Helgarpósturinn - 17.06.1987, Blaðsíða 3

Helgarpósturinn - 17.06.1987, Blaðsíða 3
FYRST OG FREMST HELGARPÚSTURINN UMMÆLIVIKUNNAR EINKAMÁLADÁLKUR Dv er alltaf skemmtilegur aflestrar. Ekki alls fyrir löngu birtist þar auglýsing sem hljóðar svona. „Ég er hvorki húsleg, fögur né bráð- ung og gallarnir eru ekki færri en björtu hliðarnar. Mig langar til að sofa hjá en er leið á einnar nætur kynnum. Langar í bíó og leikhús en ekki alltaf ein. Vil nána vináttu en alls ekki sambúð og kröfu um bindingu..." Hispurslaus auglýsing þetta og hreinskilinn auglýs- andi. . . VIKINGUR, sjómannablaðið sem Farmanna- og fiskimanna- sambandid gefur út, er að þessu sinni allveglegt og sneisafullt af efni, enda ástæða til því verið er að halda upp á hálfrar aldar afmæli sambandsins. Meðal ann- ars er rætt við Guömund Péturs- son, fyrrum forseta þess, sem segir að öryggismálum sjómanna hafi verið hörmulega illa sinnt og það stafi mikið til af sinnuleysi og kæruleysi sjómannanna sjálfra. ,,Og flest óhöpp sem hafa orðið, bæði á sjó og eins á vinnustöðum sjómanna í landi, má rekja til gæsluleysis. Kæruleysi er þjóðar- einkenni okkar. Við erum svo kappsamir og ætlum okkur gjarnan um of. Ég hef kynnst fjöl- mörgum mönnum sem líta á það beinlínis sem vanmat á sínum hæfileikum ef öryggisatriði eru brýnd fyrir þeim. Mönnum finnst jafnvel eftirsóknarvert að komast í hann krappan og geta sagt krass- andi sögur í samræmi við það.“ Ljótt er að heyra, en Guðmundur bætir því við að einhver hugar- farsbreyting hafi orðið hin síðari ár, blessunarlega. BIFREIÐAFLOTI ríkisins 1986 reyndist telja alls 913 bíla í lok síðasta árs. Hér er átt við fólks- bifreiðir jafnt sem sérhæfðar bifreiðir. í skýrslu bíla- og véla- nefndar kemur meðal annars í ljós að elsta bifreið flotans er fyrirbæri að nafni GAZ 63 frá árinu 1959, nálega þrítug eign Rafmagns- veitna ríkisins. Landgrœdslan á Unimog 404 frá 1962, væntanlega vörubifreið, og hjá Ríkisútvarpinu er að finna tvær Mercedes Benz LP-bifreiðir frá 1962. Næst í röðinni er einnig Mercedes Benz- bifreið hjá flugmálastjórn, frá árinu 1964. Árgerð 1987 var farin að streyma inn í lok ársins hjá ríkinu, t.d. má nefna Toyota Landcruiser hjá Jóni Helgasyni dóms- og kirkjumálaráðherra, Oldsmobile hjá Steingrími Hermannssyni forsætisráðherra og Toyota Corolla hjá fíknó. Það vekur athygli okkar að Stein- grímur hefur í forsætisráðherratíð sinni fengið bíla eiginlega alls staðar annars stðar frá en hjá SIS frænda, fram að Oldsmóbílnum, ráðuneytið á meðal annars þrjá Benza. Það er annað en hjá honum Davíö Oddssyni borgar- SMARTSKOT stjóra, sem lætur sig dreyma um Benz, en neyðist samvisku sinnar vegna til að versla við SÍS, helsta skelfi einkaframtaksins. í VIKUNNI var greint frá niður- stöðum í könnun Félagsvísinda- stofnunar fyrir Lögfrœdiþjón- ustuna hf. um afstöðu fólks til hinna ýmsu stétta. Kom meðal annars fram að 13% aðspurðra töldu lögfræðinga óheiðarlegri en aðrar stéttir. Aðeins fullorðnir voru spurðir (18-75 ára) og þýðir þetta hlutfall þá að liðlega 20 þúsund manns á íslandi telji lög- fræðinga óheiðarlegri en aðrar stéttir. Svipaður fjöldi hafði hið sama um endurskoðendur að segja. Aftur á móti fengu prestar góða einkunn og ætti það varla að koma á óvart, því hverjir eru heiðarlegir ef þeir eru það ekki? Samt sem áður er það mat 1,7% fullorðinna íslendinga að prestar séu óheiðarlegri en aðrar stéttir. Þó hlutfall þetta virki lítið og pervisið í samanburðinum við lögfræðingana og endurskoð- endurna þýðir þetta samt að í þjóðfélaginu ganga um tæplega 2800 manns með þetta viðhorf til presta! AF Félagsvísindastofnun er það annars að frétta að nýlega fram- kvæmdi hún á eigin vegum viða- mikla 2000 manna rannsókn á viðhorfum landsmanna til hinna ýmsu þjóðmála. Rannsókn þessi var gerð eftir kosningarnar og var meðal annars beðið í henni um einkunnagjöf á stjórnmála- mönnum. Slíkt var gert í fyrra og því ljóst að mjög fróðlegur saman- burður liggur í loftinu, t.d. hvaða áhrif Alberts-málin höfðu. 17. júní Þjóðlegur fróðleikur, það er mitt fag, og þekkingu miðla ég glaður. Jón Sigurðsson forseti fæddist í dag, vor fyrsti landnámsmaður. Niðri. „Það hefur ekkert farið frá Borgara- flokknum til neinna annarra. Borgara- flokkurinn hefur ekki skrifað neitt bréf eða fengið bréf." ALBERT GUÐMUNDSSON, FV. RÁÐHERRA, í DV 15. JÚNÍ UM MEINTA AÐILD FLOKKSINS AÐ STJÓRNARMYNDUNARVIÐRÆÐUM Varst þú sleginn þegar þeir byrjuðu að bjóða? Einar Sveinsson „Nei, alls ekki, og ég sló engan og ekkert var slegið." Hvernig má það vera? „Við erum með tölvustýrt uppboðskerfi sem sér að veru- legu leyti um uppboðið. Það virkar þannig að inn í tölvuna eru stimplaðar allar upplýsingar um fiskinn, tegund, þyngd, stærð og magn. Einnig hefur tölvan upplýsingar um lágmarksverð, kaupendurna og hvað þeir ætla að kaupafyrirmikið. Kaupendurnirfá íhendurnarspjöldþegar þeir skrá sig og halda þeim uppi þangað til verðið er orðið of hátt fyrir þá. Síðan endar þetta þannig að einn stendur eftir sem kaupandi. Hann merkir sér síðan kassa og segir hve marga hann vill. Þessar upplýsingar eru skráðar í tölv- una sem sér síðan um útreikninga." Hvernig gekk þennan fyrsta dag? „Þetta fór fram úr okkar björtustu vonum. Við hefðum ekki getað byrjað á verri degi, því daginn áður var sjó- mannadagurinn og allir í fríi. Svo erfrí sautjánda júní þann- ig að ekki var nema um einn vinnudag að ræða hjá fisk- vinnslustöðvunum. Auk þess hefur einnig verið mikið framboð af fiski undanfarið þannig að við bjuggumst ekki við miklu." Hefðuð þið ekki getað byrjað einhvern annan dag? „Einhvern tíma varð að byrja og þetta var fyrsti mögu- leikinn. Það varekkert sem hét „elsku amma" með það, við ákváðum að byrja og það tókst frábærlega." Núna í næstu viku tekur til starfa fiskmarkaður í Reykjavík. Óttist þið ekki samkeppnina? „Nei, ekki get ég nú sagt það. Ég held að það sé nóg pláss fyrir tvo markaði á þessu sama svæði og ég held að það sem gerðist hérna í gær hafi fært okkur heim sanninn um það". Eru fisksöluhættir íslendinga að breytast? „Ég held að ekki leiki nokkur vafi á því. Islendingareru að átta sig á því hvað það er þægilegt að fara með vörur sínar á markað þar sem framboð og eftirspurn ráða verði og ég hef þá trú að þetta sé bara byrjunin." Hvað hefur þú starfað við þetta lengi? „Þetta var nú mitt fyrsta uppboð í gær. Ég ákvað að taka þessu starfi fyrr í vetur og í þeim tilgangi að sjá hvernig þetta færi fram annars staðarfór ég í tíu vikna ferðalag um Norður-Evrópu. Er sama fyrirkomulag haft á fiskmörkuðum þar og hér? „Aðferðirnar eru mjög mismunandi og fara svolítið eftir löndum. í Hollandi sáum við mjög ft'llkominn markað þar sem kaupendurnir notuðu stýripinna sem þeir gátu notað til þess að stöðva boð sín. Annars staðar var gamla aðferð- in með hamrinum notuð og verð ég að viðurkenna að mér tókst aldrei að greina orðaskil og þar með skilja hvað þeir væru að segja. Samt tel ég mig vera nokkuð sleipan í dönsku, þýsku og ensku. Einnig er mismunandi hvernig kaupendurnir gefa merki um að þeir séu að bjóða. í Þýska- landi er það nokkuð augljóst því þar rétta menn bara upp höndina. Hins vegar í bæði Danmörku og í Englandi er allur gangur á þessu. Fólk strýkur eyrað á sér, deplar augunum og allt hvað eina. Ég gat oft á tíðum ekki séð hvernig menn gáfu merkin. Til dæmis var ég eitt sinn staddur á fiskmark- aði í Skotlandi og það varfrekar kalt í veðri. Ég var með sult- ardropana í nefinu og á uppboðinu varð mér það á að strjúka þá burt af nefinu með erminni. Þá sagði einn skosku kaupendanna við mig: „Heyrðu, gerirðu þér grein fyrir að þú varst að kaupa þennan stafla sem þú ert að horfa á!" Hvað þarf góður uppboðshaldari að hafa til að bera? „Eins og þetta gengur fyrir sig hjá okkur hérna í Hafnar- firðinum held ég að einu eiginleikarnir sem hann þarf að hafa til að bera séu góð athyglisgáfa. Maður þarf að hafa vakandi auga með spjöldunum og taka eftir hvenær þau eru látin síga. Einnig held ég að uppboðshaldarinn eigi að geta örvað viðskiptin með smálagni." Einar Sveinsson forstjóri stjórnar einnig uppboöum hjá fyrirtæki sínu, Fiskmarkaöinum hf. í Hafnarfirði, en hann er sá fyrsti sinnar tegundar hér á íslandi og tók til starfa síðastliðinn mánudag. HELGARPÓSTURINN 3

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.