Morgunblaðið - 20.03.1992, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 20.03.1992, Blaðsíða 47
47 IÞROTTIR FOSTUDAGUR 20. MARZ 1992 gæfumuninn n Frabær vöm UMFIM gerði MEÐ FRABÆRUM varnarleik í síðari hálfleik tókst Njarðvíkingum að tryggja sér bikar- meistaratitilinn í körfuknattleik. Varnarleikur þeirra sló leikmenn Hauka út af laginu, þeir fundu ekkert svar og þá var ekki að sökum að spyrja. Þetta er ífimmta sinn sem Njarð- víkingar verða bikarmeistarar og þeir verð- skulduðu sigurinn fyllilega. Njarðvíkingar eru vel að titlinum komnir. Þeir voru sterkari í gær á flestum sviðum og hernaðarlist Friðriks Inga Rúnarssonar þjálfara Njarðvíkinga gekk upp. Þrátt fyrir Skúli Unnar að liðið ætti í miklum vandræðum Sveinsson með Hauka í fyrri hálfleik, þegar skrífar þejr ]éku maður á mann vörn, beið hann með að skipta um varnarað- ferð þar til eftir leikhlé, til að Haukarnir gætu ekki rætt um hvemig þeir ættu að bregðast við. Þetta gekk upp. Svæðisvörnin, svæðispressu- vörnin, eða l-2-l-l vörnin, eða hvað sem menn vilja kalla hana, skilaði svo sannarlega árangri. Vömin kom Haukunum greinilega í opna skjöldu. Leikmenn urðu allt of staðir og aðstoðuðu félag- ann ekki nægilega mikið. Það var sama hver fékk boltann, alltaf voru tveir til þrír Njarðvíkingar mættir til að trufla. Leikurinn vár hinn fjörugasti. Hraðinn mikill og falleg tilþrif, bæði í vöm og sókn, en hittnin hefði þó mátt vera betri. John Rhodes fór á kostum í fyrri háifleik fyrir Hauka og átti Rondey Robin- son í hinum mestu vandræðum með hann. Eftir að vörninni var breytt gekk erfiðlega að koma boltanum inná Rhodes og nýtingin hjá honum var slæm í síðari hálfleik. Jón Arnar og ívar, menn sem era með 15-20 stig í leik, sáust varla og það munar um minna. Haukarnir léku lengst af ágætlega, en vora oft klaufalegir upp við körfuna í opnum færam. Um miðjan síðari hálfleik var dæmd ásetningvilla á einn leikmann Hauka. Staðan var þá 68:64. Þetta virtist hafa slæm áhrif á Haukana því í kjölfarið kom kafli sem gerði út um leikinn. Njarðvíkingar gerðu 19 stig á móti sex stigum Hauka. Fram að þessum kafla hafði verið nokkuð gott jafnvægi með liðunum, Njarðvíkingar reyndar oftast með forystu en ekki það afgerandi að Haukar ættu ekki möguleika. Njarðvíkingar léku vel, allir sem einn. Robinson var sterkur, sérstaklega í sókninni í fyrri hálfleik en í þeim síðari var hann góður, bæði í vöm og sókn enda var hann útnefndur besti maður leiks- ins. Nýtingin var góð og hann tók 15 varnarfrá- köst. Ekki má gleyma þætti Friðriks Ragnarsson- ar. Hann var geysilega sterkur í vörninni og gerði að auki 16 stig. Teitur var einnig sterkur, og ef til vill óþarfi að taka það fram. Þessir tveir leik- menn vora bestir í liði UMFN en allir léku vel. Haukar léku ekki illa, þeir mættu einfaldlega ofjörlum sínum og urðu að játa sig sigraða. Það var sama hvað þeir reyndu í sókninni, ekkert gekk upp í síðari hálfleik enda gerðu þeir aðeins 30 stig þá. Vömin var ágæt lengst af en það var sóknin sem var höfuðverkurinn. Rhodes var góð- ur, nýting hans hefði mátt vera betri, sérstaklega í síðari hálfieik, en hann tók 29 fráköst í leiknum. FOLIC ■ MYNDIN hér að ofan er af eina bikarnum sem karlalið Hauka fór með heim í gær. Pétur Ingvarsson hefur greinilega farið til hárskera áður en hann mætti til leiks í Laug- ardalshöllinni í gær. ■ HENNING Henningsson gerði trúlega fallegustu körfuna í úrslita- leiknum. Haukar fengu innkast í síðari hálfleik á móts við miðjan eigin vallarhelming. Eftir að Henn- ing hafði reynt að fínna samheija án árangurs henti hann knettinum langt fram og ætlaði Rhodes aðw" grípa hann undir körunni. Boltinn fór beinustu leið ofan í körfuhring- inn og karfan var dæmd af. ■ ÍSAK Tómasson lék að vanda vel með liði sínu. Hann átti flestar stoðseningar allra í gær, 8 talsins. I FRIÐRIK Rúnarsson þjáflari UMFN er ekki nema 23 ára gam- all. Hann sagði í hálfkæringi að hann ætlaði að setjast í helgan stein og hætta ef Njarðvíkingum tækist að vinna báða titlana. Það verður trúlega erfitt fyrir hann, ekki eldri en hann er. ■ ÞAÐ vakti athygli í úrslitaleik kvenna að Haukastúlkur vora í mjög mislitum bolum innan undii**# félagsbúningum sínum. Þetta sting- ur í augum og það ætti ekki að vera erfitt fyrir nýkrýnda bikar- meistara að finna rauða boli til að vera í innanundir! Morgunblaðið/Einar Falur Lok, lok og læs! Teitur Örlygsson og félagar í Njarðvíkurliðinu lokuðu á leikmenn Hauka með frá- bærri vöm í síðari hálfleik. Hér er Teitur á lofti hátt fyrir ofan Pétur Ingvarsson. SKIÐI / HEIMSBIKARINN Kronberger vann þriðja árið í röð UMFN - Haukar91:77 Laugardalshöll, bikarúrslitaleikur karla í körfuknattleik, fimmtudag 19. mars 1992. Gangur leiksins: 2:0, 8:11, 19:19, 25:19, 39:26, 44:36, 50:47, 52:52, 60:54, 68:66, 77:66, 86:72, 91:77. Stig UMFN: Rondey Robinson 28, Teitur Örlygsson 23, Frirðik Ragn- arsson 16, Kristinn Einarsson 10, ísak Tómasson 8, Ástþór Ingason 6. Stig Hauka: John Rhodes 27, Henning Henningsson 13, Jón Örn Guðmundsson 9, ívar Ásgrímsson 7, Bragi Magnússon 6, Tryggvi Jónsson 6, Jón Amar Ingvarsson 5, Pétur Ingvarsson 4. Áhorfendur: 1.300 greiddu að- gangseyri. Dómarar: Bergur Steingrímsson og Kristinn óskarsson. Ágætir en full smámunasamir á stundum. PETRA Kronberger frá Austur- ríki tryggði sér sigur í heims- bikarkeppninni íalpagreinum kvenna þriðja árið í röð í gær. Hún haf naði í 19. sæti i risas- vigi í Crans Montana í Sviss og það nægði henni til að vinna stigakeppnina þó svo að eitt mót sé eftir. Sigurvegari í risasviginu var f ranska stúlkan, Carol Merle. Kronberger, sem er 23 ára, er önnur konan á eftir Önnumar- íu Moser-Röll til að vinna heimsbik- arinn oftar en tvisvar. „Ég var svo taugaóstyrk og var ekki róleg fyrr en allir voru komnir niður og ljóst að mér hafði tekist að vinna heims- bikarinn," sagði Kronberger og tár- aðist af gleði. „Fyrsta árið sem ég sigraði sam- anlagt var ég mjög yfirveguð og róleg og trúði varla að ég hafði unnið. Á síðasta keppnistímabili náði ég að sigra í öllum greinum og sigurinn því nokkuð auðveldur fyrir mig þó svo að ég hafi ekki tekið þátt í síðustu mótunum vegna meiðsla. Þetta keppnistímabil hefur verið mjög erfitt og ég þurfti svo sannarlega að hafa fyrir sigrinum," sagði Kronberger, sem átti erfitt uppdráttar í upphafi keppnistíma- bilsins. Hún var meidd s.l. haust og eins lést þjálfari hennar, Alois Kahr, í bílslysi í desember. Kronberger getur vel við unað því hún varð einnig tvöfaldur ólympíumeistari í Albertiville í síð- asta mánuði og státar því að betri árangri en Moser-Pröll náði nokkru sinni á Ólympíuleikum. Pröll vann aðeins ein gullverðlaun á Ólympíu- leikum - í brani 1980, en hún vann ’ heimsbikarinn sex sinnum og það gæti reynst Kronberger erfitt að leika eftir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.