Alþýðublaðið - 18.01.1944, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 18.01.1944, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 18. janúar 1944 ALÞTÐUBLAÐKÐ 31 i Hvað vilja Rússar "C1 ÁTT HEFIR VAKIÐ jafn- •*■ mikla athygli upp á síð- kastið eins og landamæra- deilur Rússa og Pólverja. Að því er fregnir frá London og Washington herma, hafa Rússar krafizt þess af Pól- verjum, að þeir léti af hendi allveruleg landsvæði austan hinnar svonefndu Curzon- línu. Þetta mál er mjög vand- meðfarið, sér í lagi á þessu stigi málsins, því að málstað- ur bandamanna getur beðið alvarlegan álitshnekki, ef ekki tekst að leysa deiluna með friðsamlegum hætti. Erf- itt er að segja um réttmæti hinna rússnesku krafna, en vitað er, að allmargt Rússa bjó í austurhluta Póllands, og því ekki nema sanngjarnt, að það fólk fái að hverfa aft- ur til Rússlands, ef það æskir þess. 2HNS VEGAR verða sanngjarn- menn að líta svo á’ að Rússar hafi valið heldur óheppilegan 'tíma til þeSs að koma land- vinningaáformum sínum á framfæri. Meðan Þjóðverjar eru mestu ráðandi á megin- landi Evrópu og vinna að því baki brotnu að uppræta pólska borgara, hvort sem þeir eru Gyðingar eða ekki, verður það að teljast heldur ósmekklegt að fitja upp á ill- •deilum. En þetta gefur tilefni til ýmis konar hugleiðinga um utanríkis-stjórnmála- stefnu Rússa. Ekki alls fyrir löngu fann eitt Reykjavíkur- hlaðanna ástæðu til að tala um Eystrasaltsríkin sem lönd, sem hefðu ,,af frjálsum vilja óskað upptöku í Sovét-ríkja- sambandið“. Þetta er vægast sagt heldur hæpin fullyrðing. AÐ VÍSU fór þar fram at- kvæðagreiðsla, sem leiddi í ljós, að um eða yfir 90% af þjóðum þessum kusu að vera þegnar Stalins. En á hinn bóginn fer ekki hjá því, að „atkvæðagreiðsla“ þessi ber greinilegan keim hinnar þýzku aðferðar við svipaðar athafnir. Menn geta fari'ð nærri um, að 14 milljónir kommúnista og sósíalista í Þýzkalandi skipta ekki um skoðun daglangt, en þó var það svo, að Hitler hafði ætíð að minnsta \kosti 90% greiddra atkvæða að baki sér ■er hann þurfti að fóðra síð- ustu ofbeldisverk sín. Meira að segja var látið það boð út ganga, að Ernst Thálmann, foringi kommúnista í Þýzka- landi, stundaði akuryrkju og hænsnarækt einhvers staðar Uppi í sveit í Þýzkalandi í mjög góðu yfirlæti og hefði megnan viðbjóð á hvers kyns stjórnmálastarfsemi. Trúi þessu hver sem vill. En hefði verið mark takandi á ummæl- um nazista fyrir 1933 mætti ætla, að menn eins og Thál- mann hefðu ekki þurft að kemba hærurnar, ef Hitler og aðrir slíkir foringjar fengju einhver völd. VIÐ GETUM ofboð rólega gert ráð fyrir því, að Eystrasalts- ríkin svo og Finnland kjósi helzt að ráða málum sínum Allir lögregluþjónar Kaupmannahafn- ar teknir fastir af Þjóðverjum Þýzkar lögreglusveitir taka við IVIikil ólga í landinu SAMKVÆMT fregnum frá Stokkhólmi hafa Þjóðverjar grip- ið til þess ráðs, að handtaka alla lögregluþjóna í Kaupmanna- höfn. Lögregluþjónunum, sem eru 5000 að tölu, er gefið að sök, að hafa ekki komið nógu röggsamlega fram gegn skemmdarverka- mönnum. Ekki er enn vitað, hvort lögregluþjónar utan Kaup- mannahafnar hafi verið handteknir. Fregnin um handtöku dönsku* lögreglumannanna kemur í kjöl far fregnarinnar um morðið á Kai Munk og aukna skemmdar- starfsemi í landinu Er bersýni- legt, að Þjóðverjar eru hræddir um sig og finna sívaxandi mót- þróa Dana. Sumir fregnritarar geta þess til, að handtaka lög- reglumannanna standi í sam- bandi við innrásarótta Þjóð- verja. Yfirmaður þýzka setu- liðsins í Danmörku, von Hanne- ken, hefir verið á ferðalagi um Jótlandsstrendur til þess að at- huga varnarráðstafanir ef til innrásar kemur, og talið er, að hann hafi ekki talið sig geta treyst dönsku lögreglunni. Þá benda sumir á, að lögregluþjón- arnir hafi sýnt hug sinn til hinna þýzku yfirvalda, er þeir neituðu að taka þátt í Gyðinga- ofsóknunum ekki alls fyrir löngu. Ekki er enn vitað, hvar Þjóð- verjar hafa lögregluþjónana í haldi, en miklar viðsjár eru með mönnum í Danmörku út af þessum atburðum, og búast menn við stórtíðindum vegna þessa. Loftárás á Klagenfurt í Ausfurríki r|« LUGVÉLAR, sem hafa bækistöðvar á Ítalíu, hafa gert harða loftárás á borgina Klagenfurt í Austurríki. Voru þetta flugvirki, sem réðust einkum á verksmiðjur, sem framleiða Messerschmitt-flug- vélar og flugvélahluta. Klagen- Frá Noregi ---- % FYRIR skömmu náðu Þjóð- verjar nokkrum rússnesk- um foringjum, sem tekizt hafði að flýja frá herfangabúðum skammt frá Larvik. Einn hinna rússnesku foringja var dæmdur til þess að vera barinn 200 högg með staf, en hann andaðist eftir 50 högg. Atburður þessi hefir vakið mikla gremju meðal Norðmanna í nágrenninu. Þjóðverjar hafa nú lagt hald á allan saltfisk í Álasundi og Kristjánssundi. Er talið, að þetta muni mjög auka á matar- vandræðin í Noregi í vetur. Jónas Lie, lögreglumálaráð- herra Quislings, flutti nýlega útvarpsræðu til norskra SS- manna á austurvígstöðvunum og heima og sagði meðal ann- ars, að árið 1944 myndi krefjast mikilla fórna. Hann boðaði harða baráttu gegn þeim, sem hann nefndi ,,myrkurmenn“ meðal norsku þjóðarinnar. furt er skammt frá landamær- um Júgóslavíu og um 120 km. norðaustur af Trieste í Italíu, í Alpafjöllum. Allmargar þýzkar flugvélar réðust gegn hinum amerísku flugvirkjum, en 3 þeirra voru skotnar niður. Voru þær búnar rakettubyssum. Sprengjur féllu á verksmiðjubyggingar og járn- brautarstöð og varð mikið tjón af. í Klagenfurt eru einnig bún- ir til ýmsir varahlutar fyrir verksmiðjur í Wiener-Neustadt og þar er einnig mikilvægur námugröftur. Amerískar steypiflugvélar Á myndinni sjást amerískar steypiflugvélar af Dauntlessgerð, er hafa bækistöðvar á flugvélaskipum. Flugvélar þessar hafa valdið miklum spjöllum á japönskum herskipum, svo sem kunnugt er. Rússar byrja nýja sókn í Hvíta-Rússlandi Ekkert samkomulag næsl við pólsku stjórnina í London RÚSSAR hafa byrjað nýja sókn við Novosokolniki, um 110 km. austur af landamærum Lettlands. Hafa þeir /rofið skarð í varnarbelti Þjóðverja um 13 km. breitt og náð aftur á vald sitt um 40 þorpum og byggðum bólum, svo og mikilvæga járnbrautarlínu til Leningrad. Er þetta fimmta stórsókn Rússa síðan á aðfangadag og nú er svo komið, að barizt er á allri víglínunni frá Leningrad til Svartahafs, á 1900 km. löngu svæði. 1. ukrainski herinn, undir stjórn Vatutins, hefir sótt um 90 km. inn í Pólland og rúss- neskar hersveitir sækja fast á hæla Þjóðverja í áttina til Ko- wel. Fyrir austan Vinnitsa hafa Kósakkahersveitir hrundið hörð um gagnáhlaupum Þjóðverja. Rússar sækja einnig fram til rúmensku landamæranna, og eru nú aðeins um 8 km. frá Bug-fljóti. Á Pripet-svæðinu sækja Rússar fram eftir Kalin- eftir eigin geðþótta, og við getum líka ályktað, að ,,at- kvæðagreiðslurnar“ séu eitt- hvað skrítnar. Rússar réðust á Finna árið 1939 að tilefnis- lausu. Finnar gripu til vopna, enda eru fáar þjóðir í Evrópu, sem eru jafn sjálfstæðar í hugsun og Finnar. Að vísu þótti ,,Þjóðviljanum“ viður- kvæmilegt að nefna frelsis- stríð þeirra „Finnagaldur“, en hróður þessa blaðs hefir tæpast vaxið við þann áróður. FINNAR TALA AÐ VÍSU óskylt mál og eru í ýmsu ólíkir öðrum Norðurlanda- þjóðum, en engu að síður eru þeir Norðurlandaþjóð. Stefna þeirra hefir legið í vestur. Þeir vilja eiga samleið með hinum Norðurlandaþjóðun- um, enda hafa Svíar, eina sjálfstæða skandínaviska þjóð in, sýnt fullan skilning á þessu. Menn eins og Topelius, ■ Runeberg og Sillanpáá eru Norðurlandamenn fyrst og fremst. Þeirra listaverk eru okkar listaverk. Miskunnar- laus örlög hafa skilið Finna frá okkur, en aðeins um stundársakir. Afstaða þeirra er erfið en skiljanleg. Rússar hafa verið erfðafjendur þeirra um mörg hundruð ár. Þeir hafa leitast við að kúga þá, kynslóð eftir kynslóð, jafnt undir zar-stjórn sem kommúnistastjórn. RÚSSAR HAFA BREYTT um stefnu í utanríkismálum hin síðari árin. Þeir leggja niður, að minnsta kosti í orði kveðnu, áróðursstefnu 3. int- ernationalsins, skipta um þjóðsöng og byrja að mæta á ráðstefnum við hina „sví- virðilegu auðvaldsjöfra“ Churchill og Roosevelt. í stað hinna mögnuðu orða „Fram þjáðir menn í þúsund lönd- um“ er nú talað um hið vold- uga Rússland og dýrð föður- landsins, að því er segir í enskri þýðingu á hinum nýja þjóðsöng. Textinn er eftir Sergei Mikhalov, en lagið eftir mann að nafni A. V. Alexandrov. Rússar hafa tek- ið upp nýja utanríkisstefnu, •á því er enginn vafi, og styrj- öld þeirra er ekki síður stór- veldastyrjöld en styrjöld Breta og Bandaríkjamanna, sem þeir hafa varpað svo miklu skarni á undanfarin ár. Er þetta ekki sagt Rússum til lasts, enda hafa þeir gert meira en nokkur önnur þjóð til þess að stöðva framrás hinna nazistisku villimanna. En á hinn bóginn gæti það verið hollt fyrir kommúnist- iska leiðtoga um víða veröld að fara að standa á eigin fót- um, nú þegar forustan frá Moskvu virðist vera að bregð- ast. kovici-Minsk-brautinni og eru um 80 km. frá pólsku landa- mærunutn. Er hinum þýzku her sveitum mikil hætta búin á þessum slóðum. Landamæradeila Rússa og Pólverja vekur enn sem fyrr hina mestu athygli. í gærmorg- un bar Tass-fréttastofan rúss- neska, pólsku stjórninni á brýn, að hún tæki ekki mark á uppá- stungum Rússa um væntanleg landamæri þessara ríkja. Út- varpið í Moskvu sagði, að svar Póllands væri neitun á Curzon- línunni sem landamæri, og ekki væri unnt að taka aftur upp stjórnmálasamband við pólsku stjórnina í London. Er gefið í skyn, að Rússar vilji ekki ræða við Pólverja fyrr en ný stjórn hefir verið sett á laggirnar. Lðkasóknin til Cassino að hefjast ¥J ERSVEITIR bandamanna ■■■•*■ á Ítalíu búa sig nú undir lokaárásina á Cassino. Amerísk ar hersveitir hafa tekið Trocc- hio-fjall og sótt fram um 3 km. Hafa þær komið sér fyrir á bökkum Ratido-ár, andspænis víggirðingum Þjóðverja í Cas- sino. Stórskotalið bandamanna lætur skothríðina dynja á út- virkjum borgarinnar og búizt er við, að lokasókn bandamanna til borgarinnar hefjist senn.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.