Morgunblaðið - 17.03.1988, Blaðsíða 64
64
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. MARZ 1988
Kársnesbraut 1Q6. Simi 46044 - 65l. .2.
Viljirðu eitthvað
vandlega fest
vertu & föstu meöt
‘uKHHSuEC!©
Thorsmans þan-múrboltinn:
Festing fyrir þunga hluti í
steypu. Örugg festing.
Thorsmans naglatappinn: Plast-
tappi meö skrúfunagla. (Þaö
nýjasta í dag...) Örugg festing
í vikurplötur og steinsteypu.
Thorsmans sjökrækjan. Upp-
hengja fyrir lampa, rör o.fl. í
stein og plötur. Þægilegt —
hentugt.
Thorsmans múrtappinn með
þanvængjum. Betra toggildi. Til
festingar fyrir þunga hluti.
Örugg festing.
Thorsmans-monomax: Festing
fyrir plötur 3-26 mm. Ath. aðrar
geröir fyrir þykkri plötur.
Jtf RÖNNING
SUNDABORG 15/104 REYKJAVÍK/
SÍMI (91)84000
HANDKNATTLEIKUR / BIKARKEPPNIN
Fyrsta tap FH-inga í vetur:
„Þegar svona stemmn-
ing er fyrir hendi getur
ekkert lið stöðvað okkur
- sagði Guðmundur Hrafnkelsson, markvörður UBK, eftir sigurinn á FH
BREIÐABLIK sigraði FH örugg-
lega, 28:21, í bikarkeppninni í
gærkvöldi í Digranesi — og var
þetta fyrsta tap FH-inga á
keppnistímabilinu. Liðin mætt-
ust á sama stað í deildinni á
sunnudaginn og þá sigraði FH
30:24.
Það var fyrst og fremst gífurleg
barátta Blika, og stórgóð liðs-
heild, sem færði þeim sigurinn í
gærkvöldi. Þeir ætluðu greinilega
_■■■■■ ekki að láta það ger-
Skapti ast að tapa tvívegis
Hallgrímsson fyrir FH með fárra
skrífar daga millibili
frammi fyrir sínum
eigin áhorfendum, því strax frá
fyrstu mínútu léku þeir af mikilli
festu.
„Við bjuggum okkur mjög vel, sál-
fræðilega, undir þennan leik. Þegar
svona stemmning er fyrir hendi í
liðinu getur ekkert lið stöðvað okk-
ur. Nú setjum við stefnuna beinustu
leið á bikarinn," sagði Guðmundur
Hrafnkelsson, landsliðsmarkvörð-
urinn snjalli hjá Blikunum, i sam-
tali við Morgunblaðið á eftir. Guð-
mundur lék sérlega vel í markinu,
varði hátt í 20 skot og kórónaði
góðan leik með því að skora 27.
markið með skoti yfír endilangan
völlinn í lokin.
Breiðablik komst í 4:0 í upphafi,
en FH-ingamir náðu að jafna 8:8.
A þeim kafla skoraði Breiðablik
ekki mark í 10 mínútur. Staðan í
hálfleik var svo 10:8 fyrir UBK.
Framan af síðari hálfleik var leikur-
inn í jafnvægi, Blikamir þó yfirleitt
á undan að skora. FH komst yfír
15:14, en þá kúventist leikurinn.
Blikar gerðu fímm mörk í röð —
staðan þá 19:15, síðan 24:17 og
lokatölumar 28:21. Omggur sigur
og sanngjam. FH-ingarnir vom
hreinlega hættir tíu mín. fyrir leiks-
lok, ofurliði bomir af frískum Blik-
um.
Liðsheild Breiðabliks var góð sem
fyrr segir. Guðmundur varði mjög
vel, Jón Þórir var geysilega spræk-
ur í sókninni og vöm Breiðabliks
var mjög góð. Blikar náðu að halda
Héðni alveg niðri, klipptu nokkuð
vel á homamennina, Þorgils Óttar
var tekinn óvenju vel úr umferð,
en Blikum gekk reyndar illa að ráða
við Guðjón Amason. Hann var lang
atkvæðamestur FH-inga. Héðinn
var langt frá sínu besta. Hann á
við bakmeiðsli að stríða og náði
ekki að beita sér sem skildi. Þurfti
reyndar að fara af velli í talsverðan
tíma í seinni hálfleik. Homamenn
FH, Gunnar og Einar, vom heillum
horfnir og það var ekki fyrr en
Pétur Petersen kom í vinstra hornið
að eitthvað fór að gerast þar.
Mörk UBK: J6n Þórir Jónsson 9, Bjöm
Jónsson 4, Hans Guðmundsson 4, Andrés
Magnússon 3, Svafar Magnússon 2, Aðal-
stcinn Jónsson 2, Kristján Halldórsson 1,
Þórður Davíðsson 1, Ólafur Bjömsson 1 og
Guðmundur Hrafnkelsson 1.
Mörk FH: Guðjón Ámason 9, Óskar Ár-
mannsson 4, Pétur Petersen 4, Þorgils Ótt-
ar Mathiesen 3 og Héðinn Gilsson 1.
Dómarar: Stefán Amaldsson og Ólafur
Haraldsson og voru með bestu mönnum
vallarins. Slógu varla feilnótu.
Blikar horfðu 10 sinnum
á snúningsmark Óttars!
- til að ná upp réttum anda
Leikmenn Breiðabliks skoð-
uðu í fyrrakvöld mynd-
band af leik sínum við FH í
1. deildinni á sunnudaginn, til
að undirbúa sig fyrir leikinn í
gærkvöldi.
„Við horfðum 10 sinnum á
snúningsmark Þorgils Óttars
í lokin og það hleypti illu blóði
í okkur," sagði Guðmundur
Hrafnkelsson, markvörður
Breiðabliks, í gærkvöldi.
Umrætt mark gerði Þorgils
Óttar í lok leiksins á sunnu-
daginn, brunaði fram í hraða-
upphlaup, stökk inn í teiginn
og sneri sér í hring áður en
hann skoraði! „Það þjappaði
okkur líka mjög vel saman að
áhangendur öskruðu mikið á
Hans Guðmundsson í leiknum
á okkur á sunnudaginn. Þetta
tvennt gerði okkur enn
ákveðnari en áður að sigra í
kvöld," sagði Guðmundur.
Komu okkur á óvart
„Okkur hefur gengið vel gegn
Blikunum í síðustu leikjum.
Við höfum sennilega verið of
mikið með hugann við 1. deild-
ina, spennuna þar. En þeir
komu okkur vissulega á óvart
með mikilli baráttu, miðað við
leiki þeirra undanfarið, þar
sem þeir hafa verið slakir.
Þetta kemur okkur hins vegar
niður á jörðina og við komum
tvíefldir í þá leiki sem eftir eru
í deildinni," sagði Guðjón
Arnason, leikmaður FH, í
gærkvöldi.
Morgunblaöiö/RAX
Vel teygt á í Dlgranesll Þorgils Óttar Mathisen og Aðalsteinn Jónsson beijast um boltann í gærkvöldi. Aðalsteinn hefur betur — hefur langt hönd ofan á
knöttinn, og hafði einnig betur þegar upp var staðið. Breiðablik vann öruggan sigur.
Aöalíundur
KNATTSPYRNUFÉLAGSINS
VALS
Knattspymufélagið Valur heldur framhaldsaðalfund
fimmtudaginn 17. mars kl. 20.00 (í kvöld) í félagsheimil-
inu að Hlíðarenda. Á dagskrá er stjórnarkjör.
Knattspyrnufélagið Valur
1.DEILD KVENNA
Eva skoraði átla
Eva Baldursdóttir skoraði átta
mörk fyrir FH er liðið sigraði
Hauka, 17:13, í 1. deiid kvenna í
handknattleik í gær. Staðan í leik-
hléi var 11:7 fyrir
Katrín FH.
Friðriksen Haukar byrjuðu bet-
skrífar ur en um mjðjan
fyrri hálfleik náði
FH yfirhöndinni og hélt henni.
Mörk FH: Eva Baldursdóttir 8, Heiða Ein-
arsdóttir 3, Rut Baldursdóttir og Helga
Sigurðardóttir 2 hvor, Kristln Pétursdóttir
og Berglind Hreinsdóttir eitt mark hvor.
Mörk Hauka: Margrét Theódórsdóttir 5/3,
Steinunn Þorsteinsdóttir 3, Björk Hauks-
dóttir 2, Halldóra Matthiesen, Hrafnhildur
Pálsdóttir og Ragnheiður Júlíusdóttir eitt
mark hver.