Morgunblaðið - 16.10.1981, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 16.10.1981, Qupperneq 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. OKTÓBER 1981 Miðarnir ganga á 500 krónur á svörtum markaði TVÖ efstu liðin í þýzku deild- inni, Bayern Miinchen og FC Köln mKtatit á morgun í Köln og verður það leikur helgarinnar í l>ýzkalandi. „Það er gífurlegur áhugi á leiknum og allir miðar seldir fyrir mörgum vikum og tekur völlurinn þó 60 þúsund manns,“ sagði Ásgeir Sigur- vinsson í spjalli i gær. „Ég ætl- aði að útvega fólki í Liege miða en frétti þá að miðarnir gengju á 150 mörk (500 krónur eða 50 þúsund gkrónur) á svörtum markaði." Ásgeir bjóst ekki við þvf að verða S byrjunarliðinu hjá Bayern en var vongóður um að hann kæmi inn á í leiknum. Coe kjörinn sá besti ENSKI hlauparinn Sebastian ('oe virðist eiga fáa sína Hka hvað vinsældir snertir, en spænskir íþróttafréttamenn kusu hann í gær einróma besta frjálsíþróttamann veraldar fyrir árið 1981. Samtök spænskra íþróttafréttamanna kusu einnig besta knattspyrnumann Evrópu og besta knattspyrnumann Spán- ar. Besta knattspyrnumann Evr ópu 1981 kusu þeir belgíska landsliðsmanninn ian Ceule- mans, sem leikur með FC Brugge. Bestur á Spáni reyndist vera Vestur Þjóðverjinn Ulrich Stielike, sem leikur með Real Madrid. Rúmeni hvarf Rúmenskur unglingalands- liðsmaður gufaði upp í Astralíu í gær, en rúmenska liðið hefur verið þar við keppni síðustu vik- urnar, nánar tiltekið I HM-keppni unglingalandsliða. Strákurinn heitir Gheorge Visc- eranu og er 20 ára gamall bak- vörður frá Steua f Búkarest. Tal- ið er að hann sé í felum og hygg- ist biðja um h«eli sem pólitískur flóttamaður er rúmenska liðið hverfur heim á leið. Kovacs gamli var rekinn RÚMENAR voru ekkert yfir sig hrifnir, er knattspyrnulandslið þeirra tapaði 1—2 á heimavelli gegn Svisslendingum á dögun- um. 0—0 jafntefli gegn Ungverj- um nokkru áður vakti heldur ekki hrifningu. Eitt stig úr þeim leikjum gerði það að verkura, að Rúmenar áttu ekki lengur mögu- leika á sæti f lokakeppni HM á Spáni næsta sumar. Gremja Rúmena bitnaði á landsliðsþjálf- aranura Stefan Kovacs og var hann rekinn frá völdum. Hinn 61 árs gamli Kovacs er annars mjög kunnur þjálfari, en hann stjórnaði hinu sigursæla liði Ajax frá Hollandi snemma á átt- unda áratugnum. Kovacs hefur einnig þjálfað franska landslið- ið. Stórsigur hjá Dalvík SKALLAGRÍMIJR f Borgarnesi tekur nú f fyrsta sinn þátt f ís- landsmóti f handknattleik. Leik- ur félagið í 3. deild og fékk um helgina Dalvíkinga í heirasókn. Dalvfkingar sigruðu með 38 mörkura gegn 23. HBj. „Hvar eru apagrímurnar núna“ „ÉG VAR svo reiður að eftir að ég hafði skorað seinna jöfnunarmarkið hljóp ég til welsku landsliðsmann- anna og hrópaði: „Hvar eru apagrím- urnar núna helv. ... ykkar,“ sagði Asgeir Sigurvinsson, þegar við slóg- um á þráðinn til hans í Miinchen í gærkvöldi til að ræða landsleikinn gegn Wales í fyrrakvöld. Þar náði íslenzka landsliðið frábærum árangri, gerði jafntefli 2:2. Ásgeir var hetja leiksins, skoraði baeði mörkin. „Þannig var,“ sagði Ásgeir, „að á síðasta fundinum fyrir leikinn dró Guðni landsliðsþjálfari upp dagblað og sýndi okkur. í blaðinu var stór mynd af tveimur welskum landsliðsmönnum, Micky Thomas og Carl Harris, með apagrimur og undir stóð: Við gerum íslend- ingana að öpum í kvöld. Við urð- um auðvitað öskureiðir, gamla góða íslendingastoltið kom upp í okkur og við urðum staðráðnir í að láta þá éta þessi orð ofan í sig. Það má því segja að þessi fíflaskapur í þeim hafi átt einhvern þátt í því að Wales á nú litla möguleika á Það voru talsverð vonbrigði á Bret- landseyjum og gífurleg vonbrigði í Wales, með frammistöðu velska landsliðsins gegn íslandi, en sem kunnugt er, skildu liðin jöfn, 2—2 á Vetch Field í Swansea í fyrrakvöld. Mbl. aflaði sér upplýsinga um við- brögð í breskum blöðum og ræddi í því sambandi við einn af kunningj- um blaðsins í Grimsby. Fyrirsögn Daily Telegraph mætti þýða sem svo: Dofnar á ljósunum hjá Wales, því liðið tap- aði dýrmætu stigi til Islands. Um- fjöllun blaðsins er síðan öll á þá leið, að Wales-búar geti nagað sig í handarbökin vegna úrslitanna, en ekki sé við neinn að sakast nema þá sjálfa, Island hafi verð- skuldað annað stigið. Nefnir blað- ið Ásgeir Sigurvinsson og Arnór Guðjohnsen sem banamenn vona því að komast áfram í heims- meistarakeppninni." Skoraði með hælnum Welsku landsliðsmennirnir urðu að éta þessi orð aftur og gerðu sjálfa sig að öpum. „Þetta er einn bezti landsleikur sem ég hef spilað og með beztu landsleikjum sem ég man eftir hjá íslenzku liði. Þeir sóttu mun meira til að byrja með og við fengum á okkur hálfgert klaufamark. Undir lok seinni hálf- leiksins fórum við að ná betri tök- um á leiknum og jöfnuðum fljót- lega eftir hlé. Arnór lét upp hægra megin og inn að markteig. Hann gaf fyrir markið og ég náði boltan- um við nærstöngina, aðeins 25—30 sentimetra frá markinu gæti ég trúað. Markmaðurinn hefur ef- laust búist við því að ég gæfi bolt- ann áfram fyrir markið og færði sig frá stönginni. Það opnaði möguleika fyrir mig og ég tók boltann á hægri fótinn og skoraði með hælspyrnu. Boltinn þaut milli markmannsins og stangarinnar. Óvenjulegt mark hjá mér, vægast sagt. Wales, því Ásgeir hafi skorað bæði mörkin, en Arnór lagt bæði upp. Daily Mail segir í fyrirsögn: „Vonir Wales dvina eftir frábæra byrjun í undankeppninni." Síðan segir blaðið að Arnór Guðjohnsen hafi nýtt sér og sýnt fram á getu- leysi varnarmanna Wales, er hann lagði upp bæði mörk íslands. Þá segir blaðið velska liðið hafa sýnt mikinn baráttuvilja framan af leiknum og gert vel að skora snemma leiks gegn „varnarvegg Islendinga, sem bauð ekki upp á marga möguleika". The Star segir ljósin hafa slokknað hjá Wales og öll blöðin sem hér er vitnað í, leika sér í fyrirsögnum sínum með flóðljósa- málið, en eins og fram hefur kom- ið, slokknaði tvívegis á flóðljósun- um á Vetch Field, þannig að leik- I>rumufleygur I seinni hálfleiknum spiluðum við mjög vel og vorum óheppnir að fá á okkur mark. Wales skoraði eftir hornspyrnu vegna misskiln- ings í völdun. En við jöfnuðum fljótlega, Arnór lék upp vinstra megin og gaf boltann inn í teiginn. Varnarmaður spyrnti frá en að- eins út að vítateigslínunni, 2—3 metra til hliðar við markið. Ég var þar staddur og eygði smugu milli markmannsins og nærstangarinn- ar. Ég ákvað að láta skotið vaða og sem betur fer hitti ég boltann mjög vel og hann þaut í netið al- veg eins og ég hafði vonað. Litlu munaði að ég skoraði þriðja mark- ið. Pétur Ormslev lék þá upp en missti boltann of langt frá sér. Hann vissi ekki að ég var óvaldað- ur við hliðina á honum, ef hann hefði getað gefið á mig hefði ég verið á vftapunkti með mark- manninn einan til varnar. í þeirri stöðu hefði ég ekki klikkað, svo ákveðinn var ég í því að láta þá welsku fá fyrir ferðina." urinn tafðist í allt um 40 mínútur. The Star hælir mjög Arnóri Guð- johnsen, segir gífurlegan hraða ljóshærða víkingsins hafa splundrað velsku vörninni er hann lagði upp bæði mörk íslands. (The blond vikings searing pace....) The Star grefur einnig eftir afsökun- um, segir íslenska liðið hafa feng- ið tækifæri til að ná sér eftir stór- sókn Wales, er slokknaði á flóð- ljósunum í fyrsta skiptið. Það er því gegnumgangandi vonbrigði í bresku blöðunum, vonbrigði með að Wales skyldi ekki sigra og tryggja farseðilinn til Spánar. En fréttaflutningurinn er einnig mjög sanngjarn í garð íslendinga og ekkert tekið af þeim. Sem dæmi má taka ummæli Mike England í leikslok: „Við vorum heppnir að ná jafntefli." —gg. „Eigum að geta unnið hvaða lið sem er á góðum degi“ Aðspurður sagði Ásgeir að ís- lenzka landsliðið væri orðið mjög samstillt og gott að hans mati. „Við höfum náð upp góðum kjarna, sem verður að reyna að halda saman. Það sem vantar er meiri samæfing. Það verður stundum misskilningur milli manna sem mætti koma í veg fyrir með meiri samæfingu. Við hefðum ekki fengið á okkur bæði mörkin í leiknum hefði samæfingin verið meiri. Það er mín skoðun að lands- liðið okkar sé orðið það sterkt, að það geti unnið hvaða lið sem er á góðum degi heima á Laugardals- vellinum. Eg hef tekið eftir því að góður árangur okkar hefur víða vakið athygli. Þegar ég kom t.d. á æfingu hjá Bayern í dag voru menn að spyrja mig um leikinn en enginn var hissa, menn eru greini- lega hættir að verða hissa þótt við stöndum okkur vel gegn sterkum liðum í Evrópu." Vill endurráða Guðna Samningur Guðna Kjartansson- ar við KSI er útrunninn og Ásgeir var spurður að því hvern ætti að ráða. „Ég er þeirrar skoðunar að KSÍ eigi að endurráða Guðna og það er skoðun flestra í landsliðinu tel ég. Guðni hefur náð mjög góð- um árangri, betri en nokkur ann- ar. Hann heldur hópnum vel sam- an og er laginn við að skapa bar- áttustemmningu hjá liðinu." — SS Hudson kemur! EKKERT verður úr því að Art Housey komi og leiki með körfu- knattlciksliði KR eins og rætt hafði verið um. í hans stað kemur gamal- kunnur kappi, John Hudson, en hann hefur leikið á Grikklandi upp á síðkastið. Hudson mun leika með KR uns Stu Johnson hefur náð sér í fingrinum. Iludson lék með KR fyrir 3 árum. —gg. Gífurlegur hraði Ijóshærða Víkingsins ... Greinarger0 KRA vegna kærumals IA gegn KR EINS og flestum knattspyrnuáhuga- mönnum mun nú kunnugt, þá er lok- ið máli því sem KRA stóð í gegn KR á dögunum. Vegna þess hve máli þessu voru gerð lítil skil í fjölmiðl- um vill KRA gera stutta grein fyrir málinu eins og það lítur út frá okkar bæjardyrum séð. Til að spara rými þá verður hér aðeins stiklað á stóru og minnst á aðalatriði málsins. Eins og menn muna spruttu deilurnar út af atviki i leik KR gegn ÍA í 1. deild þann 3.9. sl. At- vikið var í stuttu máli það að Óskar Ingimundarson fær rautt spjald fyrir að yfirgefa leikvöllinn í leyfisleysi (hann hafði fengið gult spjald áður). Eftir að hann fær rauða spjaldið er Atli Þór Héðinsson sendur inn á völlinn í stað Óskars. í knattspyrnulögun- um segir að ekki megi setja leik- mann inn á fyrir þann sem hefur verið rekinn af leikvelli. Á þeim forsendum byggðum við okkar kæru. Okkur var ljóst að tvennt hafði gerst. í fyrsta lagi setja KR-ingar mann inn á fyrir mann sem stuttu áður hafði fengið rautt spjald. Það hlýtur að vera öllum sem hafa komið nálægt knatt- spyrnu ljóst að það má ekki. í öðru lagi gerist það að dómarinn gefur varamanni leyfi til að koma inn á, hann brýtur einnig lögin. í hita leiksins verður báðum aðilum á mistök á viðkvæmu augnabliki, KR er nýbúið að ná forystu í leiknum og Skagamenn leggja allt í það að jafna á síðustu mínútun- um sem oft hafa reynst liðinu drjúgar í sumar. Atvikið er síðan kært til sér- ráðsdóms KRR. Sá dómur tekur málið fyrir og sýknar KR-inga á alröngum forsendum (sjá með- fylgjandi ljósrit). KRA sættir sig ekki við niðurstöðurnar og telur að spurningunni sé ósvarað. Við áfrýjum til dómstóls KSI. Dómur- inn ákveður að hraða málinu, svo niðurstaða liggi fyrir áður en síð- asti leikurinn í 1. deild fer fram. Það reynist ekki hægt, þar sem KR biður um frest. Þá gerist sér- stakt atvik. Formaður KSÍ til- kynnir það í Morgunblaðinu að verðlaun í Islandsmótinu verði af- hent að loknum leik Víkings og KR þrátt fyrir kæru okkar, sem e.t.v. hefði getað breytt röð efstu liða. Úr því að Víkingur vann KR þá var að sjálfsögðu hægt að af- henda þeim verðskulduð sigur- laun, en öðru máli gegndi um Fram, þeir tóku á móti verðlaun- um, sem þeir áttu á hættu að missa nokkrum dögum síðar, eða hvað? Þessi ákvörðun formanns- ins er að okkar mati óvirðing við dómstól KSI svo ekki sé meira sagt. Það liggur í augum uppi að dómstóllinn er í miklu erfiðari að- stöðu til að kveða upp hlutlausan dóm. Áfrýjun er síðan tekin fyrir og dómur upp kveðinn: KR sýknað (sjá ljósrit). Að okkar mati eru dómsniðurstöður svo loðnar að spurningunni er enn ósvarað: Má setja mann inn á í stað þess sem rekinn er út af? Vegna þrengsia hefur ekki ver ið unnt að birta þetta fyrr en nú. — gg. Urskurður dómstóls KSÍ í MÁLINU var síðan kveðinn upp svohljóðandi dómur: Atvik málsins eru þau, að undir lok leiks í I. deild milli KR og ÍA hinn 3. sept. sl. vék einn leik- manna KR af leikvelli meðan leik- ur var stöðvaður og án samráðs við dómara. Jafnframt kom þá vara- maður inn á leikvöllinn. Dómarinn veitti þessu athygli, áður en leikur inn hófst að nýju. Kallaði hann þá til sín leikmanninn, sem vikið hafði af ieikvelli og sýndi honum „rautt spjald“, en fyrr í leiknum hafði hann sýnt sama leikmanni „gult spjald". Síðan kallaði dómar inn leikmanninn, sem kom inn á völlinn til sín og sýndi honum „gult spjald". Þá flautaði dómar inn leikinn á að nýju. Áfrýjandi telur, að kærða hafi ekki verið heimilt að láta vara- mann hefja leik í stað leik- manns, sem dómarinn hafði sýnt „rautt spjald". Telur áfrýjandi, að kærði hafi þar með notað óhlutgengan leikmann og beri því að dæma honum leikinn tap- aðan, sbr. 3. mgr. 27. gr. reglu- gerðar KSÍ um knattspyrnumót. Af hálfu kærða er m.a. bent á, að dómarinn hafi enga athuga- semd gert við þátttöku vara- mannsins í leiknum, hann hafi skráð nafn varamannsins hjá sér og gefið honum að auki „gult spjald" vegna innáskiptingar. Telur kærði, að dómarinn hafi gert mistök í því að sýna þeim leikmanni „rautt spjald", sem vék af leikvelli, og hafi einhver mistök orðið við dómgæzluna sé ekki við kærða að sakast. Eins og mál þetta er vaxið tel- ur dómstóllinn ekki, að hið kærða félag hafi brotið ákvæði laga eða reglugerða um knatt- spyrnumót, sem valdi því, að leikurinn dæmist ógildur eða tapaður fyrir kærða, þótt ljóst sé, að viss mistök hafa orðið við dómgæzlu leiksins. Ber því að staðfesta niðurstöðu hins áfrýj- aða dóms. Dómsorð: Hinn áfrýjaði dómur á að vera óraskaður.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.