Rökkur - 01.12.1935, Blaðsíða 14
190
R 0 K Ií U R
margt bendi til aukins þroska,
en er — þegar alt kemur til alls
— nokkur sanngirni í, aS kref j-
ast þess af rithöfundunum, að
„nýja bókin“ sé alt af betri en
þær, sem áður voru komnar?
Dvöl höfundarins hér á landi
verður honum væntanlega til
góðs á margan hátt og munu
þess allir óska, að hann eigi eft-,
ir að þroskast fyrir mátt ís-
lenskra áhrifa og að margra
góðra og vel ritaðra bóka megi
vænta frá hans hendi.
A. Th.
Forvígismenn þjóðanna.
Edward
Rydz-Smigly
hershöfðingi.
Edward Rydz-Smigly, pólski
hershöfðinginn nafnkunni, sem
var „hægri hönd“ Pilsudski
um mörg ár, flutti álirifa-
mikla ræðu i desember síðast-
liðrium, til þess að krefjast auk-
inna landvarna. Pólverjum er
meiri vorkunn en mörgum öðr-
um, þótt þeir vilji auka vígbún-
að sinn, því að bæði veldur, að
Pólland hefir sjaldnast fengið
að vera lengi í friði, þegar það
iiefir sameinast eftir að hafa
fengið frelsi á ný og Pólverjar
vilja vitanlega leggja alt í söl-
urnar til þess að koma í veg
fyrir að öðrum þjóðum hepnist
enn að leggja Pólland undir sig
og búta það sundur. Pilsudski
marskálkur helgaði Póllandi líf
sitt og starf og hann vann að
því að gcra það hernaðarlega
öflugt. Nú er hann fallinn frá,
en við þessu starfi hans hefir
raunverulega tekið Edward
Rydz-Smigly, sem er yfireftir-
litsmaður pólska hersins og
raunverulega ræður öllu um
landvarnir ríkisins og af flest-
um er talinn valdamesti maður
Póllands. Hann er sagður her-
maður i húð og hár — en þó á