Þjóðviljinn - 15.05.1981, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 15.05.1981, Blaðsíða 16
uoðvhhnn Föstudagur 15. mai 1981 Aöalsimi Þjóðviljans er 81333 kl. 9-20 mánudag til föstudaga. Utan þess tima er hægt að ná i blaöamenn og aðra starfsmenn blaðsins i þessum simum : Ritstjórn 81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, ljósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9-12 og 17-19 er hægt aö ná I áfgreiðslu blaðsins i sima 81663. Blaöaprent hefur sima 81348 og eru blaöamenn þar á vakt öll kvöld. Aðalsími 81333 Kvöldsím! 81348 Helgarsími afgreiðslu 81663 Myndsegulböntí i heimahúsum Bessi Bjarnason leikari heldur upp á þrjátlu ára leikafmæli sitt með aðalhlutverki i rússneskum söngleik, Gustur, sem frumsýndur verður I Þjöðleikhtisinu á miðvikudag. Leikurinn byggir á sögu eftir Tolstoj um hest. Bessi höf feril sinn I Snædrottningunni sem „varðmaður, þjófur og ræningi” — nú eftir 30 ár hefur hann forframast svo að hann er dubbaður til hests — sem hér á myndinni er að svala þorsta sinum (ljósm.: gel) Flugmannasamkomulagið T það I aðalatriðum sama og við FIA „Samningarnir sem undirritaðir voru við Loft- leiðaf lugmenn í gær eru sérsamningar við þeirra félag en gengur í sömu átt og samningarnir við FÍA sem gerðir voru á dögun- um. Mismunurinn liggur í því að taka þurfti fyrir ýmis atriði sem snerta að- eins Loftleiðaf lugmenn," sagði Guðlaugur Þorvalds- son sáttasemjari þegar Þjóðviljinn hafði samband við hann í gær. Hann sagði að sama hefði verið uppi á teningnum þegar samið var við FÍA þar hefðu ver- ið afgreidd ýmis mál sem vörðuðu einungis meðlimi þess félags. „En i aöalatriðum er um sama samkomulagiö að ræða, t.d. er launahækkunin sú sama, 10.2% frá áramótum,” sagði Guðlaug- ur. Hann bætti þvi við að samn- inganefnd Loftleiðaflugmanna hefti haft fullt umboö til samn- inga og væri þvi þessari hrinu meö flugmönnnum lokið. —j Lausn á unglinga- vandamálinu? „Hér heyrist varla lengur I mótorhjólum á kvöldin og krakkarnir eru hættir að hanga Uti i sjoppum eða úti á plani” sögðu Sigurður ólafsson og Njáll Harðarson sem reka myndsegulbandsleiguna VIDEO-SON. Þeir búa báöir I Breiðholtinu og þeir segja að það sé engu öðru aö þakka en . myndsegulböndunum að ungl- I ingar halda sig heima við á kvöldin og eru hættir að hrella fólk á síðkvöldum með mótor- hjólaskellum. Þeir sögðu að það hefði oft borið við áður en videobylgjan skall yfir, aö fólki heföi varla orðið svefnsamt um nætur vegna unglinganna. Nú væri vandamálið nánast horfið og orsökin væri sú að krakkarnir hefðu eitthvað við að vera um helgar eftir að sjónvarpinu lýkur. Aður fóru þau út, en nú horfa þau á myndimar i innan- húskerfinu og fara svo að sofa. 1 fjölbýlishúsi einu i Kópavogi bar svo mikið á skemmdar- verkum ogólátum á siökvöldum að ibúarnir sáu sér ekki annaö fært en að ráða varðmann til að gæta hússins. Eftir að mynd- segulbandskerfi kom i hUsið hefur ástandið stórbatnað að sögn hUsvarðanna. Það eru þvi ýmsar hliðar á myndsegulbönd- unum og það má spyrja hversu góð uppeldisaöferð það sé að planta krökkunum framan við kassann? Sumum þeim er Þjóð- viljinn ræddi við fannst mikill léttirað, aðrir töldu að nóg væri um innrætingu ameriskra mynda þótt myndsegulbands- kerfið bættist ekki við. Einn við- mælenda sagði að það væri engu likara en að kanasjónvarpið væri komið aftur, kvikmyndir Llangt fram á nótt, mjög svo mis- munandi góðar. —ká Video-dagskrá Amerískar myndir í miklum meirihluta Margir lesenda Þjóðviljans höfðu samband við blaðið i gær til að forvitnast um það hvernig sýningar I myndsegulbands- kerfum væru skipulagðar, hvað þar væri á boðstólum og hvaðan myndirnar kæmu? Dagskráin getur litið út t.d. svona, en hún er fengin i einu fjölbýlishUsi i Breiðholtinu: Fimir.tudagur kl. 20 Barnatimi. Kl. 21. gamanmynd (amerísk). Föstudagur kl. 24. Amerísk kvikmynd um boxara. Laugar- dagur kl. 24 glæpamynd (amer- isk). Sunnudagur kl. 13. barna- timi og á mánudegi kúreka- mynd að sjálfsögðu frá Amer- iku. Klámmyndir eru ekki opinberlega á dagskrá. Það er nokkuö misjafnt hve marga daga er sýnt, sums staðar er dagskráin frá fimmtu- degi til sunnudags, annars staðar er mánudagurinn meö. —ká Almennur fundur um atvinnumál borgarinnar: 'VSlium ná sambandi við fólk í atvinnulífinu segir Guðmundur Þ. Jónsson, form. atvinnumálanefndar ina „Nýtni og nýbreytni". Hefst fundurinn kl. 14 á Hótel Sögu. Flutt verða sex framsöguerindi en auk þess verða almennar um- Á sunnudaginn kemur gengst atvinnumálanefnd Reykjavíkurborgar fyrir opnum fundi um atvinnu- mál og ber hann yf irskrift- ræður um atvinnumál í höfuðborginni. Guðmundur Þ. Jónsson, for- maður atvinnumálanefndar sagði i samtali við Þjóöviljann I gær aö tilgangur þessa fundar væri að ná sambandi við þá sem sinna at- vinnulífi I borginni, verkafólk og atvinnurekendur og ræöa um ný- Þetta orðið — Byrjunarörðugleikarnir voru miklir enda höfðu engar rannsóknir farið þarna fram, hvorki á fiskistofnunum, né hvernig best væri að haga veiðum. Svo urðum við llka fyrir bilunum I skipinu, en nú er þetta allt saman að komast I lag hjá okkur og farið aö ganga betur, sagði Magni Kristjáns- son, skipstjóri, sem I tæpt ár hefur stjórnað aðstoð á vegum Sameinuðu þjóðanna viö fisk- veiöar á Grænhöföaeyjum er Þjóðviljinn ræddi við hann I gengur sæmilega segir Magni Kristjánsson gær, þar sem hann var staddur á Azoreyjum á fiskveiðiráö- stefnu. — Þeir Azoreyjamenn standa fyrir þessari ráöstefnu og hafa boðiö til hennar sérfræðingum víða aö Ur heiminum. Mér var boðiö að halda hér fyrirlestur um fiskveiðar og þvi er ég hér staddur en ekki á Grænhöfða- eyjum, sagöi Magni. Hann var spurður hvernig þeim Islendingum sem dvalið hafa á Grænhöföaeyjum hefði liðiö þetta ár? — Viö sem höfum veriö á sjónum, höfum haft það ágætt, en það hefur verið erfiöara hjá þeim sem eru i landi. Sennilega hefur dvölin verið erfiöust fyrir börnin. Hér vantar næstum allt sem viðerum vön að heiman og krakkarnir hafa lika verið hálf lasin á stundum, en okkur llöur svo sem bærilega. Hvenær kemur þU heim aftur? — Ég kem heim I haust og tek þá við skipstjórn á Berki NK aftur, það er afráöið. Að lokum Magni, heldur þU að starf ykkar þarna suður frá hafi komið að þvi gagni sem vonast var til? — Ég skal ekki segja um það, en ég vona að það skilji eitthvað eftir og maður er bjartsýnn á það nU, eftir að þetta er allt farið að ganga betur. —S.dór Guömundur Þ. Jónsson. breytni I atvinnumálum Reykja- vlkur og þá möguleika sem nú- verandi atvinnulif býður uppá. Atvinnumálanefndin hefur ver- ið að reyna að finna og koma á fót nýjum atvinnutækifærum, sagði Guðmundur, og hefur einkum verið horft til nýiðnaðar i þvi sambandi. Hins vegar eru lika miklir möguleikar á betri nýtingu núverandi tækja og tækni t.d. i fiskvinnslunni. Það er von okkar I atvinnumálanefnd, aö við getum vakið áhuga og skapað umræður um þessi mál og við væntum þess aö nefndin geti sfðan orðið að liði við að koma þeim málum áfram sem upp kunna aö koma. Guðmundur sagði að viða úti um land hefðu sveitarstjórnir gengist fyrir almennum fundum um atvinnumál en svo hefði ekki veriö hér I Reykjavik a.m.k. ekki á siðustu árum. BorgarfulltrUar og þingmenn kjördæmisins eru sérstaklega boðaðir til fundarins en hann er sem fyrr segir opinn öllum þeim sem áhuga hafa á umræðum um nýbreytni og nýtni i atvinnumálum. —AI

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.