Helgarpósturinn - 04.07.1980, Blaðsíða 3
-Helgarpósturihn Fastudagur 4- iú" l98°-
3
„Þessu f jármálamisferli
tengdust ýmsir bekktir menn.”
segir Haukur Guðmundsson.
Morðhótanir
— En Haukur, ef viö litum örlit-
ið á hina hlið þessa máls, þ.e.a.s.
hina ólöglegu handtöku þina á
Guðbjarti Pálssyni. Hvers vegna
greipstu til sliks örþrifaráðs að
planta ótolluðu áfengi i bifreið
hans til að fá hann síðan dæmdan
i gæsluvarðhald?
„Auðvitað var þetta örþrifaráð
hjá mér og taktlaus aöferð að
ýmsu leyti. Það sé ég nú. Hins
vegar fannst mér rannsókn fjár-
svikamálanna ekki þola neina bið
og bókstaflega nauðsyn á þvi að
opna þau mál. Það má nefna t.d.
að mikil pressa var á okkur
Kristjáni vegna athugana okkar
ogm.a. dundu á honum nafnlaus-
ar hringingar, þar sem honum
var jafnvel hótað lifláti ef við lét-
um ekki af rannsókn þessara
mála. Ég sá enga leið aðra færa.
Ef ég hefði reynt að opna málið
t.d. i sakadómi i Reykjavik, þá er
ég handviss um að þvi hefði veriö
kastað beint I ruslið. Ég vildi fá
nokkra daga til að koma þeim
málum góðan rekspöl þannig að
rannsóknaraðilar i Reykjavik og
kerfið gæti ekki kastað þvi frá sér
sem einhverjum órökstuddum
dylgjum. Mér fannst málið enga
bið þola og taldi að það yrði að
opna það með krafti og á opinber-
an hátt til að það yröi ekki svæft.
Ég gerði mér alltaf grein fyrir þvi
að liklegast yrði máliö tekið af
okkur Kristjáni og sent til saka-
dóms i Reykjavik, enda voru flest
brotin framin þar og aöeins
nokkrir angar þess náðu tilKefla-
vikur. En ég reiknaði ^æmið
þannig út, að ef ég hefði Guðbjart
til yfirheyrslu i nokkra daga þá
myndi ýmislegt lýsast og sterkari
stoðum rennt undir okkar grun-
semdir og málatilbúnaði I frum-
athuguninni.”
Haukur gerir nú stutt hlé á frá-
sögn sinni. Það er rétt að rifja það
upp, aö eftir aö Guöbjartur var
handtekinn reyndist það mikið
deilumál á milli Jóns Eysteins-
sonar bæjarfógeta I Keflavik og
Halldórs Þorbjörnssonar yfir-
sakadómara hvar mál-
iö skyldi tekið fyrir. Var málið
flutt fram og til baka. En þá skip-
uðust veður I lofti og athyglin fór
að beinast frá meintri okurlána-
starfsemi og öðrum fjármála-
svikum yfir að handtökunni á
Guðbjarti Pálssyni. Var hand-
taka kærð sem ólögleg og Stein-
grimur Gautur Kristjánsson var
skipaður umboösdómari i þessu
handtökumál. Þá afréð rikissak-
sóknari að sakadómur R vikur
tæki að sér framhaldsrannsókn-
ina á fjármálastarfsemi Guö-
bjarts og fleiri manna. Litið hefur
fréstaf þeúrri rannsókn siðan eins
og Haukur kom inn á hér að fram-
an.
„Ég neitaði öllu”
„Það var siðan hinn 17. desem-
ber 1976 sem mér var vikið frá
störfum I rannsóknarlögreglunni
i Keflavik vegna kæru sem borist
hafði vegna handtökunnar á Guö-
bjarti Pálssyni og Karli Guð-
mundssyni, sem reyndar sat að-
eins inni ieinn sólarhring eða svo.
Var mér vikið frá á meöan málið
væri I rannsókn,” segir Haukur.
„Ég sat siðan i löngum yfir-
heyrslum hjá umboösdómara og
þar voru og viðstaddir, rann-
sóknarlögreglumaður og fulltrúi
rikissaksóknara. Þetta voru all-
strangar yfirheyrslur, en ég neit-
aði þá alfarið aö hafa átt þátt i að
hafa komið fyrir ótolluöu áfengi i
bíl Guðbjarts. Þessi yfirheyrslu-
lota stóö I nokkrar vikur, en
hvorki gekk né rak hjá rannsókn-
araðilum. Ég neitaði öllu.
Það var ætiö lögð mikil áhersla
á þaö, i þessum yfirheyrslum, aö
fá mig til að játa fyrst og fremst
mitt ólögmæta hátterni I þessari
handtöku og ekki siður, að Krist-
ján Pétursson deildarstjóri hefði
veriö viðriðin þetta ráöabrugg
mitt. Ég var þráfaldlega spurður
hvar Kristján hefði verið þennan
handtökudag. Ég vissi ekkert um
hans ferðir þennan dag, end-'
vissi enginn um alla málavexti
varðandi handtökuna nema ég
einn. Þær stúlkur sem ég fékk til
liðs við mig, vissu ekkert, nema
það, að þær ættu að fá Guðbjart
suður I Voga. Það var þeirra eina
hlutverk. Hugmyndin og allt
skipulag var á minum snærum.”
„Ekki glæp, nei”
„Ekki glæp, nei. Ég fann mig
aldrei né finn mig núna sekan um
glæpsamlegt athæfi. Þetta var
ekki drengilega að farið, en ég
sagöi þá og segi núna, að tilgang-
urinn helgaði þá meðalið. Nauð-
syn brýtur lög. 1 öllum hinum
vestræna heimi eru lögreglu-
mönnum gefnar frjálsari hendur
um rannsókn sakamála en hér
heima. Það er auðvitað alltaf
spursmál hve langt eigi að ganga
I þvi að leggja gildrur til að koma
upp um ólöglegt athæfi. Ef ég
væri t.d. rannsóknarlögreglu-
maður i dag, þá myndi ég hugsa
mig tvisvar um áður en ég gripi
til svipaðra ráða og 6. desember
1976. En glæpamaður er ég ekki.
Taldi mig aðeins vera að fara
meðfram lögum og reglum til
þess aftur að koma upp um lög-
brot. Ég er enginn glæpamaður.
— Hvernig var sú tilfinning
fyrir þig, rannsóknarlögreglu-
manninn, að sitja i yfirheyrslu
frammi fyrir rannsóknarlög-
reglumönnum og umboðs-
dómara? Aö vera öfugum megin
við boröið.
„Ég var held ég betur undir
þessar yfirheyrslur búinn en
flestir aðrir heföu verið. Ég þekki
það hvernig yfirheyrslur ganga
fyrir sig og hvernig rannsóknar-
aöilar haga þeim. Þess vegna
hafði ég alltaf á tilfinningunni,
þegar rannsóknaraöilarnir þótt-
ust vera með eitthvað i höndunum
og svo aftur þegar þeir höföu
raunverulega eitthvaö á mig.
Þetta var að sjálfsögðu
óskemmtilegur timi og erfitt aö
halda áfram lengi aö segja ósatt.
Um leið var þetta þó lærdómsrikt
og það ætti eiginlega að vera liöur
„Ekki fagmannlega að þessari
rannsókn staðið og glöggir og
færir rannsóknarmenn hefðu átt
að vera búnir að upplýsa máliö
mun fyrr og fá mina játningu.”
i þjálfun rannsóknarlögreglu-
manna, að setja þá hinum megin
við borðið og yfirheyra þá um eitt
eða annað málefni. Þeir yröu ef-
laust betri rannsóknarlögreglu-
menn fyrir vikið og vökulli 1 yfir-
heyrslum á sakamönnum.”
„Ekki fagmannleg
rannsókn”
— En datt þér aldrei i hug að
slá af og játa allt saman, strax i
upphafi?
„Það kom að sjálfsögðu upp I
huga mér, en það er nú einu sinni
svo, að þegar boltinn er farinn að
rúlla þá er erfitt að stöðva hann.
Mér fannst að ég yrði aö leika
leikinn til enda. Innst inni vissi ég
alltaf þegar þessi rannsókn stóð
yfir, að þetta myndi aldrei halda
þegar til lengdar léti. Einhvers
staðar myndi þessi stifla láta
und an. Það geröist þó ekki fyrr en
eftir eins og hálfs árs rannsókn.
Ég verö að segja, að mér fannst
nú ekki of fagmannlega að
þessari rannsókn staöið og
glöggir og færir rannsóknarmenn
hefðu átt að vera búnir aö upplýsa
„Auðvitað var þetta örþrifaráð
hjá mér og taktlaus aöferö að
ýmsu leyti.”
I 9
Við sem viljum fylgjast með
höfum gott útvarp í bíinum
THUNDERBJRD LB/MB
Varð kr. 25.880.-
SEWJLL LB/MB/Cassetta
Verð Jtr. 93.620
CONTJNENTAL LB/MB/FM stereo/Cassetta
VerO kr. 108.750.-
PACIFJC LB/MB
VarO kr. 36.625.-
LOTUS LB/MB/FM
Vert kr. 58.000
AUDIOMOBILE LB/MB/FM
Stereo Auto Reverse
Verð kr. 175.045.-
OPK> Á LAUGARDÖGUM - SKOOIÐ Í GLUGGANA - SENDUM Í PÓSTKRÖFU
Kraftmagnarar, hátalarar og segulböndímiklu úrvali. ••••••••••••••••••••••
• •••••••••••••••••• ísetning af fagmönnum og viðgerðaþfónusta íbesta lagi.
AJttt tí! hljóm flutnings fyrir:
HEIMILIÐ - BÍUNN
OG
DISKÓTEKIÐ
D i.
ÍXdCTÍO
ARMÚLA 38 (Selmúla megin! 105 REYKJAVIK
SIMAR: 31133 83177 POSTHÓLF 1366
• •
W
Eigum jafnan mikið úrval öryggishjólma, sem hlotið
hafa viðurkenningu í Evrópu og Bandaríkjunum
sem skíða-, vélsieða-, vélhjóla-, mótorhjóla-
og bilaraliyhjálmar. Andlitshlifar úr glœru reyklitu og
gulu öryggisgleri, einnig mótorhjólagleraugu og
baksýnisspeglar i úrvali.
Verðið er ótrúlega lágt.
Sendum gegn póstkröfu.
ORYGGI A VEGUM OG VEGLEYSUM
FALKINN Suðurlandsbraut 8
ORYGGISHJALMAR
opnir og lokaðir