Skírnir - 01.01.1831, Blaðsíða 1
Fréttir 1830,
TTímabil þaS, sem hér segir frá, og liSið er,
síðan Skírnir hætti sögunni, áriS sem leiS, getr
makliga talizt eittlivert hiÖ viÖburðaríkasta í ver-
aldarsögunni; því svo má kalla, sem einn merkis-
atburör hafi tekið viö af öörum hvíldarlaust, svo
|>að sem annars og að undanförnu mundi liafa
Jíökt tíðindum skipta, leið nú framlijá, án þess
Jiví væri gaumr gcfinn. A8 vísu var hverjum
Jieim, sem meö athuga og greind rendu augum
yfir lífsius störa skoÖunarpláz, í vor sem leið,
auÖráðiö, aÖ mikil tíÖindi færu í hönd, og að
einkum vor heimsálfa geymdi í skauti sínu mikl-
ar hræríngar og umbrot; en J)ó má fullyrða, aö
J>að sem nú er framkomið, og leikið cr af Jiví
mikla sjónarspili, við hvers aðdragauda auga vort
þá staldraði, sem milli vonar og ótta, reyndar yf-
irgnæfir það, sem vér [)á mundum geta fyrirséð,
eins og það að öðru Ieiti ræðr mjög að líkindum,
að margt sé á þessu ári í vændum, líkt því sem
vér a því næstliðna liöfum séð, eðr heyrt fara
fram. Mættiþað aövísuvekja hjá oss nokkuru kvíð-
(1)