Morgunblaðið - 07.09.2002, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 07.09.2002, Blaðsíða 1
209. TBL. 90. ÁRG. LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS STOFNAÐ 1913 MORGUNBLAÐIÐ 7. SEPTEMBER 2002 GEORGE W. Bush Bandaríkjaforseti og Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, hófu í gær nýja herferð miðaða að því að sannfæra aðra ráðamenn heimsins um nauðsyn þess að grípa til harðari að- gerða gegn Írak. Sama daginn gerðu brezkar og bandarískar herþotur hernaðarmannvirkjum Íraka mestu skráveifuna sem frétzt hefur af í langan tíma. Bush og Blair hringdu hvor um sig í Vladimír Pútín Rússlandsforseta og Jacques Chirac Frakk- landsforseta, en þeir hafa báðir látið í ljósi djúp- stæða fyrirvara við að gripið verði til hernaðar- aðgerða í því skyni að steypa Saddam Hussein Íraksforseta af stóli. Bush átti auk þess símasamtal við Jiang Zemin, forseta Kína. Bush, Pútín, Chirac, Jiang og Blair eru fulltrúar þeirra fimm aðildarlanda öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna sem þar eiga fast sæti og hafa neitunar- vald um allar ákvarðanir ráðsins. „Forsetinn [Bush] tjáði hinum erlendu leiðtogum að hann mæti skoðun þeirra mikils. Hann lagði áherzlu á að Sadd- am Hussein er ógn og að við verðum að taka hönd- um saman til að gera heiminn friðvænlegri,“ sagði Ari Fleischer, talsmaður Hvíta hússins. Ónafngreindur talsmaður Blairs sagði: „For- sætisráðherrann hefur verið að ráðfæra sig við kollega sína um ástandið í alþjóðamálunum eins og það er núna.“ Bush og Blair virðast vera að vinna markvisst saman að því að safna alþjóðlegum stuðningi við hugsanlega innrás í Írak undir forystu Bandaríkja- manna til þess að koma Saddam Hussein frá völd- um, en hann saka þeir um að vera að koma sér upp gereyðingarvopnum á laun. Þeir Bush og Blair ætla að hittast á „sveitasetri“ Bandaríkjaforseta í Camp David í dag til að ræða framhaldið á Íraksmálinu. Bush mun í næstu viku hitta Jean Chrétien, forsætisráðherra Kanada, og flytja ræðu á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna þar sem hann hyggst færa rök fyrir stefnu sinni gagnvart Írak. En leiðtogarnir tveir, brezki forsætisráðherrann og bandaríski forsetinn, virðast enn eiga erfitt með að sannfæra aðra bandamenn um að árás á Írak undir bandarískri forystu myndi ekki hafa hræði- legar afleiðingar í hinum óstöðugu Mið-Austur- löndum. Pútín og Chirac lýsa efasemdum Rússneski forsetinn tjáði bæði Bush og Blair að hann hefði „alvarlegar efasemdir“ um röksemdir Bush fyrir árás á Írak, eftir því sem rússneska Int- erfax-fréttastofan hafði eftir talsmanni Pútíns, Alexei Gromov. Chirac Frakklandsforseti tjáði Bush einnig, að hvers konar hernaðaraðgerðir gegn Írak yrði ör- yggisráð SÞ að leggja blessun sína yfir, jafnvel þótt hann væri sammála því að alþjóðasamfélagið yrði að sýna fulla festu gagnvart einræðisstjórninni í Írak. Leiðtogar Bandaríkjanna og Bretlands herða róðurinn gegn Írak Bush og Blair reyna að fá heiminn á sitt band Washington. AFP. ÞÝZKA lögreglan handtók í gær – eftir vísbendingu frá bandarískum yfirvöldum – tyrkneskan mann og banda- ríska unnustu hans vegna gruns um að þau áformuðu að gera hryðjuverkaárás á her- stöðvar Bandaríkjamanna í Heidelberg hinn 11. septem- ber, þegar rétt ár verður liðið frá árásunum í Bandaríkjun- um. Í íbúð parsins í Heidelberg fundust 130 kíló af efnum til sprengjugerðar og fimm röra- sprengjur sem sprengiefnið vantaði ennþá í. Í Heidelberg eru Evrópuhöfuðstöðvar Bandaríkjahers. „Okkur grunar að þau hafi ætlað sér að gera sprengjuárás á herstöðvar og aðrar bygging- ar í Heidelberg,“ sagði Thomas Schäuble, innanríkisráðherra þýzka sambandslandsins Bad- en-Württemberg. Yfirvöld eru að kanna, hvort parið hafi verið eitt að verki eða í tengslum við einhver samtök. Sagði Schäuble að hin hand- teknu, 25 ára Tyrki og 23 ára kona sem hefur bandarísk- tyrkneskan ríkisborgararétt, hefðu látið í ljósi að þau bæru hatur í brjósti í garð gyðinga. Par handtekið í Þýzkalandi Grunuð um að áforma tilræði Stuttgart. AP. ÞINGMENN beggja deilda Banda- ríkjaþings komu til fundar í alrík- isbyggingunni á Manhattan-eyju í New York í gær í tilefni þess að á miðvikudag er eitt ár liðið frá því að hryðjuverkamenn flugu far- þegaflugvélum inn í World Trade Center-bygginguna í New York. Um 3.000 manns fórust í ódæðinu. Um sögulegan fund var að ræða því þetta er aðeins í annað skipti á tvö hundruð árum sem Banda- ríkjaþing hefur fundað annars staðar en í Washington. Dick Cheney, varaforseti Banda- ríkjanna, minntist þess í ræðu við þetta tækifæri að nú væri liðið ár síðan New York varð fyrir grimm- úðlegustu árás sem hægt væri að hugsa sér. Íbúar borgarinnar og Bandaríkjanna allra hefðu hins vegar sýnt samtakamátt sinn sem aldrei fyrr í eftirleik árásanna. „Dró ekki úr styrk okkar“ „Það sem gerðist 11. september [í fyrra] dró ekki úr styrk okkar [sem þjóðar] heldur einmitt hið gagnstæða,“ sagði Tom Daschle, leiðtogi repúblikana í öld- ungadeild Bandaríkjaþings. Sagði Daschle að sagan myndi sýna að hryðjuverkamönnunum hefði mis- tekist ætlunarverk sitt. Hér fara þingmenn allir sem einn með embættiseiðstaf sinn á minningarþingfundinum í gær. Þekkja má öldungadeild- arþingmennina John Kerry frá Massachusetts (í miðju) og flokks- bróður hans úr Demókrataflokkn- um Joseph Lieberman frá Conn- ecticut lengst til hægri. Síðast kom Bandaríkjaþing sam- an í New York árið 1789, í sama sal og í gær, og var það allra fyrsti fundur þingsins eftir stofnun þess. Við það tækifæri sór George Washington, fyrsti forseti Banda- ríkjanna, embættiseið sinn. Reuters Söguleg- ur þing- fundur í New York HAMID Karzai, forseti Afganistans, kvaðst í gær ekki óttast stjórnleysi í landinu en 30 manns fór- ust í sprengjutilræði í höfuðborginni Kabúl á fimmtudag og sjálfur slapp Karzai naumlega á lífi þegar gerð var tilraun til að ráða hann af dögum í borginni Kandahar. „Þessir atburðir eru einstök tilfelli. Þeir þýða ekki að skálmöld ríki alls staðar í landinu,“ sagði hann. Karzai hitti blaðamenn í Kabúl í gær og ræddi þar um banatilræðið, sem honum var sýnt á fimmtudag. Engin merki voru um að tilræðið hefði sett forsetann út af laginu og sagði Karzai að það myndi ekki hafa nein áhrif á umfang öryggisgæslu vegna forsetans í framtíðinni, að öðru leyti en því að hann myndi fara að öllu með gát. „Ég mun fara enn varlegar, ég verð ekki eins kærulaus og ég hef verið,“ sagði hann. Stjórnvöld í Kabúl telja að útsendarar talibana, sem áður voru við völd í Afganistan, hafi staðið fyrir tilræðinu við Karzai. Hafa átján manns verið handteknir, þ.á m. fyrrverandi liðsmaður örygg- issveita Gul Agha Sherzai, héraðsstjóra í Kanda- har, en Sherzai særðist lítillega þegar tilræðis- maðurinn hóf skothríð að bifreiðinni, sem þeir Karzai og Sherzai voru í. Tilræðismaðurinn, Abdul Rehman, var skotinn til bana af bandarískum sérsveitarmönnum, sem annast öryggi forsetans. Tveir menn til viðbótar létust, þegar sérsveitarmennirnir hófu skothríð sína, og voru báðir vopnaðir. Ekki er þó talið að þeir hafi verið með byssumanninum. Rehman var frá Helmand-héraði í Suður-Afganistan en þar njóta talibanar enn mikils stuðnings. Dvöl friðargæslusveita framlengd? Tilræðið við Karzai átti sér stað um miðjan dag að afgönskum tíma. Fyrr um daginn hafði bíl- sprengja sprungið á fjölfarinni götu í Kabúl og biðu 30 bana og 167 til viðbótar særðust. Var bíl- stjóri bifreiðarinnar sem sprakk, afganskur leigu- bílstjóri, færður til yfirheyrslu í gær. Engar sann- anir eru fyrir hendi um það hverjir stóðu fyrir árásinni en yfirvöld í Afganistan gruna talibana, al-Qaeda-hryðjuverkasamtökin eða Gulbuddin Hekmatyar, fv. forsætisráðherra, um verknaðinn. Alþjóðlegir friðargæsluliðar hafa aukið örygg- isgæslu í Kabúl í kjölfar tilræðisins í fyrradag. Þykir nú líklegra en áður að ákvörðun verði tekin um að framlengja dvöl friðargæslusveitanna í Afg- anistan, jafnvel að þær verði gerðar út af örkinni til annarra svæða en höfuðborgarinnar Kabúl. Karzai segist ekki óttast stjórnleysi í Afganistan AP Ættingjar manns sem dó þegar bílsprengja sprakk í Kabúl bera lík hans til grafar í gær. Kabúl, Kandahar. AFP, AP.  Stórárás/26
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.