Helgarpósturinn - 04.09.1981, Blaðsíða 3

Helgarpósturinn - 04.09.1981, Blaðsíða 3
3 h&lrjF=irpn^tl irinn Föstudagur 4. september 1981 Hvað segja islenskir ráðamenn um hergagnaflutninga Cargolux Steingrimur Hermannsson, samgöngumálaráðherra sagði: „Ég þekki ekki meira til málsins en maöurinn á götunni. Eftir þvi sem ég veit best hafa forráöamenn Cargolux neitaB þessum ásökunum, og segjast vera með aðra flutninga, þannig að fullyrðing stendur gegn full- yrðingu. Hitt er annað mál að ef Cargo- lux, eða eitthvert annað flugfé- lag tekur þátt i ólöglegum vopnaflutningum þá er það for- dæmanlegt. En ég er ekki dóm- bær á hvort um slikt var aö ræða i þessu tilviki. Cargolux er lúxembúrgiskt fyrirtæki og ég er ósammála Magnúsi Torfa ef hann segir að það komi óoröi á Island, jafnvel þó Flugleiðir eigi hluta af þvi.” Rúnar B. Jóhannsson, fulltrúi rikisins i stjórn Flugleiða: Caravelle vél frá franska flugfé- laginu Aerotour, sem flaug frá Paris til Korsiku. Þar beið hún þar til boð komu frá israelskum stjórnvöldum, en þá flaug hún til Tel Aviv, lestaöi 250 hjólbörðum og flaug með þá til Nimes i Frakklandi. Þá hafði SETI samband við italska vopnasala, DSDP, og pantaði vél i M48 skriðdreka og varahluti i M60 skriðdreka. Þetta var siðan sent með vöruflutninga- bil frá Milan til Nimes. Fyrir M48 vélina og varahlutina i M60 drek- ana voru borgaöir rúmlega 383 þúsund dollarar inn á reikning númer 30-290-7390 i Barclays Bank i Monakó. Þann 24. október 1980 var öllum þessum varningi komið fyrir um borð i DC-8 vél frá Cargolux, á flugvellinum I Nimes, sem er lftil borg i suð-vesturhluta Frakk- lands. Farmskjölin voru fölsuð með vitneskju spilltra franskra yfirvalda. 1 þeim sagði að um væri að ræða dekk á loftpressur, vélar I jagúarbila, og varahluti i dráttarvélar og trukka. Þetta ,,Ég þekki ekki til málsins að öðru leyti en þvi sem ég hef séð i fjölmiðlum. Það hefur ekki ver- ið haldinn stjórnarfundur i Flugleiðum siðan máliö kom upp, og ég þvi ekki haft tækifæri til aö spyrja um það.” Magnús H. Magnússon, vara- formaður Alþýðuflokksins: „Það er að minum dómi mjög hæpin starfsemi að blanda sér inni vopnaflutninga, eins og hér er greinilega um að ræða. Ég er alls ekki ánægður með það”. Ragnar Arnalds, fjármála- ráðherra: „tslenska ríkið hefur ekki nokkur áhrif á ákvaröanir Cargolux, og ég hef þvi ekkert um þetta að segja. Cargolux er ekki islenskt fyrirtæki. Ef það er taliö islenskt úti heimi, þá er það vegna misskilnings”. flug, sem að sögn Salingers var flug númer 999 frá Nimes til Teheran, var þvi allsstaðar skráð sem almennt vöruflug. Þegar Helgarpósturinn spurði Salinger nánari upplýsinga um flugið og þátt Cargolux i þvi, sagði hann: „Borgaö var fyrir flugið þann 21. október 1980. Upphæðin sem Cargolux fékk var 85.027.25 doll- arar (um 670 þúsund islenskar krónur á núgengi —innskot HP) og var hún greidd inn á banka- reikning i Credit Bank i Luxem- burg. DC-8 flugvélin kom frá Luxem- burg til Nimes i Frakklandi, þar sem hún var hlaðin með einni Scorpionvél, einni M48 vél, 250 hjólbörðum á Phantom F4 vélar og varahlutum i M60 skriðdreka. Eftir að hafa losað sig við þennan farm i Teheran, fór vélin liklega til Luxemburgar aftur, þó ég vilji ekki fullyröa þaö”, sagöi Saling- er. Þegar Salinger var spurður hvers vegna Cargolux heföi oröið fyrir valinu sagði hann: „Einn Flugleiða var spurður um þessa eigendur Cargolux sagði hann: „Eftir þvi sem ég kemst næst er það Libýumaður sem stendur að bakiþessum eignarhluta. Hvort hann er tengdur núverandi eða fyrrverandi valdhöfum i Libýu veit ég ekki. Meira hefur ekki fengist upplýst”. Bergur Gislason, er nýskipaður fulltrúi Flugleiða i stjórn Cargolux og hann sagði engan vafa á þvi að á bak við þessa nýju kaupendur stæði libýskur maður. „Hins vegar veit ég ekki hvort hann er tengdur stjórnvöldum þar. Hann virðist reka tvö félög, en annars er ómögulegt að vita hvernig þetta er samansett. Maðurinn virðist búa á Italiu. Ég hef hitt hann og séð og þetta er afskaplega geðslegur maður. Hann er hreintrúaður mú- hameðstrúarmaður og heldur fast við sinar islömsku reglur”, sagði Bergur Gislason. Annarsstaðar hér i opnunni er frásögn af flugi 999 frá Nimes til Teheran. Það er ekki i fyrsta skipti sem nafn Cargolux er orðað við hernaðarbrölt. Heimildamaður Helgarpósts- ins i Luxemburg sagði um það orðspor sem færi af Cargolux i Luxemburg, að „þeir eru þekkt- irfyrir að lesa pappirana, en að opna ekki kassana”. Nú nýlega hafa borist fréttir af þvi að Cargolux hafi staðið i flutning- um i tengslum við hernaðar- brölt i Afriku. Þetta var borið undir Sigurð Helgason: „Þetta er algjör misskilningur. Ég veit ekki til þess að neitt slikt hafi átt sér stað. Félagið hefur haft verkefnifyrirLibýu en þau hafa ekki tengst hernaði,” sagði Sig- urður. Einar Ölafssson var spurður hvort Cargolux væri með starf- semi I Libýu og hann neitaði þvi. Þá var hann spurður hvort ekkert væri hæft i þvi að Cargo- lux væri með Boeing 707 vél i notkun i Libýu i þágu United African flugfélagsins (sem Khadhafi stjórnin á). „Nei”, svaraði Einar. „Við erum með eina 707 vél i Libýu, en hún flýgur á vegum hesta- klúbbs með veðreiðahesta viös- vegar um Afriku. Það er eina vélin og hún er litið notuð”. Þáttur Cargolux i vopnafiutn- ingum og fréttir þar af hafa vakið athygli viða um Evrópu, og ma. var vitnað til frétta- skýringar Magnúsar Torfa Ólafssonar i Helgarpóstinum i frönskum fjölmiðlum. Helgarpóstinum er einnig kunn- ugt um að fjölmiðlar i Luxem- burg eru farnir að kanna nánar starfsemi Cargolux i kjölfar frétta um hergagnaflutninga félagsins og heimildamaður Helgarpóstsins i Luxemburg hélt þvi fram að m.a. beindist athygli þarlendra að þvi að nú undanfarið hefði DC-8 vél frá Cargolux, sem nú flygi undir merki United African i Libýu, lent i Luxemburg alla virka daga og væri talið aö vélin flytti einhverskonar rafeindabúnað sem upprunninn væri i Bandarikjunum, frá Luxem- burg til Libýu. Einar ólafsson, forstjóri Cargo- lux og Sigurður Helgason, for- stjóri Flugleiða: Þeir neituöu báöir Libýutengslum Khadafy — hann hefur alla þræði i L i b ý u i höndum sér Steingrfmur Hermanns- son Ragnar Arn- alds Ólafur Ragnar Grimsson Ólafur G. Einarsson Magnús H. Magndsson Ólafur Ragnar Grimsson, for- maður þingflokks Alþýöu- bandalagsins: „Sé þaö rétt að Cargolux hafi flutt vopn ber að fordæma þaö harölega. Slikt á ekki að vera gróöavegur fyrir fyrirtæki með islenskri eignaraöild. Það getur vissulega skemmt fyrir hags- munum ísiendinga i samskipt- um við þjóðirnar I þessum heimshluta, vegna þess að Cargolux er viða taliö islenskt fyrirtæki. Nauðsynlegt er að þeir aðilar sem hlut eiga að máli geri hreint fyrir sinum dyrum.” frönsku mannanna sem hafði meö þetta að gera, þekkir mjög vel til i heimi fragtflugs, og hann hefur liklega þekkt nafn Cargolux. Cargolux hefur siðan verið reiðu- búið aö taka flugiö að sér þegar þess var óskað”. Salinger sagði aðspuröur vel hugsanlegt (quite possible) aö Cargolux hafi ekki vitað annaö en það sem stóð i farmskjölunum fölsuöu. Fréttirnar af þessu flugi hafa verið bornar undir Einar Ólafs- son forstjóra Cargolux af islensk- um dagblöðum, og hann hefur þá haldið sig viö það sem stendur i farmskjölunum. pK Þegar Helgar- [7> Ólafur G. Einarsson, formað- ur þingflokks Sjálfstæöisflokks- ins: „Ég las grein Magnúsar Torfa meö athygli og rengi i sjálfu sér ekki þaö sem þar er sagt. Þótt það kunni aö hljóma sem þversögn rengi ég heldur ekki það sem framkvæmda- stjóri Cargolux hefur sagt um farminn sem fluttur var til Iran. Hið óhugnanlega er ef félag sem stjórnað er af Islendingum og aö hluta til i eigu Islendinga hefur tekið þátt i slikum flutningum vitandi eða óafvitandi. Klerka- veldið i tran er ekki svo geðslegt að stuðningur við þaö sé eitt- hvað til aö hrópa húrra fyrir. Meira hef ég ekki um þetta aö segja”. Bergur Gislason, fulltrúi Flugleiða i stjórn Cargolux: „Ég er nú svo nýkominn inni þetta að ég hef ekki nánari upp- lýsingar en þær sem veriö hafa i blöðum. Ég hef ekki verið á stjórnarfundi hjá Cargolux enn- þá”. Það var DC-8 vél Cargolux sem fór flugiö fræga til Teheran Bræðraborgarstig1-Simi 20080- (Gengiðinn frá Vesturgötu)

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.