Morgunblaðið - 17.03.1988, Blaðsíða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. MARZ 1988
Gœðanna vegna!
co
1
Milljónirá hverjum laugardegi. Upplýsingasími: 685111
OPIÐ BRÉF TIL AL-
ÞINGISMANNA
eftirRúnar
Guðbjartsson
Kæru þingmenn, ykkur fínnst
kannski að bera í bakkafullan læk-
inn að senda ykkur bréf um bjór-
frumvarpið, sem þið þurfið núna
að taka afstöðu til.
En ég held að öll sú umræða sem
orðið hefur um áfengi og önnur
vímuefni séu af hinu góða og komi
til að hjálpa bæði ykkur og þjóðinni
til að mynda sér skoðanir í þessu
viðkvæma máli.
Það eru orðin nokkuð mörg ár
síðan, að ég fékk áhuga á áfengis-
og vímuefnamálum og síðan hef ég
leitast við áð kynna mér þessi mál
eins og ég hef frekast getað bæði
með lestri fræðirita og sótt fyrir-
lestra bæði hér heima og í Banda-
ríkjunum.
Ég hefði helst kosið að geta ver-
ið meðal ykkar og deilt minni
reynzlu, og ég gerði heiðarlega til-
raun til þess, það tókst nú ekki í
það skiptið, svo að bréf verður að
duga núna.
Það fyrsta sem ég gerði mér ljóst
er hversu óskaplega mikill skað-
valdur áfengi er, það má segja,
nánast án undantekningar, að þar
sem einhver harmleikur er, þá er
áfengi eða önnur vímuefni við hlið-
ina og ótal sjúkdómar og slys, ekki
bara drykkjusýki, eiga rætur til
neyzlu vímuefna.
Flestar þjóðir eru búnar að gera
sér þetta ljóst, en eru ekki sam-
mála um lausnir á vandamálinu, en
eitt eru allir sammála um, því meiri
áfengisneyzla á íbúa því meiri er
skaðinn.
Þá kemur eitt athyglisvert í ljós,
við íslendingar erum meðal þeirra
þjóða, sem nota hvað minnst áfengi
og munar á frændum vorum í
Skandinavíu tugum og hundruðum
prósenta, ef við tökum til dæmis
árið 1985, samkv. Yearbook of
Nordic statistics, þá drukku: Danir
15 ára og eldir 12,11 1 af hreinum
vínanda, 180,3% meira en við.
Norðmenn 15 ára og eldri 5,14 1
af hreinum vínanda, 19,0% meira
en við. Svíar 15 ára og eldri 6,07 1
af hreinum vínanda, 40,5% meira
en við. Færeyingar 15 ára og eldri
6,59 1 af hreinum vínanda, 52,5%
meira en við. Islendingar 15 ára
og eldri 4,321 af hreinum vínanda.
Þetta eru staðreyndir sem þið
verðið að horfa á, og þetta er ein-
göngu að þakka að áfengur bjór
hefur ekki verið leyfður hér á landi
í fímmtíu ár, BJÓRBANNIÐ HEF-
UR VIRKAÐ.
Mér finnst í raun allt tal um að
við þurfum að líta til reynzlu ann-
arra þjóða út í hött, við höfym
reynzluna fyrir augum NUNA.
Bjórunnendur hafa reynt að gera
lítið úr þessum árangri og segja að
þessar tölur séu ekki marktækar
hjá okkur, en réttar hjá Skandinöv-
um. Ein aðalástæðan er talin sú,
að við verzlum svo mikið í Fríhöfn-
inni á Keflavíkurflugvelli og það
áfengi sé ekki talið með.
Því er til að svara, að það er
nákvæmlega sama vandamálið hjá
Skandinövum, það eru alls staðar
fríhafnir á flugvöllum, og áfengi
er seit tollfrítt í flugvélum, feijum,
jámbrautum, og við landamæra-
stöðvar.
Rúnar Guðbjartsson
„Ekkert er eins leiðandi
fyrir ungt fólk, hvort
það velur líf með eða
án vímu, en bjór-
drykkja, því að hún er
öðruvísi en önnur
áfengisneyzla, vegna
þess í hve handhægum
umbúðum bjórinn er
seldur, hann er notaður
sem svaladrykkur og
með mat og á áhorf-
endapöllum íþróttaleik-
vanga, á ferðalögum,
nánast hvar sem er,
hvenær sem er, og það
er sannfæring mín að
þegar unga fólkið er
farið að nota einn vímu-
gjafa þá er orðið styttra
í að nota aðra vímu-
gjafa, bæði í föstu,
fljótandi og reyk-
formi.“
Einnig er Fríhöfnin hjá okkur
ódýr og farþegar til og frá Banda-
ríkjunum verzla þar þó nokkuð, þar
að auki er hún eina fríhöfnin sem
ég þekki til, sem leyfir farþegum
að kaupa áfengi þegar þeir koma
til landsins, þetta nota erlendir
ferðamenn sér óspart, í stað þess
að burðast með áfengið með sér í
flugvélum til landsins, þannig að
sala til íslendinga er aðeins hluti
af áfengissölu Fríhafnarinnar.
Um þetta séríslenzka fyrirbrigði,
sem bjórinnflutningurinn er þá má
benda á, að leyft er að koma með
tollfrjálst annaðhvort 1 lítra af milli
„sterku" áfengi, EÐA bjórskammt-
inn. íslendingar velja mikið bjórinn,
en Skandinavar, þegar þeir verzla
í sínum fríhöfnum, kaupa „sterka“
áfengið, þar sem bjór er leyfður í
Skandinavíu, þetta áréttar enn einu
sinni, að allt tal um að sala á
Fríhöfninni á Keflavíkurflugvelli
breyti einhverju um niðurstöður
Yearbook of Nordic Statistics hafa
ekki við rök að styðjast.
Bjórunnendur segja að áfengi sé
aðeins dýrt hér á landi og að allir
íslendingar kaupi tollfrjálst áfengi
þegar þeir geta, þetta er ekki rétt,
í Kaupmannahöfn kostar til dæmis
flaska af Ballantines Whisky 0,70L
209 dkr eða um 1300 íkr á móti
1620 kr. hér, sem ég tel hlutfalls-
lega svipað verð, enda virðist mér
eftir áratuga rölt um flughafnir
Skandinavíu, frændur okkar nota
sér þessi tollfríðindi ekki síður en
við.
Bjórunnendur segja líka, að við
smyglum meira áfengi en aðrar
þjóðir, ég er ekki sömu skoðunar,
tollgæzlan hér hefur nefnilega þá
óskastöðu að nánast öll ferða-
mannaumferð til og frá landinu fer
um eina tollstöð á Keflavíkurflug-
velli, en aðrar þjóðir eins og Skand-
inavar þurfa yfirleitt að glíma við
tugi tollgæzlustaða, einnig finnst
mér eftir margra ára reynzlu toll-
gæzlan hér heima snöggtum sam-
viskusamari en t.d. í Skandinavíu.
Bjórunnendur tala mikið um
frelsi til að velja sér tegund vímu-
gjafa í formi áfengis, þeir vilja fá
sér veikan vímugjafa i stað sterks.
En þetta hefur ekki við rök að styðj-
ast, því allt áfengi (vínandi) er í
raun jafn sterkt, þar er bara mis-
munandi mikið þynnt út áður en
það er selt. Einn tvöfaldur sjúss af
whisky blandað með vatni í glas
er sama vínandamagn og í einni
50el dós af venjulegum sterkum
bjór eða um 2,4cl hreinn vínandi,
eini munurinn er sá að búið er að
blanda bjórdrykkinn og hann er til-
búinn til neyzlu strax. Fyrir nokkru
sat ég ráðstefnu um vímuefnamál
hér í Reykjavík það skýrði Ólafur
Ólafsson landlæknir frá því, að eitt
það nýjasta á eiturlyíjamarkaðinum
í dag væri heróín útþynnt og pakk-
að f mátulega skammta, þannig að
neytandinn gæti neytt þess án fyrir-
hafnar á stundinni, auðvitað er
þetta ekki minna hættulegt en
óblandað heróín.
Við skulum tala aðeins meira um
frelsið, til skamms tíma þótti það
frelsi, að fá að reykja hvar sem
var, og skipti þá ekki máli hvort
það mengaði andrúmsloftið fyrir
öðrum, en nú er það almennt viður-
kennt að frelsi þeirra sem ekki
reykja er meira og þeir eiga skilyrð-
islaust rétt á að vera ftjálsir frá
tóbaksmengun annarra, og nú er
ég kominn að kjama málsins.
Ekkert er eins leiðandi fyrir ungt
fólk, hvort það velur líf með eða
án vímu, en bjórdrykkja, því að hún
er öðruvísi en önnur áfengisneyzla,
vegna þess í hve handhægum um-
búðum bjórinn er seldur, hann er
notaður sem svaladrykkur og með
mat og á áhorfendapöllum íþrótta-
leikvanga, á ferðalögum, nánast
hvar sem er, hvenær sem er, og
það er sannfæring mín að þegar
unga fólkið er farið að nota einn
vímugjafa þá er orðið styttra í að
nota aðra vímugjafa, bæði í föstu,
fljótandi og reykformi.
Þetta er ein aðalástæða mín fyr-
ir því að vera á móti bjórnum, því
að ef einhvem tímann, eitthvert af
mínum börnum eða afabörnum er
komið með sprautunálina í hand-
legginn þá veit ég að ég hef lagt
mitt að mörkurh, til að gera um-
hverfið eins lítið leiðandi og mögu-
legt er.
Bjórunnendur tala mikið um, að
mikill meirihluti íslendinga vilji af-
• . jiEYKJAVÍK
Sigtún 38, 105 Reykjavik. Simi 689000 telex 3135.
Verið velkomin