Helgarpósturinn - 17.06.1987, Blaðsíða 10

Helgarpósturinn - 17.06.1987, Blaðsíða 10
HP HELGARPÓSTURINN Ritstjóri: Halldór Halldórsson Ritstjórnarfulltrúar: Helgi Már Arthursson Sigmundur Ernir Rúnarsson. Blaðamenn: Anna Kristine Magnúsdóttir, Áslaug Ásgeirsdóttir, Friðrik Þór Guðmundsson, Garðar Sverrisson, Gunnar Smári Egilsson, Jónína Leósdóttir, Kristján Kristjánsson Sigríður H. Gunnarsdóttir, Ljósmyndir: Jim Smart. Útlit: Jón Öskar Hafsteinsson Prófarkir: Sigríður H. Gunnarsdóttir. Framkvæmdastjóri: Hákon Hákonarson. Skrifstofustjóri: Garðar Jensson. Auglýsingastjóri: Hinrik Gunnar Hilmarsson. Auglýsingar: Bergþóra Sigurbjörnsdóttir, Sigurrós Kristinsdóttir. Dreifing: Garðar Jensson (heimasími: 74471), Guðrún Geirsdóttir. Afgreiðsla: Bryndís Hilmarsdóttir. Sendingar: Ástríður Helga. Ritstjórn og auglýsingar eru að Ármúla 36, Reykjavík sími 681511. Afgreiðsla og skrifstofa eru að Ármúla 36, sími 681511. Útgefandi: Goðgá h/f Setning og umbrot: Leturval sfí. Prentun: Blaðaprent h/f. LEIÐARI 20 ÞÚSUND KRÓNA VELFERÐ Afleiðingar flugslysa, eins og annarra slysa, eru oft hörmulegar. Oftar en ekki er um dauðaslys að ræða. Og venjulega sitja fjölskyldur, ættingjar eða ástvinir eftir og ekkert fær bætt þann missi sem menn verða fyrir. Tryggingar eða tryggingabæt- ur bæta ekki þá sem hrifnir eru á brott fyr- irvarlaust. Stundum í blóma lífsins. Fyrir rúmu ári varð alvarlegt flugslys í Ljósufjöllum á Snæfellsnesi. Farþegar og flugmaður biðu bana í þessu alvarlega slysi og fátt eitt fær bætt manntjónið sem þá varð. Tveir menn lifðu af. Tveir ungir menn. Annar ungu mannanna býr í Bolungar- vík með fjölskyldu sinni í dag og er saga hans rakin hér í blaðinu. Ótrúlegt hugrekki og bjartsýni einkenna sögu unga manns- ins. Ódrepandi viljastyrkur hans vekur í senn undrun og aðdáun. Fólk í Bolungarvík hefur rétt honum og fjölskyldu hans hjálparhönd — og finnst það vafalaust sjálfsagt. En fyrir mann, sem lent hefur í raunum á borð við það sem hann hefur gengið í gegnum, er það ekki nóg. Velferðarkerfið — öryggisnetið sem við viljum að sé til — er ekki síst til að koma til móts við þarfir þeirra er lenda í hörmu- legum slysum. Og í fljótheitum trúa menn því, að sá sem lendir í jafn alvarlegu slysi og ungi maðurinn í Bolungarvík hljóti að eiga rétt á myndarlegum bótum. í fyrsta lagi til að ná heilsu á ný og í öðru lagi til að tryggja að fjölskylda viðkomandi verði ekki fyrir röskun umfram þá þungu byrði sem óhjákvæmilega leggst á fjölskyldur þeirra sem verða fyrir alvarlegum slysum. Ungi maðurinn í Bolungarvík fær að eig- in sögn undir tuttugu þúsund krónum á mánuði til að lifa af. Þetta er sú upphæð, sem velferðarkerfið býður upp á. Undir tuttugu þúsund krónum á mánuði. Og bæturnar sem hann kann að fá vegna slyssins í samræmi við gildandi tryggingarákvæði í loftferðalögum, verða rúmar átta hundruð þúsund krónur. Loftferðalög voru sett árið 1964. Og bæturnarsem þá voru greiddar vegna svo alvarlegra slysa sem hér er um rætt ættu að samsvara í dag rúmum tólf milljónum króna séu þærframreiknaðareftiralgengri vísitölu. En, þær hafa rýrnað, og eru sem fyrr segir um átta hundruð þúsund. Hér er við löggjafann að sakast. Alþingi og ráðherrar samgöngumála eru þær stofnanir, sem tryggja ættu að lög héldu merkingu sinni og að bætur á borð við þær sem hér eru til umræðu rýrnuðu ekki. En löggjafinn, eða framkvæmdavaldið, hefur ekki staðið sig. Það er hreint hneyksli að bætur skv. loftferðalögum skuli hafa fengið að rýrna. Og það er ráðamönnum engin afsökun að vísa til verðbólgu undan- farinna ára í því sambandi. Flugfélög víða um heim og ríkisstjórnir hafa með einum eða öðrum hætti komið því svo fyrir að fólk í flugi njóti trygginga í samræmi við það sem gerist og gengur í annars konar ferðum. Og það stoðar lítt fyrir embættis- menn sem vilja afsaka hneykslið, eða helst að tala ekki um það, að bera við alþjóða- samþykktum og seinagangi löggjafans þegar svo alvarleg mál eru annars vegar. Ef Islendingar eru aðilar að vondum al- þjóðasamþykktum, þá eigum við að búa okkurtil okkareigin samþykktir, sem girða fyrir að slysabætur rýrni ofan í hlægilegt lágmark. Ungi maðurinn í Bolungarvík lét afleið- ingar flugslyssins ekki buga sig. Hann lét það ekki buga sig, þegar hann komst að því að „velferðarkerfið" tryggir honum undirtuttugu þúsund krónum á mánuði til framfærslu fjölskyldu, og þegar hann frétti af því að hann væri tryggður fyrir smánar- lega lága upphæð hélt hann stillingu sinni — og óbilandi bjartsýni. Það er jafn ótrúlegt og viðhorf hins opin- bera til þessa alvarlega máls. ÁRSRIT KVENRÉTTINDAFÉLAGS ÍSLANDS, „19. JÚNÍ", ER KOMIÐ ÚT Fœst í bókaverslunum, á blaösölustööum og hjá kvenfélögum um land allt. KVENRÉTTINDAFÉLAG ÍSLANDS ■ síðustu viku sögðum við frá vel heppnaðri skótausauglýsingu, sem gerð var í Flugstöð Leifs Eiríkssonar og Vilhjálmur Rafnsson átti þátt í að gera. Onákvæmni gætti í smáfrétt- inni. Puffins-skórnir sem við ætluð- um að segja frá breyttust í Act-skó og niður féll nafn Bjarna Dags Jóns- sonar, sem viðriðinn var gerð myndarinnar... mennirnir telja sig geta sannað að þeir hafi ýmislegt til síns máls. Þeir hafa undir höndum vigtarseðla er sýna að mun meira af fiski fór í gáma en þeir fengu greitt af mark- aðsverði erlendis. Þeir leituðu til viðskiptaráðuneytisins til að fá úr þvi skorið hvort þessi fiskur hefði verið fluttur úr landi, en þar varð fátt um svör. Því leituðu þeir aðstoð- ar sjómannasambandsins. Hér er um mikið hagsmunamál að ræða fyrir sjómenn. Verðmismunur á fiski hér heima og erlendis getur verið allt að 100%. Mál skipshafnar- innar á Jóni Vídalín er síður en svo einsdæmi og það er þekkt að út- gerðir hafi greitt sjómönnum aftur- virkt eftir að upp um þær komst... LAUSN Á SPILAÞRAUT ...Tígulás að heiman t öðrum slag. Svo fremi sem tígullinn er ekki 5—0 eru 9 slagir gulltryggðir: ♦ 73 <? K8 ❖ D82 + KG6542 <l> 982 <? D10654 ❖ K1074 + 3 ♦ G1054 G932 o 3 + A1097 u tflutningur á ferskfiski í gámum hefur verið mikið til um- fjöllunar að undanförnu. Hins vegar fer minna fyrir því að sjómenn telja sig oft hafa verið svikna af útgerð- amönnum um hlut í þessum við- skiptum. Eftir margítrekaða beiðni sjómanna á Jóni Vídalín hefur Sjó- mannasambandið nú óskað eftir því að kanna bókhald fyrirtækisins Meitilsins hf. í Þorlákshöfn til að fá úr því skorið hvort útflutningur á gámafiski hafi verið meiri en fram kom í uppgjörum áhafnarinnar. Sjó- ♦ AKD6 A7 <> AG965 ♦ D8 Ef tígullinn HEFÐI skipst 5—0 hefði verið nauðsynlegt að treysta á að laufið gæfi 5 slagi. í þessari stöðu er tígli vitanlega spilað aftur og vestur setur smátt, annars fáum við 4 slagi á litinn. Ef austur á K10 er sama upp á teningnum. Drottning á slaginn og ef við höfum notað puttana rétt er ljóst að níu slagir fást nú með því að snúa sér að lauflitnum. í tvímenningi, hinsvegar, spila all- ir dauðlegir menn laufdrottningu í 2. slag. INNRÖMMUN ALHLIÐA INNRÖMMUN, SMELLURAMMAR, TILB. ÁLRAMMAR LAUGARDAGA TIL KL. 16.00 NÆG BfLASTÆÐI 10 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.