Morgunblaðið - 22.02.1986, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 22.02.1986, Blaðsíða 1
I .. 48 SÍÐUR OG LESBÓK 44, tbl. 72. árg. LAUGARDAGUR 22. FEBRÚAR1986________________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins Hundalíf AP/Símamynd ÍBÚÐARHÚS i úthverfinu Linda i borginni Marysville i Kali- forniu fóru að mestu undir vatn i gœr er áin Yuba flæddi yfir bakka sína í gifurlegum vatnavöxtum og ofsaveðri, sem verið hefur i rikjum við vesturströnd Bandaríkjanna siðustu dægur. Kjölturakkarnir björguðu sér upp á húsþak og biðu þar unz björg barst. Tilræði við ráðgjafa Craxis: Ottast öldu hryðjuverka írakar lýsa land- vinningum á Faw- skaganum ^ Nikósfu, 21. febrúar. AP. ÍRAKAR héldu þvi fram að sveitir þeirra hefðu endur- heimt stór svæði, sem íransk- ar hersveitir hefðu lagt undir sig á Faw-skaganum við Persaflóa, en íranir vísuðu þessu á bug og sögðust hafa hrint öllum sóknartilraunum íraka. Báðir stríðsaðilar kváðust hafa skotið niður flugvélar hins en enga misst sjálfír. íranir kváðust hafa skotið niður fímm íraskar herflugvélar í dag, eða 52 á 12 dögum. írakar sögðust hafa skotið tvær íranskar flug- vélar, orrustuþotu og flutninga- vél, og samtals 14 á 11 dögum. íranir flugu 42 hermönnum, sem sagðir eru hafa orðið fyrir barðinu á eiturefnavopnum, til Englands og Hollands í dag til að leita þeim læknishjálpar. Einn þeirra lézt skömmu fyrir komuna til Hollands. íranir ítr- ekuðu ásakanir um að írakar notuðu efnavopn í Persaflóa- stríðinu. Samtök skæruliða, sem beij- ast gegn klerkastjórninni í Teheran, sögðu í dag að Fok- ker-flugvélin, sem írakar skutu niður í gær, hafi verið herflutn- ingaflugvél, en ekki farþega- flugvél í áætlunarflugi, eins og íranir halda fram. Aðrar heim- ildir á Persaflóasvæðinu hermdu að flugvélin hefði verið nýfarin frá Ahvaz með særða hermenn er hún var skotin niður. íranir ítrekuðu að með flugvélinni hefðu farizt sérlegur fulltrúi Khomeini erkiklerks og sex þingmenn. Rómaborg, 21. febrúar. AP. FJÓRIR hryðjuverkamenn segjast hafa sýnt Antonio da Empoli, æðsta efnahagsráðgjafa ítölsku stjórnarinnar, til- ræði vegna þess að hann bæri ábyrgð á fjárlögum sem væru „andsnúin verkamönnum". Fjórmenningarnir særðu da Empoli skotsári í dag. Yfirvöld óttast að ný alda hryðju- verka sé að hefjast á Ítalíu. í dreifíbréfí, sem hryðjuverka- mennimir skildu eftir á árásar- staðnum, kváðust þeir vera félag- ar í „Baráttusamtökum kommún- ista“. Ætlað er að menn, sem klufu sig frá Rauðu herdeildunum í hitteðfyrra, hafí stofnað sam- tökin. Arásarmennimir vom á tveimur mótorhjólum og hófu skotárás á Da Empoli er hann staðnæmdist hjá blaðasala, skammt frá heimili sínu. Bflstjóri da Empoli svaraði skothríðinni og særði einn árásar- mannanna, konu, til ólífís, en hinir komust undan og er þeirra ákaft leitað. Konan hét Vilma Monaco og var á skrá yfír eftir- lýsta félaga í Rauðu herdeildun- um, hinum illræmdu ítölsku hryðjuverkasamtökum. Hún var eiginkona eins af leiðtogum her- deildanna. Da Empoli er hægri hönd Bettino Craxi, forsætisráðherra, og aðalráðgjafí ítölsku stjómar- innar í efnahags- og flármálum. Hann er 47 ára og var háttsettur starfsmaður í aðalstöðvum Ev- rópubandalagsins í Bmssel 1977-1983. Hann særðist á oln- boga og fæti og verður rúmfastur fyrst um sinn. AP/Símamynd VILMA Monaco helsærð eftir árás hryðjuverkamanna á Atnoni Da Empoli, aðalráðgjafa ísraelsku stjórnarinnar í efnahagsmálum. Bíl- stjóri Da Empoli skaut á hryðjuverkamennina og tókst að særa Monaco, sem gift var einum af leiðtogum Rauða herdeildanna, til ólífis. ísraelar hverfa frá S-Líbanon Kfar Dounine, Líbanon, 21. febrúar. AP. MOSHE LEVY, yfirmaður alls ísraelska heraflans, sagði i kvöld að ísraelar hefðu flutt obbann af hersveitum sínum, sem leitað hafa tveggja her- manna í suðurhluta Líbanons, á brott. Til harðra skotbardaga kom er israelskar hersveitir gerðu áhlaup á shítaþorpið Kfar Dounine í kjölfar árása líbanskra skæruliða á sveitim- ar, sem leituðu fimmta daginn í röð að hermönnunum tveimur. ísraelar umkringdu þorpið og gerðu síðan áhlaup á skriðdrekum. Hermenn fylgdu í kjölfarið. Tals- maður friðargæzluliðs Sameinuðu þjóðanna sagði mikinn skotbardaga hafa brotist út. Sprengingar kváðu við og svartir reykjarmekkir stigu upp af þorpinu. ísraelar tóku 70 þorpsbúa til yfírheyrzlu í mosku þorpsins. Gerðu hermennimir hús- leit í hverju húsi. Þá gerðu ísraelskar cobra-þyrlur og skriðdrekasveitir árásir á skæru- liðastöðvar víða í suðurhluta Líban- ons. Talið er að um 1.500 ísraelskir hermenn taki þátt í leitinhi að hermönnunum tveimur. Óttast er að þeim verði veitt öflugri mót- spyrna ef vera þeirra dregst á lang- inn. ísraelar hafa tekið 130 shíta til fanga í aðgerðunum, en samtök shíta segja mennina vera 327. Blaðið Al-Ahd í Líbanon birti í dag mynd, sem sögð er af ísraelsku hermönnunum tveimur. Shítasam- tökin, sem tóku þá til fanga, kveðj- ast hafa tekið annan þeirra af lífí og blaðið kvað myndina tekna stuttu fyrir aftökuna. Á veggjum herbergis, sem myndin var tekin í, var að sjá myndir af andlegum leið- togum shíta, m.a. Khomeini erki- klerk írana. Skiptar skoðanir um stöðu dollars Washington, 21. febrúar. AP. PAUL VOLCKER, seðlabankastjóri, sagði stöðu Bandaríkjadollars orðna varhugaverða og varaði við frekari lækkun. James A. Baker, fjármálaráðherra, og Clayton Yeutter, fulltrúi viðskipta- ráðuneytisins, segja frekari lækkun jákvæða. Agreiningur seðla- bankastjórans og ríkisstjómarinnar um þróun dollars kom í Ijós er Volcker, Baker og Yeutter sátu fyrir svöram hjá þingnefndum í dag og gær. Volcker sagði áframhaldandi lækkun dollars geta hleypt verð- bólgu af stað og leitt til þess að útlendingar, sem lagt hefðu í fjár- festingar f Bandaríkjunum, kipptu að sér hendinni. Frekari lækkun gæti því valdið bandarísku efna- hagslffí stórtjóni. „Við erum að nálgast bjargbrúnina," sagði Volck- er. Baker og Yeutter sögðu æskilegt að dollar félli um önnur 10-15% til viðbótar við 30% verðlækkun í fyrra. Það, ásamt áframhaldandi lækkun olfuverðs, hefði í for með sér að viðskiptahalli við útlönd minnkaði stórum, eða úr 148,5 milljörðum dollara um sfðustu ára- mót í 10 milljarða um þau næstu. Olíuverð lækkaði á kaupmarkaði f New York í dag og var fatið af hráolíu skráð þar á 14_ dollara. Hefur verðið ekki verið lægra. Á sama markaði var fatið skráð á 30 dollara í nóvemberlok.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.