Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1986, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1986, Blaðsíða 11
ÞRIÐJUDAGUR 30. DESEMBER 1986. 11 Hvað er þér minnisstæðast á árinu 1986? Hólmfríður Karisdóttir, fv. ungfru heimur. Miss World Ég held að það sé enginn vafi á því að titillinn „Miss World“ sé mér minnisstæðastur þó það hafi verið í nóvember 1985. Það er erfitt að pikka á eitthvað eitt sérstakt en ég held að allt sem fylgdi í kringum keppnina sé mér minnisverðast. Ég er alltaf ægi- lega bjartsýn og gildir það líka um horfumar á næsta ári. Ég hlakka til að starfa á bamaheimilinu á komandi ári enda er mjög ánægjulegt að vera innan um bömin. Jón L. Ámason, fulitrúi óiympíuskáksveitarinnar: Skákmótin Hvað mig snertir var það skákmótið í sumar er var haldið í Finnlandi og Búlgaríu þegar ég varð stórmeistari í skák. Svo ekki sé minnst á ólympíu- mótið í Dubai og allt sem því var samfara, burtséð frá góðum árangri fannst mér alveg sérlega athyglisvert að kynnast nýjum heimi arabanna. Mér líst vel á horfumar á næsta ári, árið 1986 hefur verið gott skákár og ég vona bara að næsta verði ennþá betra. Það hefst a.m.k. á stóm verk- efni sem er IBM-skákmótið sem verður það sterkasta sem hér hefur verður haldið. Þorgils Óttar Mathiesen, fyririiði handboltaliðsins: Árangur handbolta- liðsins Hvað mig varðar þá er það árangur íslenska handboltaliðsins í Sviss í mars síðastliðnum en þar lentum við í 6. sæti er tryggir okkur rétt til að taka þátt í ólympíuleikunum í Seoul í Kóreu árið 1988. Leiðtogafundurinn verður mér einnig sérlega minnisverð- ur fyrir þetta ár. Ég er mjög bjartsýnn á næsta ár enda í mjög góðu andlegu jafiivægi. Það er mikið um að vera framundan í handboltanum en á næsta ári verða tvö mót, Baltic-mótið í jan- úar og Flugleiðamótið í febrúar svo það er nóg um að vera. Jón Páll Sigmarsscn, sterkasti maður í heimi: Leiðtoga- fúndurinn Fyrst og fremst, stórviðburðurinn er leiðtogafúndurinn sem var haldinn hér í Reykjavik. Einnig er ég mjög ánægð- ur með minn árangur á þessu ári er ég vann keppnina Sterkasti maður heims. Ég vonast bara til að næsta ár verði eins gott og ég ætla að standa mig vel enda er ég í góðu andlegu og líkamlegu ástandi. Ég er mjög bjart- sýnn á nýja árið svo bjartsýnn að ég þarf að nota sólgleraugu. Kjartan Lámsson, formaður Ferðamálaráðs: Góðærið Ætli það sé ekki góðærið sem ráða- mennimir eru alltaf aö tala um, ég hef ekki tekið eftir því og ætla bara að vona að ráðamennimir sjái sér fært að gera það sýnilegt. Ég lít á komandi ár björtum augum því ef þá á að vera svona mikið góðæri í landinu þá get ég ekki annað en verið bjart- sýnn. Einar Kárason rithöfiundur: Missir fram- herjans Ja, reyndar var ég nú að vona að ég yrði spurður að þessu fyrr því árið 1976 hefði óg svarað að mér hefði þótt minnisverðast er 400 kristileg ung- menni fengu matareitrun af því að borða einhvern kjúkling og sátu á kamrinu þá nótt. Mér finnst horfúmar á næsta ári slæmar því Framarar em búnir að missa sinn frábæra framherja Guðmund Torfason en hann var seldur til Beveren. Ekki batnaði ástandið þegar það átti að fara að selja Guð- mund Steinsson, hinn snjalla marka- skorara (skoraði 10 mörk), til Austurrikis. En sem betur fer verður ekki úr því og þá em horfur strax betri. Þorsteinn Pálsson: Thor farinn að seljast „Ég býst við því að það verði með eftirtektarverðari tíðindum þessa árs að Thor Vilhjálmsson er nú allt í einu farinn að seljast. Það heyrir alltaf til tíðinda þegar rithöfundur nær því stigi að verða „commercial". Ég vona að það viti á gott,“ sagði Þorsteinn Páls- son fjármálaráðherra. „Af hinu pólitíska sviði hygg ég að þessa árs verði fyrst og fremst minnst fyrir það að það náðust í tvígang kjarasamningar sem innsigla þjóðar- sátt og sameiginlegt átak þjóðarinnar við að ráða niðurlögum verðbólgu og styrkja stöðu þeirra sem lakast em settir i þjóðfélaginu. Þetta rís upp úr. Það er tilhlökkun í mér fyrir næsta ár. Það verða kosningar og ég er auð- vitað farinn að hlakka til þeirra átaka og er fullviss um að kosningamar muni sína niðurstöðu, sem er okkur viðunandi og þar með viðunandi fyrir þjóðina. Þannig að ég er bjartsýnn." -KMU Jón Baldvin ^ Hannibalsson: Útför Ölofe Palme „Það sem mér er persónulega minnisstæðast frá liðnu ári er þrennt," sagði Jón Baldvin Hannibalsson, formaður Alþýðuflokksins. „í fyrsta lagi útför Olofs Palme. Þeir þrír dagar í Stokkhólmi líða mér ekki úr minni vegna þess hvemig menn skynjuðu heitar tilfinningar þessarar kaldhömmðu þjóðar og hvemig sorg- arathöfii var snúið upp í sigurhátíð. Annað: Sjö dagar í Lima á þingi Alþjóðasambands jafnaðarmanna þar sem munaði hársbreidd að forystulið heimshreyfingar jafnaðarmanna úr öllum heimsálfum yrði þurrkað út í einni sprengjuárás. Það er stjóm- málamanni úr okkar heimshluta ógleymanleg og ómetanleg lífsreynsla að sjá með eigin augum kreppu og sálarháska almennings í þriðja heim- inum. Það þriðja er hið sögulega flokks- þing okkar á Hótel Örk í Hveragerði en þar var þeim ráðum ráðið sem nú hafa leitt til þess að Alþýðuflokkurinn er óumdeilanlega næststærsti flokkur þjóðarinnar og hefúr nú vígstöðu til að setjast í 1. sæti sem forystuafl þjóð- arinnar á nýju ári.“ -KMU Steingrímur Hermannsson: Febrúar- samningar stærsti at- burður í tíð þessarar ríkisstjórnar „Ur stjómmálunum er mér minnis- stæðast samningamir sem gerðir voru í febrúar og sú samstaða sem náðist milli aðila vinnumarkaðarins og stjómvalda í þeim. Ég tel að það hafi verið stærsti atburður sem gerst hafi í tíð þessarar ríkisstjómar," sagði Steingrímur Hermannsson forsætis- ráðherra. „í öðm lagi verður leiðtogafundur- inn lengi minnisstæður. Persónulega er mér ákaflega minnis- stætt að mér var veitt sérstök viður- kenning af þeim skóla þar sem ég stundaði nám áður fyrr, Califomia Institude of Technology, og heimsókn- in þangað var mjög ánægjuleg. Ég held að horfur á næsta ári séu góðar. Að vísu, eins og oft, em þetta hálfgerðir loftfimleikar hjá okkur og lítið má út af bera. Við spilum ansi djarft en ég held, ef rétt er haldið á spilum og skynsamlega, að næsta ár geti orðið ákaflega mikilvægt til að koma á öryggi og jafnvægi í efnahags- og atvinnumálum þessarar þjóðar.“ -KMU Margrét Frímannsdóttir: Morðið á Olof Palme minnis- stæðast „Minnistæðasti atburðurinn frá þessu ár í mínum huga er morðið á forsætisráðherra Svíþjóðar, Olaf Palme. í mínum huga gnæfir sá óhugnanlegi atburður uppúr. Nú er að ljúka miklu góðæri og annað blasir við. Ég vona bara að okkur Islendingum takist að vinna rétt úr málunum, þannig að góðærið nýtist okkur öllum sem best. Einnig vona ég að komandi ár beri í skauti sér auknar vonir um að friður haldist í heiminum". -S.dór Herra Pétur Sigurgeirsson: Hallgríms- kirkja þjóðar- musteri „Myndin af þessu ári er máluð ákaf- lega sterkum litum, bæði ljósum og skuggum. Ef ég lít á ljósu hliðamar er mér efst í huga þegar Hallgríms- kirkja var vígð. Fyrir mig var það ógleymanlegt embættisverk og ég er þess viss að þetta musteri verður tákn íslensku þjóðarinnar í framtíðinni," segir herra Pétur Sigurgeirsson bisk- up. „Það sem af er þessari aðventu finn ég trúarlega vakningu sem vissulega gefúr miklar vonir um nýtt ár. „Morg- unninn kemur en ennþá er nótt,“ svarar ökumaðurinn í Spádómsbók Jesaja þegar hann er spurður hvað nóttinni líði. „Ef þið viljið spyrja, þá komið aftur og spytjið,“ segir hann einnig. Þetta er táknrænt svar á þess- um tímum, sem við lifum nú, um hvað framtíðin beri í skauti sínu.“ Víglundur Þorsteinsson: Kjarasamn- ingarnir standa upp úr í ár „Að öðru ólöstuðu er það stóra breytingin í kjarasamningum, bæði í febrúar og núna í desember, sem stend- ur upp úr á þessu ári. Þetta er með stærstu breytingum á jafn skömmum tíma sem orðið hafa,“ segir Víglundur Þorsteinsson, formaður Félags ís- lenskra iðnrekenda. „Það er engin ástæða til annars en vera hæfilega bjartsýnn. Ég reikna ekki með neinum stórfelldum tekju- sveiflum framundan eins og urðu í ár og í fyrra. En árið 1987 getur orðið mjög gott ef við höldum þeirri stöðu sem við erum í núna.“ -HERB
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.