Morgunblaðið - 16.04.1981, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 16.04.1981, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. APRÍL 1981 7 Loksins kom 3. bréf Páls til mín, bæði efnismikið og athyglisvert, 24 vélritaðar síður með alls konar orða- leppum og málspjalladæm- um sem höfundur hefur tínt saman úr nokkrum blöðum og tímaritum sl. sex mánuði. Þessi lesning er býsna óhugnanleg. Hinu megum við ekki gleyma, að margur blaðamaðurinn er vel ritfær og léti ekki frá sér fara smekkleysur af því tagi sem Páll hefur tíundað. í upphafi bréfs síns ræðir Páll um forsetningarnar að og af, og virðist honum að vonum, að notkun þeirra sé í vissum samböndum nokkuð á reiki. Við þetta er erfitt að kenna mönnum óbrigðular reikningsaðferðir, tilfinning og hefð leiða okkur best. Og smekkur Páls er í þessu hinn sami og minn. Okkur þykir gaman að góðu máli, en höfum gaman af því sem vel er sagt. „Gaman þykir kerl- ingunni að, móður vorri,“ sagði Skarphéðinn Njálsson. Línan er skýr að þessu leyti. Menn haía gaman af, en þykir gaman að, sjá Orðabók Menningarsjóðs. Málið verður flóknara, þegar sögnin að gera er með í leiknum. En aðalatriðið er að menn gera mikið að einhverju í merkingunni að iðka eitthvað eða tíðka. Hins vegar er hægt að gera mikið af einhverju: Hann hefur gert margt af því besta á þessu sviði. Látum svo Þorleif Kol- beinsson á Háeyri hafa síð- asta orðið um að og aí í þetta sinn. Hann sagði að ekki væri nema eins bókstafs munur á tengdasyni sínum og Guði. Guð almáttugur gerði allt af engu, en tengda- sonurinn gerði allt að engu. Algengasti ljóðurinn á máli þeirra, sem Páll hefur vitnað til, mætti kallast stagl, þ.e. óþarfar endur- tekningar sem mjög eru til lýta. Þetta á ekki hið minnsta skylt við listræna klifun (anafór) en er í ætt við vísu þá um bátstapa sem ég hef áður birt og svo hljóðar: Missti bátinn maður sá mjög í stóru veðri. Það gekk svo mikil gola á hann gekk sundur af veðri. Eða Norðan kaldur úti er er kominn á norðan, o.s.frv. Hér eru nokkur stagldæmi úr bréfi Páls: „... en hann er einn af nefndarmönnum í nefnd af hálfu stjórn- valda...“ „Svo er víða um börn víðsvegar um landið." „Ástæðan virðist vera van- stilling á stillitækjunum,“ og gætir reyndar vanstill- ingar á geði okkar Páls, þegar slíkt er lesið. „Rækju- bátarnir sem stundað hafa rækjuveiðar út af Vestfjörð- um.“ „ ... og gerð grein fyrir hvaða söluaðferðum beitt er við sölu okkar helstu útflutn- ingsafurða á mörkuðum er- lendis." „ ... hefur meðferð mála verið háttað þannig að einn starfsmaður fer með meðferð máls (!) hvort held- ur er um að ræða ...“ „Var skipið innréttað, sett á það ný brú og það innréttað að fullu.“ „Kostnaður við rafmagns- framleiðslu með díselvélum á Vopnafirði kostaði um 50 milljónir á mánuði.“ „Þeir höfðu nýlega fengið 110 tonna kast í Reyðarfirði í einu kasti, sem þykir dá- gott.“ Og þætti viðar! „Það mætti alveg loka þeim alveg.“ Já, ætli það ekki. „ ... og nýlega útskrifaðist hún út af sjúkrahúsinu." Hún ætti þá ekki að vera inni lengur, en „þá var spurt hvernig stæði á því að Grev- kov væri ekki lengur á sov- ézka skáklistanum lengur.“ „ ... þ.e. í kringum 15. mars þegar hrognin eru hæf til hrognatöku." Hvenær skyldu þau verða hæf til hrogna- máls? „ ... en fyrir þeirri tekju- rýrnum, sem ríkissjóður verður fyrir af þessum sök- um var gert ráð fyrir.“ Hér situr fyrirhyggjan greinilega í fyrirrúmi. „Aðalfundur Kvenfélags Framsóknarkvenna var haldinn 5. febr. sl.“ Þykir nú umsjónarmanni fullstaglað í bili og biður blaðamenn með góðu að láta ekki herma upp á sig þvílík- an sæg stagldæma á næstu mánuðum. Þetta er ekki nema lítið brot af ósköpur- um öllum. Kannski má segja staglinu til varnar, að ekki fari milli mála hvað átt sé við. Enginn getur verið í vafa um að báturinn, sem greinir frá í vísunni, fórst í hvassviðri. Vissulega er skýrleiki í fram- setningu góðra gjalda verð- ur, en stundum brestur þar nokkuð á líka. Kann vera að einnig komi til óverjandi skilningsleysi lesanda, en dæmum hér á eftir úr 3. bréfi Páls (til mín) vísa ég til annarra í von um skarpari skilning en minn: 1. Það var gagnrýnt að eng- inn blaðamannafundur var haldinn fyrir Is- landsmótið og að allt skipulag virtist losara- legt, m.a. var leikjum íslandsmótsins dreift á fyrsta leik íslandsmóts- ins.“ 2. „Við höfum ekki fjallað um fræðslumál, það hef- ur verið lögð sérstök áhersla á fræðslustarf." 3. „Þannig að ekki er óvíst með öllu að hærra greiðsluhlutfall Orku- sjóðs til jarðhitarann- sókna skili sér ekki bak- dyramegin í lægri olíu- styrk." 4. „Tillaga þessi felur ekki í sér ákveðnar tillögur um breytingar hér að lút- andi.“ 5. „Tillagan er feUd ef 50% bankamanna eða fleiri hafna henni, en skoðast samþykkt ef kjörsókn nær ekki 50% eða ef fleiri hafna henni." 6. „Þó að framleiðslulína Suzuki sé ekki breið verð- ur (auðk. hér) þessi litli japanski bíll eflaust til að verða sveiflujafnandi þáttur í rekstri Ford- umboðsins." 7. „ ... eigi að vera hægt að prjóna hana í réttari stærðum og minnka þar með afurð á efni.“ 8. „Velt er fyrir sér hvort kynið kúgi hitt innan þess ramma." 9. „... og inn í þá búð fer enginn bónleiður til búð- ar.“ 10. „Óþekkt rýrnun er hins vegar það sem t.d. gleym- ist að skrá, en hefur t.d. verið skipt sem gölluð vara og þ.h.“ Að öllu þessu vandlega athuguðu verður það okkur víst til lítillar huggunar, þó að ég heyri í fréttum út- varpsins að kjósa eigi forseta Frakklands í tvennu lagi. Skírdagsbingó í Sigtúni Kvennadeild Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra mun að venju standa fyrir Bingó í Sigtúni á skírdag. Á ári fatl- aðra mun félagið láta allan ágóða af Bingóinu renna til endurbóta á Sumardvalarheim- ilinu í Reykjadal í Mosfells- sveit, þar sem eingöngu dvelja fötluð börn sér til heilsubótar og ánægju. Birgir opnar í Nýlistasafninu Birgir Andrésson. myndlistarmað- ur. opnar sýningu i Nýlistasalninu við Vatnsstig 3b lauKardaKÍnn 18. april. Á sýningunni er verk, myndað úr mörgum einingum, en þær eru teikn- aðar og mótaðar í vax o.fl. Birgir lauk námi frá Myndlista- og handiðaskólanum árið 1977 og stund- aði framhaldsnám í Hollandi í eitt ár, við Jan Wan Fyke Akademie. Hann hefur haldið einkasýningar hér á landi og í Amsterdam og tekur þátt í samsýningum. Sýningu Birgis lýkur 2. maí. Innrömmun — Málverkasala — Speglasala Mikiö úrval af rammalistum fyrir málverk og allskonar myndir. Einnig állistar fyrir grafik myndir. Innrömmun Sigurjóns, Ármúla 22. Sími 31788. Fáksfélagar Dönsum út veturinn og fögnum sumri í Félagsheimil- inu, miðvikudaginn 22. apríl, síðasta vetrardag. Hljómsveit Þorsteins Guðmundssonar leikur. Húsiö opnaö kl. 21. Miðasala sama dag kl. 17—19. Skemmtinefndin. (2k)HÁTÍÐAR- FUNDUR veröur haldinn aö venju á föstudaginn langa, 17. apríl, í Háskólabíói kl. 20.30. Öllum opinn. Kaffiveitingar. Samstarfsnefnd Reykjavíkurdeilda AA Gestgiafinn TÍMARIT UM MAT ás\riftaf$imi: 50299

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.