Skagfirðingabók - 01.01.2002, Blaðsíða 207
NOKKRIR ELDJÁRNSNIÐJA
DRÖG AÐ NIÐJATALI ELDJÁRNS HALLGRÍMSSONAR
eftir HALLDÓR ÁRMANN SIGURÐSSON
la Kristín Eldjárnsdóttir, f. 1768 á Völlum í Svarfarðardal, d.
23. ágúst 1843 í Sundi í Höfðahverfi. Hún var sem í Eldjárnsþætti
segir laundóttir Eldjárns og Ragnhildar Tómasdóttur; var hjá
móður sinni í Svínárnesi á Látraströnd 1792, vinnukona á
Jarlsstöðum í Höfðahverfi 1796—1797 og 1801 í Laufási hjá
Snjólaugu föðursystur sinni, húsmóðir í Kolgerði í Laufássókn
1803—1806, húskona á Skeri 1807—1808 en síðan vinnukona í
Svínárnesi í a.m.k. þrjú eða fjögur ár, á Sandi í Aðaldal
1816—1820, Hofteigi á Jökuldal 1820—1822 og aftur á Sandi
1822—1828 en var síðan í Sundi hjá Sigurbjörgu dóttur sinni.
Kristín mun hafa verið vel gefin kona. Um hana hefur Indriði
Þórkelsson ritað talsverðan þátt og vísast til hans (Indriði Þórkels-
son: Milli hafs og heiða, bls. 109—120). Barnsfaðir hennar, árið
1792, var Sveinn Einarsson nokkur, en um hann er ekkert frekar
vitað; e.t.v. er þetta þó Sveinn sá Einarsson sem varð legorðs-
sekur á Stóra-Eyrarlandi í Hrafnagilshreppi árið 1775 eða 1776
(Legorðsreikningar x Manntalsbók Eyf. 1776). Sonur þeirra: a)
Stefán. M.: 9- febrúar 1797, Jón Ólafsson, f. 1764 á Skriðu í
Hörgárdal d. 11. ágúst 1838, þá sagður kvæntur niðursetningur í
Grýtubakkasókn, vinnumaður á Jarlsstöðum 1797 og í Laufási
1801, bóndi í Kolgerði 1803—1806. Af fátæktarsökum slitu þau
Kristín samvistir sínar skömmu eftir að þau hættu búskap í
Kolgerði. Jón var síðan vinnumaður eða húsmaður, örfátækur og
umkomulaus. For.: Sigríður Bjarnadóttir húsmóðir og m.h. Ólaf-
ur Ásmundsson bóndi á Þrastarhóli í Hörgárdal og víðar. Börn
Kristínar og Jóns: b) Sigurbjörg, c) Sigríður, d) Sigurður, e) Jón,
f) Kristján.
205