Morgunblaðið - 08.03.1979, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 08.03.1979, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 8. MARZ 1979 11 Skáldskapur og lífsvidhorf Jakobína Sigurðardóttir: DÆGURVÍSA. Skólaútgáfa. Jóhanna Sveinsdóttir annaðist útgáfuna. Iðunn 1978. MEÐAL nýlegra skáldsagna sem komið hafa í skólaútgáfum er Dægurvísa Jakobínu Sigurðardótt- ur í útgáfu Jóhönnu Sveinsdóttur. Dægurvísa kom fyrst út 1965 og vakti töluverða athygli m.a. var hún send af íslands hálfu til samkeppni um bókmenntaverð- laun Norðurlandaráðs 1966 eins og Jóhanna bendir á. Það út af fyrir sig eru þó engin meðmæli með bókinni. Aftur á móti var ljóst að Jakobína Sigurðardóttir sem áður hafði gefið út ævintýri, kvæðabók og smásagnasafn var vaxandi höf- undur og líkleg til góðra hluta. Skáldsagan Snaran kom út eftir hana 1968 og síðan smásagnasafn- ið Sjö vindur gráar 1970 og loks skáldsagan Lifandi vatnið 1974. I fróðlegum og skilmerkilegum formála Jóhönnu Sveinsdóttur að skólaútgáfu Dægurvísu nefnir hún „höfuðkosti Jakobínu sem rithöf- undar: formsnilld, félagslegt raun- sæi og skilning á sálarlífi hinna ólíkustu einstaklinga úr alþýðu- stétt". Þetta gildir ekki síst um Dægurvísu sem óneitanlega er vel skrifuð, dregur upp skarpa mynd af Reykjavíkurlífi og einkennist af þeim „samúðarskilningi" sem Kristinn E. Andrésson talaði um í grein í Tímariti Máls og menning- ar 1966. En Kristinn segir einnig: Bðkmenntir eftir JÓHANN HJÁLMARSSON „Við blasir ömurleg þjóðlífsmynd þar sem hver er einangraður í þröngum hring og við eigin hags- muni án æðri sjónarmiða, samfé- lagslegrar hugsunar eða mannlegs vilja til að umbreyta lífinu til hins betra, í rauninni heimur án vonar og trúar“. Dægurvísa er svonefnd hópsaga. en í slíkum sögum er fjallað um hóp fólks og persónum yfirleitt gert jafnhátt undir höfði. Dæmi um slíka bók er Vetrarbörn eftir Deu Trier Mörch, merk skáld- saga sem fengið hefur góðar við- tökur hér heima. I henni segir frá konum á fæðingardeild. Hlutlægni er yfirleitt einkenni hópsagna. Sama gildir um Dægurvísu þótt segja megi að skoðanir höfundar komi skýrt í ljós á nokkrum stöðum, einkum í þeim hluta bók- arinnar sem greinir frá dvöl bandaríska varnarliðsins á ís- landi. Það er rétt hjá Jóhönnu Sveinsdóttur að „öll frásögn innan skáldverks hlýtur að mótast af þeim sem segir frá, söguhöfundi, skoðunum hans og lífsviðhorfum". Og Jakobínu ér í mun að lesandinn taki afstöðu. Verkefni aftast í bókinni gefa til kynna að Jóhanna vilji heldur betur fræða nemendur um stjórnmálaumræðu síðustu áratuga. Meðal annars eiga þeir að athuga „efnahagsleg og menning- arleg áhrif bandarísks hers á Islandi" og gera grein fyrir „helstu undirskriftarsöfnunum af pólitísk- um toga hérlendis frá 1950 til dagsins í dag“. Við getum ímyndað okkur niðurstöður slíkrar könnun- Jakohína Sigurðardóttir ar nemenda undir leiðsögn vinstri sinnaðra kennara, en enginn hörg- ull er á þeim í framhaldsskólum. Hætt er við að mest áhersla yrði lögð á félagslegar vísbendingar Dægurvísu, hin fagurfræðilega hlið gleymdist eða félli að mestu í skuggann. Jakobína Sigurðardóttir fjallar oftast um mikii mannleg tilfinn- ingamál í verkum sínum. Henni er heitt í hamsi. En í blaðagreinum er hún enn skeleggari en í skáld- verkunum. í eina slíka blaðagrein úr Þjóðviljanum vitnar Jóhanna Sveinsdóttir í formálanum, Himnasendingar nefnist hún og birtist 6. febrúar 1966. Þar er fullyrt um „iélega dómgreind" fjölda manna og lífsviðhorf (and- stætt Jakobínu) sem „sæmir ekki mönnum, heldur einhvers konar millistigi húsdýrs og manns". Ekki verða tengsl varnarliðsins og skáldverks Jakobínu Sigurðar- dóttur rakin frekar. Nóg mun vera komið. Jóhanna Sveinsdóttir segir að ekki verði annað sagt „en höfundi takist vel að gæða frá- sögnina spennu“. Hún nefnir dæmi um ýmsar spurningar: „fær stúd- entinn Ameríkustyrkinn? fær Ingimundur gamli pláss á elliheimilinu? tekst Ásu að finna gott sveitaheimili? hvernig fer ævintýri Svövu og Hidda?" Flest er þetta lítið spennandi, allra síst hvort gamalmenni verður komið á elliheimili. Hinn hægi frásagnar- máti er aftur á móti gæddur áleitnu lífi, til dæmis lýsing húss- ins og umhverfis þess. Ymisleg hversdagsleg atvik verða ljóslif- andi. Vera má að heimur þess fólks sem greint er frá í Dægur- vísu, sé „ömurleg þjóðlífsmynd" svo rifjuð séu upp orð Kristins E. Andréssonar. En þetta er það líf sem lifað er víða í húsum. Jakobína Sigurðardóttir er vandaður höfundur með hneigð til pólitískrar einsýni. Best hefur henni kannski tekist að lýsa fánýti lífsgæðakapphlaupsins, því hvern- ig maðurinn er rifinn upp með rótum. Það gerir hún einmitt snilldarlega í Lifandi vatnið. „Beztu sögur hennar eru af venjulegu fólki við venjulegar aðstæður", eins og Erlendur Jóns- son skrifar í bók sinni íslenzk skáldsagnaritun 1940—1970. Ég legg enga niðrandi merkingu í orðið venjulegur eins og Jóhanna Sveinsdóttir virðist gera samanber formála skólaútgáfunnar. Sérhver hef- ur sína tíð Louisa May Alcott: Yngismeyjar Jane Carruth endursagði Stinunn Bjarman þýddi Gordon King myndskreytti Örn og Örlygur 1978 Sagan Yngismeyjar er í þeim bókaflokki frá Erni og Örlygi er þeir nefna Sígildar sögur með litmyndum. Höfundur sögunnar Louisa May Alcott var fædd í Germantown Philadelphia, U.S.A. 1832. — Hún var önnur í röðinni af fjórum systrum. Fjölskyldan lifði við lítil efni og L. M. Alcott byrjaði snemma að vinna fyrir sér með kennslu, auk þess sem hún skrifaði greinar í vikublöð. í Þrælastríðinu 1862 starfaði hún sem hjúkrunar- kona við sjúkraskýli. Um þá lífs- Bókmenntlr eftir JENNU JENSDÓTTUR reynslu sína skrifaði hún bók er hún nefndi Hospital Sketches. Bók þessi vakti mikla athygli og gerði nafn hennar þekkt. Árið 1867 hvatti útgefandi nokk- ur hana til að skrifa stúlknabók. Og árið 1868 kom út bók sú er nefnist í íslenskri þýðingu, Yngis- meyjar. Að efni til er hún raunsæ og hjartahlý lýsing á fjölskyldulífi, þar sem fyrirmyndin var hennar eigin fjölskylda og næstelsta syst- ir í sögunni, Jo var raunverulega hún sjálf. Bókin fékk feikna góða viðtökur hjá ungum sem eldri. L.M. Alcott ritaði þrjár bækur til viðbótar um March-fjölskylduna. Sú síðasta, um Jo og drengi hennar kom út 1871. Hún skrifaði margar bækur en engar þeirra urðu frægar nema þessar fjórar sögur um fjölskyld- una March, þær hafa komið út á mörgum tungumálum víðsvegar um heim. Steinunn Bjarman gerði þýð- ingu sína eftir endursögn Jane Carruth á sögunni. Yngismeyjar — Systurnar fjór- ar heita Margrét sem er 16 ára: þó hún væri dálítið feit var hún mjög falleg, stóreyg og með mjúkt, brúnt hár —“ Jóa er ári yngri: Hún var mjög há eftir aldri, grannvaxin og drengjaleg —“ Elísabet: var rjóð, mjúk- hærð, bjartleit stúlka, þrettán ára —“ Amy var þeirra yngst: Hún var föl og grannvaxin og gult hárið liðaðist niður á axlirnar —“ Faðir stúlknanna er herprestur og móðirin „— besta kona í heimi— “ Jólin eru að koma og systurnar finna sárt til fátæktar fjölskyld- unnar. Jólagjöfin frá föðurnum, sem er fjarverandi, er sendibréf sem gleður þær allar mikið. Að morgni jóladags er þær systur koma niður, kemur móðir þeirra frá fátækri konu sem á sjö börn og ekkert handa þeim til matar á jólunum. Stúlkurnar eru ekki lengi að verða við ósk móður sinnar og senda fátæku konunni morgun- verðinn þeirra. Um kvöldið er hrokað jólaborð, þeim til mikillar undrunar. Nágranni þeirra, herra Laurence gamli hafði heyrt um gjafmildi þeirra og sent þeim kvöldverð. Gamli maðurinn á heima í stóra, þögla húsinu við hliðina á þeim, sem þær vita svo lítið um. Brátt kynnast þær þó manninum, Lárusi sonarsyni hans og kennara Lár- usar, herra John Brooke. Nú skiptast á skin og skúrir í lífi systranna. Lárus og kennarinn verða miðpunktar á lífi eldri systr- anna. Misjafnlega er því tekið innan fjölskyldunnar að kennara- blók sé að draga sig eftir Margréti. — Allt endar þó vel. Ef saga þessi er lesin með það í huga á hvaða tímum hún gerist, er hún hugljúf og áhugaverð. Skemmtilegar, lifandi myndir og ágæt þýðing Steinunnar Bjarman gera hana líka eigulega. WIPP EXPRESS í allan handþvott Enn eitt úrvalsefniö frá Henkel. þvottaefni í allan handþvott. Þægilegt, handhægt, ler vel meö hendurnar. Fæst í næstu búd. IVIYfMOAtVláT

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.