Morgunblaðið - 14.11.1958, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 14.11.1958, Blaðsíða 1
20 siður Sjálfstæðisflokkurinn ber fram kröfu um að ofbeldisaðgerðir 6 reta verði stöðvaðar áður en til manndrápa kemur Kallaður verði saman fundur æðstu manna NATO-rikjanna Formaður Sjálfstceðisflokksins Ólafur Thors kvaddi sér hljóðs um málið á Alþingi í gœr AÐIJR en gengið var til dag- skrár í neðri deild Alþingis í gær, kvaddi Ólafur Thors sér hljóðs og mælti á þessa leið: Herra forseti! Ég hef leyft mér að kveðja mér hljóðs utan dagskrár í tilefni af atburðum, sem skeðu í gær í sam bandi við fiskiveiðar Breta innan íslenzkrar landhelgi. í blöðunum í dag er sagt frá þessum atburðum eftir tilkynn- ingu frá Landhelgisgæzlunni á þessa leið, með leyfi hæstvirts forseta: „Laust fyrir hádegi í dag kom varðskipið Þór að brezka togar- anum Hackness FD-120, þar sem hann var staddur 2,5 sjómílur frá landi skammt suður af Látra- Skotárás á Serkja BONN, 13. nóv. (Reuter). — I Lögreglan í Bonn gaf þær upp- lýsingar í dag, að fengizt hefði „mikilvæg vitneskja", er Amezi- ane Ait Ahcene, leiðtogi alsírskra þjóðernissinna í Vestur-Þýzka- landi, var yfirheyrður vegna skot árásar, sem hann varð fyrir í ná- greinni Bad Godesberg hinn 5. þ. m. Ahcene, sem er 27 ára gamall, liggur í sjúkrahúsi í Bonn með sár á höfði eftir þrjú skot. Þegar hann var að aka að sendiráði Túnis fyrrgreindan dag, var skot • ið á hann úr bifreið, sem ók þar fram hjá. — Stjórn alsírskra upp reisnarmanna í Kaíró hefir kennt Frökkum um arás þessa. bjargi. Togarinn var með ólög- legan umbúnað veiðarfæra og gaf varðskipið honum þegar stöðvun- armerki. Togarinn sinnti ekki stöðvunarmerkjum Þórs og hélt til hafs. Skaut varðskipið þá nokkrum lausum skotum að hin- um brezka togara. Þar sem sýnt þótti, að togarinn ætlaði ekki að stanza, skaut varðskipið einu föstu skoti að honum og kom skotið í sjóinn rétt fyrir framan stefni hans. Stöðvaði togarinn þá þegar ferðina. Brezka freigátan Russell var þarna í nágrenninu. Tilkynnti skipherrann á Þór skipherra Russells um málavexti, en hann bað skipherrann á Þór að fresta frekari aðgerðum. Kvað hann togarann hafa verið utan 4 sjómílna markanna og bannaði Þór öll afskipti af hon- um. Skipherranum á Russell var boðið, að Þór færi með togarann í var upp undir land og væri þá hægt að ræða málið. Skipherr- ann á Russell neitaði því og fóru nú nokkrar orðsendingar milli skipherranna. Tilkynnti Eiríkur Kristófersson, skipherra á Þór, skipherranum á Russell að lokum að hann teldi sig hafa fullan rétt til þess að setja menn yfir í tog- arann og færa hann til hafnar. Svaraði skipherrann á Russell því með eftirfarandi orðsend- ingu: „Ef þið skjótið á togarann, þá sökkvum við ykkur“. Kom skipherrunum saman um, að Russell fengi að tilkynna yfirboð- urum sínum í London um mála- vöxtu og lofaði hann jafnframt að sleppa togaranum við Þór, ef hann fengi jákvætt svar. Laust fyrir kl. 20 barst svo Larsen hvattur tiJ að stofna nýjan flokk Kaupmannahöfn, 13. nóv. Einkaskeyti til Mbl. BÚIZT er við því að brottrekst- ur Aksels Larsens úr danska kommúnistaflokknum hafi í för með sér mikið fráfall frá flokkn- um, og leiði í rauninni til algerr- ar upplausnar hans. Þegar Larsen fór til Jótlands var honum mjög vel tekið af flokksfélögum hans þar, og er ekki talið ósennilegt að hann stofni nýjan kommúnistaflokk, sem mundi draga flesta félagana frá gamla flokknum. Lokaðir fundir Undanfarið hafa verið haldnir margir lokaðir fundir meðal rót- tækra vinstri manna og sósíal- ista, sem hafa mjög eggjað Lars- en til að stofna nýjan flokk. Hinn væntanlegi flokkur mundi þá ekki einungis taka til kommún- ískra áhangenda Larsens, heldur mundi hann einnig leitast við að ná til sin vinstra demókrata. armi sósíal- skeyti frá Lundúnum til her- skipsins Russells með fyrirmæli um meðferð málsins. Segir þar, að fjallað verði um mál togarans eftir venjulegum diplomatiskum leiðum. Skipið eigi að sigla taf- arlaust til Lundúna og beri Russell að sjá um, að íslenzk varðskip hefti ekki för þess“. Ef þessi skýrsla er rétt, og ég hef enga ástæðu til að vefengja, að svo sé, þá er hér um ákaflega alvarleg tíðindi að ræða. Við, sem hér erum staddir, ef- umst ekkert um það, að Eiríkur Kristófersson, skipherra á Þór, segi satt frá um, að sökudólgur- inn, sem hér um ræðir, hafi verið staðinn að broti 1V-i sjómílu frá landi. Og það raskar ekki trú okkar Framh. á bls. 3. Brezku stjórninni send ákveðin mótmœli BLAÐINU barst 1 gær eftir- anríkismálanefndar í dag var farandi tilkynning frá utan- gengið frá ákveðnum mótmæl- ríkisráðuneytinu: um til brezku stjórnarinnar út „Ríkisstjórnin átti í dag af þessum atburðum og var fund með utanríkismálanefnd þess krafizt, að togarinn yrði vegna atburðar þess, sem gerð sendur tafarlaust til íslands ist í gær út af Vestfjörðum er ásamt skipstjóranum svo að varðskipið „Þór“ ætlaði að íslenzk stjórnarvöld geti kom- taka brezkan togara, er stadd- ið fram íslenzkum lögum gagn ur var með ólöglegan útbúnað vart honum. Mál þetta er til veiðarfæra innan islenzkrar frekari athugunar hjá ríkis- landhelgi. Togarinn var þá 2,5 stjórninni og utanríkismála- sjómílur undan landi. Brezkt nefnd en litið er á þennan at- herskip hindraði töku togar- burð alvarlegri augum en ans og hótaði að sökkva Þór allt annað sem til þessa hefur ef hann skyti á togarann. Á gerzt í landhelgisdeilunni við fundi ríkisstjórnarinnar og ut- Breta.“ / ráði að leggja sœsíma- streng milli Islands og Crœnlands -segir Kvöldberlingur Kaupmannahöfn, 13. nóv. — KVÖLDBERLINGUR skýrir svo frá, að „diplómatiskar“ viðræð- ur eigi sér nú stað milli Banda- ríkjanna, íslands, Danmerkur, Alþjóðaflugmálastofnunarinnar ICAO og ýmissa einkafyrirtækja um sæsímastreng milli íslands og Grænlands. Habib Búrgiba Búrgíba hótar að kaupa vopn fyrir austan TÚNIS, 13. nóv. — Reuter. — Habib Búrgiba, forseti Túnis, skýrði frá því í dag, að Túnis- stjórn hefði farið þess á leit við stjórnir Svíþjóðar, Tékkósló- vakíu og Júgóslavíu, að þær seldu Túnis vopn. Forsetinn sagði að það væri ekki stjórn sinni um að kenna, að hún hefði nú snúið sér til ríkja í Austur-Evrópu um vopna- kaup. Hún hefði fyrir um það bil ári farið þess á leit við lu/ögur um tollabanda- lag og sameiginlega lög- gjöf Norðurlanda Osló, 13. nóv. NTB/Reuter. SAMEIGINLEG norræn löggjöf um afhendingu afbrotamanna var í dag til umræðu i laganefnd Norðurlandaráðs, og var sam- þykkt tillaga um að mæla með slikri löggjöf. Þá var lögð fram tillaga um sameiginlega löggjöf Norðurlanda um prent- og lestr- arfrelsi, en hún var ekki sam- þykkt, og var ákveðið að Norð- urlandaráð tæki hana ekki til umræðu. Efnahagsnefnd Norðurlanda- ráðs, en formaður hennar er Dan inn Ole Björn Kraft, hefur sam- þykkt ályktun um tollabandalag aðildarríkjanna, og verður hún lögð fyrir fund ráðsins á morgun. í ályktuninni segir m.a. að nefnd in geti ekki að svo stöddu gert ákveðnar tillögur um stofnun slíks bandalags, en leggur til að ríkisstjórnirnar hefji þegar við ræður, m.a. við nefndina, um það hvernig bezt verði hagað undir- búningi málsins. Framar öllu er sæsímastreng- urinn til þess ætlaður að skapa flugsamgöngum betri skilyrði. Radíósambandið, sem nú er, bregst stundum sólarhring í senn vegna lofttruflana. Slíkt getur haft alvarlegar afleiðingar fyrir öryggi í flugsamgöngum og einn ig fyrir nauðstödd skip á Dan- merkursundi, segir Kvöldberling ur. ICAO á upptökin að þessum ráðagerðum um sæsímastreng, og miklar líkur eru á því, að ráða- gerðin komist í framkvæmd. Leggja á sæsímastrenginn í land við Prins Christiansund, en það- an er hægt að hafa radíósam- band við stöðvar meðfram strönd Grænland, segir blaðið að lok- um. — Páll. Ríkisútvarpið skýrði svo frá í gærkvöldi samkvæmt fregn í danska útvarpinu, að Alþjóða- flugmálastofnunin leitaði nú samninga við Mikla norræna rit- simafélagið um, að félagið stæði fyrir lagningu sæstrengs með tal- símalínum milli íslands og Græn lands. Yrði fyrst lögð lína milli Þetta skilyrði þyddi í rauninni Bretlands og íslands um Færeyj það eitt, að Frakkar fengju að — ■ ' frönsku stjórnina að hún seldi sér vopn. Franska fctjórnin hefði svarað því til, að hún gæti ekki orðið við þeim tilmælum nema hún fengi að hafa eftirlit með því, að þessi vopn yrðu ekki send uppreisnarmönnum í Alsír Frakkar hafa úrslitaáhrif hafa yfirumsjón með landvörn- um Túnisbúa. Túnisstjórn hefði að sjálfsögðu ekki fallizt á það. Þá hefði stjórnin mælzt til þess við Breta og Bandaríkjamenn að þeir seldu henni vopn. Svör þess- ara tveggja vestrænu ríkja hefðu verið á þá leið, að þau væru fús til að selja vopnin, en þó með því skilyrði að Frakkar væru því ekki mótfallnir. Áður en það er of seint Þá hefði Túnisstjórn ekki átt annars úrskosta en leita til ríkja í Austur-Evrópu. Forsetinn skor- aði á stjórnir þessara vestrænu ríkja að endurskoða afstöðu sina, áður en það yrði um seinan. VÍN. — Samkv. Reutersfréttum hefir ungverska dagblaðið Nep- sava skýrt frá því, að rússneskir vísindamenn telji unnt að rækja „lankton" (svif) í eldflaugum sem fæðu fyrir geimfara. ar, en síðan milli íslands og Grænlands. Sagði í fréttinni, að gamli sæstrengurinn milli Bret- lands og íslands væri nú talinn algjörlega ófullnægjandi. JHorgitnMafeíft Föstudagur, 14. nóvember. Efni blaðsins er m.a. : BIs. 6: Demokrataflokkurinn hlýtur öflugt traust bandarísku þjóð- arinnar. — 8: Síða S.U.S.: Félagsheimili menntaskólanema. — 10: Ritstjórnargreinin nefnist: Er verið að gera Alþingi að „gerfi- þingi“? Bráðlætið varð Aref að falli. (Utan úr heimi). — 11: Listamenn nútímans mynduðu rammann um heimssýninguna í Brússel. Samtal við Valtý Pétursson, listmálara. — 12: Undirbúningur vetrarvertíðar, eftir Jóhann J. E. Kúld.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.