Morgunblaðið - 04.07.1982, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 04.07.1982, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. JÚLÍ 1982 Stúlka í hvíld eftir Einar Hákonarson Morgunblaðið/ Emilía Bjarni GuAjónsson listmálari <>t! Ási í Bæ rithöfundur voru aó skoóa Listmálarasýninguna. Myndirnar þrjár til vinstri eru málverk Svavars en til hægri er Siguröur Örlygsson Fyrsta sýning Listmálarafélagsins á Kjarvalsstöðum: » Við eigum það sammerkt að mála myndir U Listmálarafolagið, sem stofnað var í einfaldlega sá að þétta liðiö, því það apríl sl. af 21 listmálara heldur nú er orðið alvörumál hvað fúskið er fyrstu sýninguna á sínum vegum í Kjarvalsstöðum þar sem allir félagar sýna myndir. Eru þar til sýnis 78 mál- verk eftir félagsmenn, sem eru úr öll- um aldursflokkum listmálara. Við lit- um inn á sýninguna og er mikið við að vera í Kjarvalsstöðum um þessar mundir, Kjarvalssýning í Kjarvalssal, stórkostlega falleg sýning og sérstak- lega vel sett upp af Gylfa Gíslasyni, í miðskála er viðamikil sýning Magn- úsar Tomassonar og í Vestursal er sýning Listmálarafélagsins. I»á er rétt að geta Ijómandi vistlegrar kaffistofu, sem tekið hefur á sig heimilislegan blæ. „I»að má segja að Listmálarafé- lagið hafi byrjað þannig að 8 málarar komu saman síðla vetrar og ákváðu að standa að stofnun félags fyrir listmálara og næsta skref í málinu var að bjóða 13 öðrum listmálurum að gerast stofnfélagar,“ sagði Einar For- láksson listmálari í samtali við Mbl. um sýningu þeirra félaga. „Við eigum það allir sammerkt,“ sagdi Einar, „að mála málverk. Við höfum ákveðið að fara rólega af stað og vera ekki fleiri í upphafi, hvað þróast á eftir að koma í Ijós. Tilgangurinn með félaginu er mikið í málaralistinni á Islandi. Staða alvöru-málara á Islandi í dag er ekki ósvipuð því og þegar Þorgeir Hávars- son hékk í bjarginu, og því er ástæða til þess að listmálarar þjappi sér sam- an, þetta eru orðin allskyns félög, grafik og eitt og annað, en við erum hins vegar ekkert á móti áhuga- mennsku í málaralist og list yfirleitt, en það er ekki þar með sagt að allir eigi að sýna.“ Einar sagði ekki Ijóst hvert framhald yrði á starfsemi Listmálarafélagsins í bráð, nú væri farið af stað í nafni málaralistarinnar, hvorki hægri né vinstri, heldur í nafni málverksins. í Listmálarafélaginu eru Einar Bald- vinsson, Vilhjálmur Bergsson, Kjart- an Guðjónsson, Þorvaldur Skúlason, Gunnar Örn Gunnarsson, Hafsteinn Austmann, Bragi Asgeirsson, Steinþór Sigurðsson, Ágúst Petersen, Valtýr Pétursson, Kristján Davíðsson, Karl Kvaran, Svavar Guðnason, Elías B. Halldórsson, Sigurður Örlygsson, Guðmunda Andrésdóttir, Einar Þor- láksson, Einar Hákonarson, Jóhannes Jóhannesson, Hrólfur Sigurðsson og Sigurður Sigurðsson. A haustsýningu eftir Agúst Petersen

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.