Morgunblaðið - 20.01.1998, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 20.01.1998, Blaðsíða 12
KNATTSPYRNA Guðjón Þórðarson landsliðsþjálfari eftir EM-dráttinn í Ghenk Ekki óskadráttur en við höfum verk að vinna GUÐJÓN Þórðarson, landsliðs- þjálfari í knattspyrnu, var ekki ánægður með dráttinn. „Þetta er meiri hamingjudrátturinn eða hitt þó heldur,“ sagði hann við Morgunblaðið þegar riðlarnir lágu fyrir á sunnudag. „Ekki er nóg með að Johan Cruyff hafi far- ið illa með okkur á fótboltavellin- um heldur gerði hann það líka í drættinum. Ekki er mikil heppni í þessu en við verðum að takast á við málið og höfum verk að vinna.“ Guðjón sagði að af röðuðu þjóð- unum hefði hann síst viljað lenda í riðli með Rússum eða Rúmenum og eins hefði hann alls ekki viljað fá Úkraínu. „Mér sýnist að Frakk- ar megi gá að sér. Rússar eru mjög sterkir og aðeins þarf að horfa til Kiev til að sjá styrkleika Úkraínu. Armenía er erfið viður- eignar en við eigum að hafa And- orra. Þetta er staðan en í knatt- spymu er alltaf möguleiki. Við eigum fullt af sprækum strákum og þótt riðillinn sé með þeim ei-fíð- ari og því ekki um óskadrátt að ræða er ekki um annað að ræða en skoða framhaldið í rólegheitum.“ Gaman að fá Frakka Eggert Magnússon, formaður Knattspyrnusambands Islands, sagði að riðillinn væri erfiður, bæði innan sem utan vallar. Löng og strembin ferðalög væru framundan en skemmtilegast væri að mæta Frökkum og Úkraínu- menn leyndu á sér. „Það er gaman að fá Frakkana og það tryggir ákveðna hluti. Úkraína lék vel í undankeppni HM og Rússland er alltaf sterkt.“ ■ íslenskir / B2 ■ EM-dráttur / B9 Andrési sagt upp hjá Gróttu/KR Andrési Gunnlaugssyni, sem þjálfað hefur hið sameinaða lið Gróttu/KR kvenna í handknattleik, var sagt upp störfum á sunnudag- inn. „Eg er nokkuð undrandi en kvennaráðið ákvað að þetta væri besta lausnin og ég virði ákvörðun þess,“ sagði Andrés í gær. „Mark- miðið var að vera meðal fjögurra bestu og ég sé ekki að það hafí glat- ast þrátt fyrir töp. Staðan er ekki slæm og ég tel að tapleikir eigi að skoðast sem reynsla enda hef ég leyft öllum stúlkunum að spila. Ég erfí þetta ekki við ráðið og vil taka fram að það eru engin illindi.“ Grótta/KR er í fjórða sæti deildar- innar og 4-liða úrslitum bikarkeppni HSÍ. „Fyrir uppsögninni eru ýmsar ástæður en við mátum þetta það besta í stöðunni. Það var haft fullt samráð við leikmenn og þetta er ekki í þeirra óþökk nema síður sé,“ sagði Björn Pétursson, formaður kvennaráðs Gróttu/KR. „Við teljum að lið Gróttu/KR hafi komið best undirbúið til mótsins og þar eigi Andrés stærstan þátt en síðan hef- ur verið að halla undan fæti. Við er- um sáttir við stöðuna í deildinni en ekki úrslit síðustu leikja með stór- um töpum." Við þjálfun tekur Ágúst Jóhannsson og honum innan handar verður Ólafur Lárusson. FRJÁLSÍÞRÓTTIR M- Vala Flosadóttir var nálægt því að bæta eigið íslands- og Norðurlandamet Get stokkið enn hærra „ÉG ER í góðri æfingu og stökk betur í dag en um síðustu helgi,“ sagði Vala Flosadóttir, Evrópumeistari í stangarstökki kvenna, eftir að hafa farið yfir 4,15 metra á móti í Malmö í Svíþjóð á sunnudaginn. Hún var mjög nálægt því að bæta íslands- og Norðurlandametið [sem er 4,20 m] en hefur e.t.v. verið að spara kraftana þar til á ÍR-mótinu í Laugardalshöll næsta laugardag, þar sem hún er nánast skyldug til að slá metið! Þegar Vala byrjaði að stökkva var hún ekki í keppni við aðrar stúlkur, einungis við rána og mál- gmH bandið; það var ekki Hasse. fyrr en allir aðrir Sjögren keppendur voru hættir að hún hóf keppni. Hún virðist verið í geysilega góðri æfingu og sýndi strax í fyrsta stökki að hún myndi ná góðum árangri síðar um daginn. „Ég notaði mjúka stöng í dag; þegar mér tekst vel upp, eins og nú, get ég auðveldlega notað svona mjúka stöng með góðum árangri," sagði Vala - sem fór hátt yfír 4,15 metra. Stöng er erfiðari viðfangs því mýkri sem hún er, en eftir að viðkomandi hefur náð góðum tök- um á slíkri stöng getur hann skotið sér hærra upp en ella. Æfíngar Völu hafa gengið mjög vel og markmið hennar er ljóst, að verja Evrópumeistaratitilinn, sem hún hlaut fyrir tveimur árum í Gautaborg. „Markmiðið er að verja titilinn, en ég veit ekki hversu hátt ég þarf að stökkva til að sigra. Mér er hins vegar fullljóst að ég get stokkið hærra en ég hef gert til þessa,“ sagði Vala. Áhorfendur á mótinu í Malmö á sunnudag geta eflaust allir tekið undir það og þar sem Vala æfir enn af fullum krafti - er ekki farin að „hvíla sig“ fyrir keppni eins og íþróttamenn kalla það - er ljóst að að hægt er að búast við að hún stökkvi talsvert hærra á næstunni. Hún segist hafa æft vel og „efri hluti líkamans er sterkari en áður og það hefur auðveldað mér að ná betri tökum á tækninni. En nú verð ég fyrst og fremst að einbeita mér að því að æfa betur snúning- inn yfir rána.“ Framundan er áðurnefnt IR- mót í Reykjavík um næstu helgi og þá má búast við miklu af Völu. „Þetta er eitt skemmtilegasta mót ársins og ég verð að fara hátt,“ sagði hún. Vala tók ekki eingöngu þátt í stangarstökkinu í Malmö, heldur var með í hálfgerðri „smá-fjöl- þraut“; fór 5,43 í langstökki, sem hún náði í þriðju tilraun, og kastaði kúlu 11,71. Vala setti íslands- og Norður- landamet sitt innanhúss, auk heimsmets unglinga, á IR-mótinu fyrir ári. Spennandi verður að sjá hvað hún gerir um næstu helgi en hún var mjög nálægt því að fara yf- ir 4,25 m á sunnudag. Morgunblaðið/Hasse Sjögren VALA Flosadóttir býr sig undir að stökkva á mótinu í Malmö á sunnudag. „Mér er ... fullljóst að ég get stokkið hærra en ég hef gert til þessa,“ sagði Vala eftir að hafa stokkið yfir 4,15 m. KNATTSPYRNA Stórliðin töpuðu Tveir leikir fóru fram í knatt- spymu í gærkvöldi, einn í Englandi og annar á Spáni. Urslitin urðu óvænt á báðum stöðum því í Englandi tapaði efsta liðið, Manchester United, 1:0 fyrir South- ampton og á Spáni tapaði Barcelona 4:3 á heimavelli fyrir Va- lencia. Dýrlingarnir í Southampton hafa eitthvert tak á United þegar liðin mætast á heimavelli þeirra, The Dell, en þar tapaði United 6:3 í fyrra og 3:1 árið áður. Kevin Dav- ies gerði eina mark leiksins á 3. mínútu með skalla eftir auka- spyrnu frá Matthew Le Tissier. Paul Jones, markvörður Sout- hampton, hafði í nógu að snúast í leiknum, sérstaklega undir lok hans er gestirnir sóttu án afláts, en tókst ekki að skora. Valencia var í fjórða neðsta sæti fyrir leikinn í gær en Barcelona í næst efsta og er þar enn. Heima- menn komust í 3:0 og fyrsta mark gestanna kom ekki fyrr en á 69. mínútu og jöfnunarmarkið þremur mínútum fyrir leikslok. Sigurmarkið gerði síðan Ariel Ortega er mínúta var til leiksloka og var síðan rekinn útaf fyrir að fara úr peysunni er hann fagnaði. ENGLAND: X X 1 2X1 111 X122 ITALIA: 122 X21 X22 X111

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.