Þjóðviljinn - 28.03.1985, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 28.03.1985, Blaðsíða 1
HEIMURINN IANDIÐ Gróði Járnblendiverksmiðjunnar Við borgum brúsaim! Ef Járnblendiverksmiðjan á Grundartanga greiddi sama verð fyrir raforkuna og ísal, hefði gróðifyrirtœkisins á síðasta ári orðið 20 miljónir en ekki 132 miljónir. Neytendur borga brúsann, segir Ólafur Ragnar Grímsson stjórnarmaður í Landsvirkjun Járnblendiverksmiðjan á Grundartanga greiðir nú helmingi lægra verð fyrir rafork- una en dótturfyrirtæki Alusuisse í Straumsvík. Ef Járnblendifélagið hefði greitt Landsvirkjun sama verð á síðasta ári og Isal, hefði fyrirtækið orðið að greiða Lands- virkjun 111,9 miljónir króna til viðbótar og þar með hefði hagn- aður þess á síðasta ári ekki orðið 132,2 miljónir króna heldur að- eins 20,3 miljónir. Þessar upplýsingar koma fram í fréttatilkynningu sem Ólafur Ragnar Grímsson stjórnarmaður í Landsvirkjun sendi frá sér í gær. Þar kemur fram að nú er meðal- verð til Járnblendifélagsins 6,6 mill en Alusuisse greiðir 12,6 mill að meðaltali. Segir Ólafur að Landsvirkjun hafi verið knúin til að selja Járnblendifélaginu raf- orkuna langt undir kostnaðar- verði en almenningur greiði síðan þann rekstrarstyrk í gegnum hærra verð á raforku. A sama tíma og raforkuverðið til Járn- blendifélagsins er6,6mills þurfa almenningsveiturnar að greiða 32 mills. í lok fréttarinnar frá Ólafi Ragnari segir: „Þegar forstjóri Járnblendifélagsins hælist nú um í fjölmiðlum vegna hagnaðar fyrirtækisins er óhjákvæmilegt að benda á staðreyndirnar um orku- verðið. f raun greiðir almenning- ur í landinu verulegar útflutningsuppbætur til Járnblendiverksmiðjunnar í gegnum hið lága orkuverð.Afurð- ir verksmiðjunnar eru að þessu leyti í sama flokki og ostar og kindakjöt." - v. Gljúfrasteinn Fundur með frændum Ljósmyndin af Megasi og Hall- dóri Laxness var tekin á Gljúfra- steini í gærkveldi. Þeir voru að ræða um Passíusálmana við Gunnar Kvaran fyrir útvarpsþátt á laugardaginn. Um helgina er ít- arlegt viðtal við Megas um Passíusálmana í Sunnudagsbiaði Þjóðviljans. Skyldleiki þeirra skálda er þann veg að Þórunn Sveinsdóttir langamma Megasar var systir Guðrúnar Sveinsdóttur ömmu Halldórs Laxness. Þær systur voru frá Beigalda. (Mynd: E.Ól.). Sjóslys Fimm manna saknað Bervík SH-43 frá Ólafsvík sökk ígœrkvöldi. Gúmbjörgunarbátur fannst mannlaus á reki. Spurðist síðast til bátsins er hann varskammt undan Rifi á leið úr róðri Fimm skipverja er saknað eftir að Bervík SH-43 frá Ólafsvík sökk í gærkvöldi. Brak fannst úr bátnum við leit og gúmbjörgun- arbátur,en ekkert hefur spurst til mannanna fimm sem voru í bátn- um. Það var um kl. 21.00 í gær- kvöldi sem Slysavarnarfélaginu barst beiðni um að hefja leit að 36 tonna bát, Bervík SH-43 sem gerður er út frá Ólafsvík. Síðast heyrðist til bátsins um kvöld- matarleytið í gær þar sem hann var á heimleið, ekki langt undan innsiglingunni í Rif við Hellis- sand.Slæmt veður var þar vestra í gærkvöldi, norðaustan strekking- ur og 9 vindstig. Slæmt var í sjó af þessum sökum. Strax er spurðist að Bervík kom ekki til hafnar á tilsettum tíma í gærkvöldi hófu 15-20 bátar sem gera út á norðanverðu Snæ- fellsnesi leit, en án árangurs þeg- ar síðast fréttist. Björgunar- sveitarmenn frá deildum Slysa- varnarfélagsins á Hellissandi og í Ólafsvík gengu og fjörur meðan ratljóst var í gær en ekkert fannst nema brak sem talið er vera úr Bervík. Þá hafði gúmbjörgunar- bátur skipsins og fundist á reki, mannlaus. Hannes Hafstein hjá Slysa- varnarfélaginu sagði um miðnæt- urbil í gær að vakt yrði á svæðinu alla nóttina en strax og birti hæf- ist skipulögð leit á ný. Bervík SH-43 var eins og áður sagði 36 tonna eikarbátur í eigu Úlfars Kristjánssonar í Ólafsvík. Báturinn var smíðaður á ísafirði árið 1954. - v. Bifreiðaiðgjöld 260% hækkun á 3 árum Félag íslenskra bifreiða- eigenda hefur sent frá sér mót- mæli vegna 68% hækkunar á ið- gjöldum af bifreiðatryggingum. í fréttatilkynningu frá félaginu er bent á að árið 1983 hafi bif- reiðatryggingaiðgjöld hækkað um 95,2%, árið 1984 um 10% og nú 68% hækkun eða samtals 260% hækkun á þremur árum, segir í tilkynningunni. Bent er á að engin þjónusta í landinu hafi hækkað svo mikið á sama tíma. - S.dór. Sjá bls. 3

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.