsiglingaskipa og ökutækja á landi hverfur í skugga millilandaflutninganna og nemur aðeins 33% af heildarolíunotkun landsmanna. Orðræða stjórnmálamanna um gróðurhúsaáhrifin snýst mest um umferðina innanlands, en hún sendir aðeins frá sér 8% af heildarlosun landsmanna á gróðurhúsaloft- tegundum. Skyldu hinir sömu stjórnmála- menn og sett hafa umferðinni algerlega óraunhæf markmið um losun síðan árið 2010, og halda áfram á sömu braut, gera sér grein fyrir því hversu lágt þetta hlutfall er? Á landi mun rafhreyfillinn (jafnstraumsmótor- inn) leika lykilhlutverk í orkuskiptunum. Hann er jafngamall nýtingu rafmagnsins, sem hófst af alvöru um 1880. Aftur á móti eru rafgeymar- nir enn tæknilegur og fjárhagslegur Akkilesar- hæll innleiðingar rafbílanna, en um 2020 verður sennilega búið að ráða bug á því. Brýnt er að yfirvöld styðji með ráðum og dáð (fjárframlögum) við öfluga rafvæðingu hafnanna, sem dugi fyrir öll skip við landfestar og til að hlaða stóra rafgeyma minni fiskiskipa fyrst um sinn og síðar hugsanlega togaranna. Yfirvöld fljóta sofandi að feigðarósi með upp- byggingu rafkerfisins, sem anna þarf auknu álagi vegna orkuskiptanna. Landsvirkjun virkjar bara fyrir þarfir Norðausturlands sem stendur og til að nýta vaxandi innrennsli í Þórisvatn. Orkuveita Reykjavíkur er í lamasessi og á fullt í fangi með að viðhalda gufuforða fyrir orkuvinnslu Hellisheiðarvirkjunar. Landsnet fer með hraða snigilsins og er á eftir áætlun með allar aðalframkvæmdir sínar vegna kærumála. Eina orkufyrirtækið sem hið opinbera á ekki ráðandi hlut í, beint eða óbeint, þ.e.a.s. HS Orka, er með tilburði til að virkja fyrir orku- skiptin, t.d. á Vestfjörðum. Þessi doði hins opinbera kristallast í óvandaðri markmiðs- setningu og engri sjáanlegri framfylgd aðgerðaráætlana fyrir hvert markmiðstímabil. Afleiðingin er að ríkissjóður er skuldbundinn til greiðslna á milljörðum króna í refsingar- skyni fyrir of mikla losun landsins á CO2. Fjárfestingarþörf raforkugeiranna þriggja fyrir orkuskiptin nemur 611 ma.kr. (5,5 ma. USD). Þessar fjárfestingar munu verða mjög hag- kvæmar fyrir neytendur, þær eru gjaldeyris- sparandi og þjóðhagslega hagkvæmar. Höfundur er rafmagnsverkfræðingur Heimildaskrá (1) ppm: einn hlutur af milljón („parts per million“). (2) 4,4 t/ha (tonn á hektara) er meðaltal bindingar á CO2 úr andrúmsloftinu samkvæmt rannsókn Skógræktarinnar á koltvíildisbindingu ræktunarskóga. (3) Kostnaður við skógrækt: K = 300 kISK/ha samkvæmt Pétri Halldórssyni hjá Skógrækt ríkisins. (4) „Iceland: transition to clean energy, limitations of the electric transmission system“, maí 2017. Meistaraprófsrit- gerð Gnýs Guðmundssonar, rafmagnsverkfræðings, við Háskólann í Reykjavík. (5) The Economist, 15. júlí 2017: „A green red herring“. (6) Morgunblaðið, 21. júlí 2017: „Losunin eykst þvert á markmiðin“. Baksviðsgrein Baldurs Arnarsonar. (7) Heildareldsneytisnotkun samgöngutækja innanlands 2016 var 295 kt, þar af 93% til ökutækja, 5% til innanlands- flugs og 2% til strandsiglinga. (8) Miðað er við eldsneytisverð til notenda 175 ISK/l. kISK = 1.000 ISK. (9) Gildandi rafmagnsverð ON: Orkuverð 6,09 ISK/kWh, flutningsgjald 1,73 ISK/kWh, dreifingarverð 3,99 ISK/kWh, alls 11,81 ISK/kWh, skattlagning 3,79 ISK/kWh, heild 15,6 ISK/kWh. (10) Morgunblaðið, 21. júní 2017: „Verð á heimsmarkaði og gengi lykilþættir“, Axel Helgi Ívarsson: „Um 111 kr/l renna til ríkisins fyrir hvern l af benzíni“. Benzíngjaldið hækkaði um 3,0 ISK/l 1. janúar 2017. Nokkru lægri gjöld voru af dísilolíu. Notað er meðalgjald til ríkisins 105 ISK/l. (11) The Economist, 15. júlí 2017: „Free exchange – It´s not the heat, it´s the cupidity“.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Þjóðmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.