Morgunblaðið - 17.04.1971, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 17.04.1971, Blaðsíða 1
32 SÍÐUR OG LESBÓK Júgóslavía krefst framsals á Króötunum — Sænska stjórnin neitar Ekkert lát er á flóttamanna-1 straumnum frá Anstur-Pak-, istan. Hér sjást hópar Beng- ala flýja með fátæklegar fögg- ur sínar yfir Gangesfljót. I Þetta fólk flýði eftir sókn, vestur-pakistanska hersins til bæjarins Kushita, sem er um 45 km frá indversku landa- mærunum og á yfirráðasvæði frelsissveita. Kjaradeilur í Svíþjóð Stokkhólmi, 16. april -— NTB - - VINNUVEITENDASAMBAND Svlþjóðar (SAF) hafnaði í dag sáttatillögu þeirri, sem lögð hafði verið fram á fimmtudag í launadeilu SAF og 800.000 félaga Alþýðusambandsins. Áður hafði Alþýðusambandið einnig hafnað tillögunni og formaður þess, Arne Geijer, lýst því yfir, að tillagan væri einungis hagstæð vinnuveitendum. Ungverskur ráðherra í Páfagarði Róm, 16. apríl —- NTB JANOS Peter, utanríkisráðherra Ungverjalands, sem var eitt sinn Kalvinistaprestur, ræddi í dag í 45 mínútur við Pál páfa um heimsvandaniál og samskipti kirkju og ríkis í Ungverjalandi. Fundur Peters og páfa er fyrsti fundurinn, sem ráðherra i ungversku ríkisstjórninni hef- ur farið fram á og fengið, siðan Ungverjaiand varð kommúnista- riki eítir síðari heimsstyrjöld. Stokkhólmi, Belgrad, 16. apríl — NTB -IÚGÓSI.AVNESKA stjórnin mun kref jast þess, að Króatarn- ir tveir, sem skutu júgóslavneska sendiherrann í Stokkhólmi til bana, verði framseldir, segir sænska biaðið Dagens Nyheter. Talsmenn sendiráðsins segja, að sendiherrann hafi verið skotinn til bana áður en sænska Iögregl- an kom á vettvang, og að hann hafi verið skotinn inni i senili- ráðinu. Samkvæmt alþjóðalögum telj- ast sendiráð vera landsvæði til- heyrandi þeirri þjóð, sem hefur þar íulltrúa sinn, og Júgóslavar telja því að afbrotið hafi verið framið á júgóslavneskri grund. Sænska stjórnin er á öðru Bangla Desh úr sögunni? Uppreisnarmenn í Austur- Pakistan hvarvetna á flótta Hafa yfirgefið Chuadanga — Mikill straumur flóttafólks til Indlands Chuadanga, Austur-Pakistan, 16. apri'l — AP-NTB ÖRMAGNA og ráðþrota streymdu hermenn Bangla Desh frá bráðabirgðahöfuð- borg sinni, Chuadanga, í dag áleiðis til indversku landa- mæranna. Þeir létu borgina falla nær bardagalaust í hend ur her Pakistanstjórnar og virðist nú sem hið nýstofnaða ríki, Bangla Desh, sé úr sög- unni, en þrjár vikur eru liðn- ar, síðan uppreisnin hófst í Austur-Pakistan og lýst þar yfir stofnun sjálfstæðs ríkis. Her Pakistanstjórnar hertók í dag borgina Kushtia, um 50 km norðar, og virtist sem mótstaða Bangla Desh færi hvarvetna þverrandi. 1 fyrsta sinn flutti út- varp uppreisnarmanna fréttir um, að her þeirra hefði hörfað og uppreisnarmenn virtust alis staðar forðast að leggja til bar- Ceylon: daga og vera reiðubúnir til þess að kasta frá sér vopnum sínum. Flóttafólk frá Chuadanga, sem uppreisnarmenn höfðu gert að bráðabiirgðahöíuðborg sinni skýrði svo frá, að tvær flugvél- ar úr flugher Pakistans hefðu varpað sprengjum á borgina og skotið úr vélbyssum sínum og þegar erlendir fréttamenn komu til borgarinnar sáust sprengju- gigir á ýmsum götum og veggir lögreglustöðvarinnar voru þakkt ir vélbyssuskotum. Dauð kýr og tveir dauðir hundar lágu enn á aðalgötu borgarinnar. Sagt var, að tólf manns hefðu beðið bana í loftárásinni, en engin opinber staðfesting hafði fengizt á þvi. Chuadanga, þar sem áður bjuggu um 25.000 manns og þar sem fjöldi flóttafólks hafði að auki setzt að, var nú auð og tóm. Grænn, rauður og hvítur fáni Bangla Desh sást viða hanga máttvana á yfirgefnum byggingum. Fréttir bárust um, að framvarðasveitir Pakistan- hers hefðu komið sér fyrir í 5—6 km fjarlægð, en meginherinn var enn talinn miklu lengra í burtu. Á sérhverri leið frá Chua- danga til indversku landamær- anna, um 24 km í vesturátt, sást löng röð flóttamanna. Er talið, að um 100.000 flóttamenn séu nú komnir til Indlands frá Austur- Pakistan og höfðu flestir þeirra aðeins getað tekið það með sér af eigum sínum, sem þeir gátu borið. Hafa þeir ýmist komið fótgangandi, á reiðhjólum, ríð- andi ösnum o.s.frv. Margir hafa einnig komizt með ferjubátum á fljótum. máli. 1 tilkynningu frá utanríkis- ráðuneytinu segir, að mennirnir tveir verði ekki framseldir og að sendiráðið sé á sænsku landi og því háð sænskum lögum. Ef Kró- atarnir tveir yrðu framseldir, má telja nokkuð víst að þeir hlytu dauðadóm fyrir rétti í Júgóslavíu. Júgóslavnesk blöð og yfirvöld eru harðorð í garð sænsku stjórnarinnar. Er m.a. sagt, að þar sem hún leyfi alræmdum glæpafélögum að starfa í land- inu, hljóti hún að bera ábyrgð á gerðum þeirra. Olof Palme er einnig gagnrýndur og sagt, að hann sé líklega eini forsætisráð- herrann í heiminum sem um- gangist persónulega höfuðpaura glæpasamtaka, sem hiki ekki við að myrða menn til að hafa fram málstað sinn. S-Afríka biður um freigátur London, 16. apríl — AP MIKILL pólitískur stormur gengur nú yfir Bretlanð vegna óformlegrar beiðni stjórnar Suður-Afríku uni að fá keyptar sex brezkar frei- gátur af nýjustu gerð. Denis Healey, fyrrum vamarmála- ráðherra, sem nú er talsmað- ur Verkamannaflokksins í ut- anrikismálum, sagði, að ef herskipin yrðu seld Suður- Afríku, gæti það haft óskap- legar afleiðingar fyrir sam- veldið. Hann benti á, að mikil upp- þot hefðu orðið víða í Afríku þegar Suður-Afríku voru seld ar nokkrar þyrlur, og spáði því, að ef landinu yrðu nú seldar nýtízku freigátur, myndi koma til óeirða, sem kostað gætu mörg brezk líf í samveldislöndunum, auk þess sem viðskipti og annars kon- ar tengsl gætu stórskaðazt. Talsmaður Heaths, forsætis- ráðherra, sagði, að engin formleg beiðni hefði borizt og engin ákvörðun þar af leið- andi tekin enn. Borðtennissókn Kín- verja heldur áfram Sendiherra N-Kóreu vísað úr landi Colombo, 16. apríl. NTB-AP. RÍKISSTJÓRN Ceylons kunn- gerði í dag, að hún hefði visað scndiherra Norður-Kóreu úr landi og öllu starfsliði hans. Ekki var gefin nein sundurliðuð opinber skýring á þessari ákvörð un, en sakir höfðu áður komið fram á hendur Norður-Kóreu um hlutdeild í samsæri því, sem uppvíst er orðið um að steypa stjórn frú Bandaranaike, for- sætisráðherra. Sendiherra Norður-Kóreu, Pvang Yong og íjórir aðrir sendistarfsmenn auk 13 annarra starfsmanna sendiráðsins héldu Framhald á bls. 2 Brezku borðtennlsleikurunum sýndur sérstakur sómi og hvatt til aukinna sam- skipta Breta og Kínverja Peking, 16. apríl. NTB. „Ping pong“ — eða borðtenn- issókn Kínverja heldur áfram og sagði brezki sendiráðsritar- inn í Peking, Richard Samuel, dag, að ánægjuleg þróun væri nú í samskiptum Bretlands og Kína. Sagði hann þetta í veizlu, sem haldin var í Peking til heið urs brezku borðtennisleikurun- um, en hún var hámark á frá- bærum móttökum, sem brezku iþróttamennirnir hafa hlotið í Kína. Er nú gert ráð fyrir mik- illi „þíðu“ í samskiptum Kína og Dretlands á næstunni. Einn af forystumönnum kin- verska íþróttasambandsins, sem tók þátt í veizlunni í dag, sagði, að leggja bæri áherzlu á aukin samskipti á milli brezku og kin versku þjóðarinnar á sviði íþrótta- og menningarmála. Fyrr í dag hafði brezku borð tennisleikurunum verið sýndur sá einstaki heiður að fá heimild til þess að fara um og skoða lokaða borgarhlutann í Peking, en honum hefur verið lokað fyr ir útlendingum eftir menningar byltinguna og mjög fáir þeirra fengið að skoða hann. f þessum bargarhluta bjuggu kinrversku Framhald á bis. 2

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.