Helgarpósturinn - 11.04.1980, Blaðsíða 2

Helgarpósturinn - 11.04.1980, Blaðsíða 2
2 9 „Verkalýðshreyfingin hefur aO mestu sagt skiliO viO sinn grundvöll og þau pólitisku markmiO, sem hreyfingin var byggO á f upphafi, þ.e. aO bylta þjóOfélaginu og gera þaö sósialiskt. Nú er búið að segja bless við þessi markmið frumherjanna. t dag er verkalýOshreyfingin orðin að þröngri faghreyfingu og ef tii vill væri best að stjórna apparatinu I verkalýðshreyfingunni þannig, aö þaö væri hagfræöingur sem héldi um stjórntaumana og sæi um reksturinn og hefði stúlku sér til aöstoðar, sem mataöi tölvu. Hin raunveruiega kjarabarátta er ekki fyrir hendi.” 0 ,,ÞvI veröur ekki neitaö aö verkalýöshreyfingin er f nokkurs konar tómarúmi. Hana vantar sterkan leiötoga og jafnframt aö ná til fólksins — verkaiýösins? Ég veit eiginlega ekki hvaö þarf tii aö fólkiö og þá um leiö hreyfingin vakni. Kannski nýja kreppu?” 0 Þaö er Jón Kjartansson hjá fulltrúaráöi verkalýOsfélaganna f Vest- mannaeyjum, sem þetta segir. StaOa verkalýöshreyfingarinnar f nú- tfmanum hefur orðiö mönnum umhugsunarefni. Ýmis gömlu baráttu- málin eru f höfn en ný jafnframt tekin á stefnuskrá. En hvernig skyldi verkalýöshreyfingin vera uppbyggö? Hvaöa öfl ráöa þar ferOinni? Eru ákvaröanir teknar á lýOræöisiegum grundvelli, eöa eru þaö aöeins topparnir i valdapýramtdanum sem toga i spottana? Sumir halda þvf fram, aö Alþýðusamband tslands, sé f raun útibú ákveöinna stjórn- málaflokka og valdiö liggi þá innan þeirra herbúöa? Fleirieru þeir sem kasta þessari kenningu fyrir borö og segja hana þvætting, en flestir játa þó, aö áhrif stjórnmálaflokkanna innan verkalýöshreyfingarinnar hafa veriö talsverð I gegnum tiöina og eru enn fyrir hendi. Fyrst skul- um viö ifta á spurninguna: Er verkalýöshreyfingin lýOræOisIega upp- byggö? Illa mætt á fundum „Lög og framkvæmd lýöræöis i verkalýöshreyfingunni frá hendi forystunnar eru ekki aðfinnslu- verö. Máliö er hins vegar þaö, aö hinn almenni félagsmaöiu- nýtir sér ekki nægilega rétt sinn til aö hafa áhrif.” sagöi Guöjón Jóns- son formaöur Málm- og skipa- smiðasambands Islands um þetta atriöi. „Almennt mæta félags- menn illa á fundum, nema þegar á aö taka örlagarikar ákvaröanir, svo sem um samninga.” Jón Kjartansson úr Vest- mannaeyjum tók i sama streng og sagöi: „Ég held aö þaö sé ekki óeölilegt aö fólk velti þvi fyrir sér, hvor lýöræöiö innan verkalýös- hreyfingarinnar sé nógu virkt. Þaö er á hinn bóginn eins og ann- aö meö Iýöræöiö, ef þú berö þig ekki eftir réttindum þinum þá færö þú þau ekki. Þaö er staö- reynd þó sár sé, aö félagar innan verkalýöshreyfingarinnar eru alls ekki virkir i starfi og þaö telst gott ef 10% félagsmanna mæta á félagsfundi. Þaö er þvl augljóst mál, aö þaö eru fáir út- valdir, sem sjá um stefnumótun og fara meö völdin.” „Lýöræöiö er sjálfsagt misjafnt Iverkalýöshreyfingunni. Þar sem hinn almenni félagi er ekki virkur verður alltaf fámennisstjórn, en það fer eftir þvl hvaö stjórnir við- komandi félaga leggja mikla á- herslu á virknina,” sagöi Guö- mundur J. Guömundsson formað- ur Verkamannasambands ís- lands og benti jafnframt á, að lýö- ræöiö væri ekki tæki sem virkaði sjálfkrafa. Lýöræöiö þyrfti aö nýta ef þaö ætti ekki aö verða aö dauöum bókstaf. Guömundur minntist hér aö of- an á mismikla áherslu félaganna til aö virkja sitt fólk. Skyldi þaö ræöisvald og þaö þykir hinum sömu ekki alltaf vont.” Jón Kjartansson kvaö ekki eins fast að oröi, en sagöi: „Ég verö sjálfur aö játa, aö vegna þátt- tökuleysis hins almenna fé- lagsmanns, þá finnst mér stund- um eins og ég starfi meö bundið fyrir bæöi augu. Viti ekki nægi- lega vel hug félagsmanna og þaö kemur fyrir aö ég uppgötva seint og um siðir, aö mál sem ég hef unniöaðog taliö til bóta, er sýnd- ur litill áhugi þegar til kemur hjá mlnu fólki.” Jón bætti þvl viö, aö sjálfkrafa yröi þó sambandiö á milli for- ystumanna og verkamannanna sjálfra mun nánara og gleggira I minni félögúnum heldur en þeim stóru. „Ég byrja minn starfsdag t.d. alltaf á þvl aö ganga á helstu vinnustaöi hér I Eyjum og hlera hljóöiö i fólki. Þá hafa og verið haldnir fundir á vinnustööum og hafa þeir gefiö góöa raun. Ég held aö þróunin veröi sú I auknum mæli, aö verkalýösfélögin komi til sinna félagsmanna inn á vinnustaöina.” Yfirleitt sjálfkjörið Kosningar um menn eöa lista I trúnaöarstöður innan verkalýös- félaganna eru næsta fátlöar. Aö öllu jöfnu er sjálfkjöriö I embætt- in. Samkvæmt reglugerð um kosningar til stjórnar i félögum ASl, þá skal kosiö listakosningu. Þetta þýöir aö sá eöa þeir sem hyggjast bjóöa sig fram til stjórn- ar veröa aö setja saman lista og bjóöa fram I öll stjórnarembætti og I sumum tilvikum einnig á- kveöinn fjölda trúnaöarmanna. Til þess aö bera fram lista þarf skrifleg meömæli eöa stuöning 1/10 hluta fullgildra félags- manna, þó ekki fleiri en 100 né Föstudagur ii. aprfi 1980 /7elgarpn^turinn Þaö var annar tónninn I Guö- mundi J. Guömundssyni varafor- manni Dagsbrúnar er hann var spurður um þessi mál. „Forsend- ur fyrir mótframboöslistanum áriö 1978 voru I meira lagi hæpnar og meöal annars voru á listanum fimm eöa tlu aöilar sem neituöu gjörsamlega aö vera þar og sendu frá sér yfirlýsingu þess efnis aö þeir ættu enga aöild aö þessu framboöi. Þessi listi var tindur saman á einum sólarhring. Þaö var aö öllu leyti mjög illa aö þessu staöiö, en engu aö slöur fengu þessir menn lengdan framboös- frestinn til aö gera þeim kleift aö skila löglegum lista. Þaö tókst þeim ekki og þaö var þvl ógjörn- ingur aö samþykkja þennan framboöslista sem löglegan og fullgildan.” Guömundur sagöi aöspuröur að endalaust mætti um þaö deila hvort þetta fyrirkomulag þ.e. aö þurfa jafnhliöa þvl aö bjóöa fram til stjórnar einnig aö tilnefna stóran hóp trúnaöarmanna, væri hiö eina rétta. „Félagiö er hins vegar þannig uppbyggt, aö geysi- legt vald er lagt I hendur þessu 100 manna trúnaðarmannaráði. Þaö er kosiö á vinnustööum og er kallaö saman til funda einu sinni i mánuöi. Þetta form gerir fleiri virka,” sagöi Guömundur J. Guö- mundsson. „Bjarga eigin skinni”. Ekki þarf endilega aö vera fyrir hendi málefnaágreiningur þótt mótframboö líti ljós I stjórnar- kosningum. Nýlega uröu t.a.m. stjórnarskipti I Félagi starfsfólks á veitingahúsum. Stjórnarlistinn féll I þeim kosningum: fékk 103 atkvæöi á meðan framboö stjórn- arandstæöinga fékk 183 atkvæði. En hvers vegna skyldi hafa komiö mótframboö I þessum stjórnar- kosningum? „Astæöurnar voru fyrst og fremst persónulegar,” sagði Sig- uröur Guömundsson nýkjörinn formaður félagsins I samtali viö Helgarpóstinn”. „Mér haföi veriö sagt upp sem starfsmanni skrif- stofunnar og ég var þarna aðal- lega aö bjarga eigin skinni. Þessi stjórnarskipti uröu fyrst og slöast vegna persónulegs ágreinings.” Kristrún Guömundsdóttir, frá- farandi formaöur félagsins staö- festi þetta og sagöi ágreininginn fyrst og fremst á milli manna en ekki málefna. „Þó var pólitík meö I spilinu og viö fréttum af þvi aö kosningasmalar Sjálfstæöis- flokksins heföu aöstoöaö Sigurö I kosningunum. Þá vorum viö I frá- farandi stjórn stimpluö sem kommúnistar og jafnframt aö viö værum aö eyöileggja mannorö Siguröar.” vera þannig I sumum verkalýös- félögunum, aö forystumönnum þeirra llkaöi ágætlega hin félags- lega deyfö og hiö almenna þátt- tökuleysi? Er mögulegt aö valda- öfl innan verkalýöshreyfingar- innar vilji ástandiö eins og þaö er I dag? Aö þeir vilji aöhaldsleysiö, sem skapi þeim um leiö aukiö oln- bogarými til aö ráöa málum aö eigin geöþótta? Skipulag i molum „Ég efast ekki um þaö, aö hug- arfar sem þetta fyrirfinnst vlöa innan verkalýöshreyfingarinn- ar,” sagöi ónefndur maöur innan forystusveitar ASl. „Skipulag hreyfingarinnar er meira og minna I molum og mér hefur vægast sagt fundist litill áhugi á aö glæöa áhuga verkafólks á samtökum slnum. Mér segir svo hugur, aö ein helsta ástæöan fyrir þessu sé sú, aö meö þessu hafa á- kveönir einstaklingar nánast ein- færri en 5 félagsmanna. Hvort sem þaö er vegna þessara reglna eöa af öörum ástæöum, þá liggur sú staöreynd fyrir aö oftast eru stjórnir verkalýösfélaganna sjálfkjörnar. Fyrir rúmum tveimur árum varö ofangreint kosningafyrir- komulag mjög umrætt og olli deilum Þá geröist þaö.aö mót- framboö kom gegn stjórn Dags- brúnar hér i Reykjavlk. Vegna formgalla á framboöinu var þaö dæmt ógilt, svo aldrei kom til kosningar. Benedikt Kristjánsson verkamaöur, var einn þeirra sem stóö aö mótframboöinu I Dags- brún I janúar 1971. Hann var beö- inn aö rifja upp mál þetta. 250 I framboði „Astæöan fyrir þvl, aö stjórn Dagsbrúnar vildi ekki mótfram- boöið og beitti öllum tiltækum ráöum til aö drepa þaö I fæöingu, held ég aö hafi veriö sú aö for- ystumenn Dagsbrúnar hafi talið aö öll mótatkvæöi heföu veikt þeirra stööu. Ekki sist þar sem tvennar almennar kosningar voru skammt undan — kosningar til bæjar- og sveitarstjórna og Al- þingis,” sagöi Benedikt Krist- jánsson. Hann bætti þvl viö, aö þaö væri siður en svo neitt áhlaupaverk aö bjóöa fram til stjórnar I Dags- brún. Fyrst yröi aö bjóöa fram 7 menn i stjórn, 3 menn í varastjórn og einnig stjórnir ýmissa ráöa og nefnda, þá þyrfti aö bjóöa fram I 120 manna trúnaöarráö og þetta þýddi sem sé 140-150 manns I framboö. Aö auki þyrfti 75 til 100 meömælendur. Aö framboöi til stjórnar Dagsbrúnar þyrftu þvi að standa ekki færrwen 220-250 manns. „En stjóm Dagsbrúnar brá fæti fyrir þetta framboö og bar þvl viö aö framboöiö væri ekki gilt, þar sem meömælendalistinn væri gallaöur,” hélt slðan Benedikt á- fram. „Þetta var reginfirra. Þaö var fullkomlega löglega aö þessu framboöi staöiö, en sú nefnd sem ákvaö hvaöa framboö væru gild og hver ekki úrskuröaöi framboö okkar ógilt. Þess má geta aö for- maöur þeirrar nefndar var einnig formaöur Dagsbrúnar. Þaö voru þvl hæg heimatökin fyrir stjórn Dagsbrúnar að ganga af þessu framboöi okkar dauöu.” Þaö er þvl greinilega á mis- munandi grundvelli slegist innan verkalýöshreyfingarinnar. En hér aö ofan minntist fráfarandi formaöur Félágs starfsfólks á veitingahúsum á kommúnista og Sjálfstæöisflokkinn I tengslum viö stjórnarkosningar. Þaö vekur aftur þær spurningar hvort aðil- um innan verkalýöshreyfingar- innar sé skipt upp I hópa eftir stjórnmálaflokkum. Hér á árum •Helgarpósturinn kannar tengsl toringja og almennra félaga í verkalýðshreyfingunni og hvort lýðræði sé virkt innan hennar

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.