Fréttablaðið - 31.08.2002, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 31.08.2002, Blaðsíða 16
31. ágúst 2002 LAUGARDAGUR FÉLAGSSTARF 09.30 Félag eldri borgara í Hafnarfirði, Hraunseli , Flatahrauni 3. Morgun- gangan kl. 10.00 frá Hraunseli, rúta frá Firðinum kl. 9.30 LEIKHÚS 20.00 Borgarleikhúsið sýnir gamanleik- ritið Með vífið í lúkunum eftir Ray Cooney. Leikritið hefur verið sýnt við góðar undirtektir frá því í maí 2001. TÓNLEIKAR 16.00 Kvartett Kára Árnasonar trommuleikara spilar á Vegamót- um. Með Kára spila þeir Ómar Guðjónsson gítar, Gunnar Hrafns- son bassi og Ólafi Jónsson tenór- sax. 16.00 Söngkonan Helena Eyjólfsdóttir kemur fram í dag á sumartónleik- arröð veitingahússins Jómfrúar- innar við Lækjargötu í dag. Með Helenu leika Sigurður Flosason á saxófón, Agnar Már Magnússon á orgel og Pétur Grétarsson á trommur. Helena flytur þekkt jazzlög og einhver hinna íslensku laga sem hún er þekkt fyrir. Með þessum tónleikum lýkur tónleika- röðinni Sumarjazz á Jómfrúnni árið 2002. SKEMMTANIR 23.00 Hljómsveitin Í svörtum fötum leikur í Sjallanum, Akureyri. 23.00 Stuðmenn verða í sveiflu í Fé- lagsheimilinu Seltjarnarnesi í kvöld. 23.00 Hljómsveitin Spútnik leikur á Players í Kópavogi í kvöld. 23.00 Á Sportkaffi verður Kidda „Big F“ treyst fyrir tónlistarstjórninni. 23.00 Land og Synir ætla að troða upp á Breiðinni á Akranesi í kvöld. 18 ára aldurstakmark. 23.00 Doddi litli verður í búrinu á Café 22 í kvöld og stendur fyrir stemm- ingu fram undir morgunn. OPNANIR 16.00 Harpa Rún Ólafsdóttir opnar sýningu í Gallerí Tukt, Hinu Hús- inu í dag. Harpa er nýnemi í Listaháskólanum og er þetta fyrs- ta einkasýning hennar. Verk henn- ar eru litrík og gáskafull og koma öllum í gott skap. Sýningin stend- ur til 15 september. 16.00 Í dag verða opnaðar tvær listsýn- ingar í Listasafni ASÍ, Freyjugötu 41. Í Ásmundarsal sýnir Guðrún Hrönn Ragnarsdóttir ljósmyndir og skúlptur úr MDF, gleri og líni. Í Gryfjunni sýnir Kristveig Hall- dórsdóttir myndlistarkona mynd- verk gerð úr rabbarbara, úr hon- um hefur hún búið til papyrus. Einnig sýnir hún ljósmyndir af börnum. Listasafn ASÍ er opið alla daga nema mánudaga frá kl. 14.00-18.00. Aðgangur er ókeypis. Sýningunum lýkur 22. september. MYNDLIST Berglind Björnsdóttir ljósmyndari sýnir í aðalsal Gallerís Skugga á Hverfisgötu. Sýningin nefnist Trufluð tilvera. Sýningin stendur til 8. september. Opnunartími Gallerí Skugga er kl. 13-17 alla daga nema mánudaga. Ókeypis aðgangur. Bandaríski listamaðurinn Holly Hughes heldur ljósmyndasýningu í kjallara Gall- erí Skugga, Hverfisgötu. Sýningin ber yf- irskriftina Choices. Á sýningunni eru ljós- myndir af samstarfsverkefnum Holly með bæjarbúum í íslenskum byggðar- lögum. Sýningin stendur til 8. septem- ber. Gallerí Skuggi er opið alla daga nema mánudaga kl. 13 -17 og er að- gangur ókeypis. Jón Sæmundur Auðarson sýnir í Gall- erí Hlemmi. Sýningin stendur til 15. september og er opin fimmtudaga til sunnudaga kl. 14-18. Rebekka Gunnarsdóttir sýnir í Sjó- minjasafni Íslands, Vesturgötu 8, Hafn- arfirði. Rebekka sýnir vatnslitamyndir og glerverk sem að mestu eru unnin á þessu ári. Aðal viðfangsefni myndanna er landslag, götumyndir og hús í Hafnar- firði. Sýningin stendur til 8. september og er opin alla daga frá kl. 13-17.. Afmælissýning Myndhöggvarafélag Ís- lands stendur yfir í Listasafni Reykja- víkur, Hafnarhúsi. Fjórtán myndhöggv- arar sýna. Sýningin er fjölbreytt og sýnir þá miklu breidd sem ríkir innan félags- ins sem fagnar 30 ára afmæli sínu. Sýn- ingin stendur til 6. október. Sýning á nýjum verkum hafnfirska mál- arans Jóns Thors Gíslasonar er í Hafn- arborg, menningar- og listastofnun Hafnarfjarðar Á sýningunni eru málverk, grafík, vatnslitamyndir og teikningar. Sýningin er opin alla daga nema þriðju- daga frá kl. 11 til 17 og lýkur 9. sept. Grafíski hönnuðurinn og myndlistarkon- an, Valgerður Einarsdóttir, sýnir verk sín á Kaffi Sólon. Sýningin stendur til 6. september. Arnfinnur Amazeen og Bryndís Erla Hjálmarsdóttir sýna í rými undir stigan- um í i8, Klapparstíg 33. Verkið sem þau sýna nefnist „Við erum í svo miklu jafn- vægi“ og er innsetning með ljósmynd og spegli. Sýningin stendur til 6. sept- ember. i8 er opið þriðjudaga til laugar- daga frá kl. 13.00-17.00 MIÐVIKUDAGURINN 31. ÁGÚST TÓNLIST Kórsöngur er mjög sér- stök upplifun fyrir þá sem taka þátt í honum af lífi og sál,“ segir Hörður Áskelsson, stjórnandi Mótettukórs Hallgrímskirkju. Kórinn heldur upp á tuttugu ára starfsafmæli sitt með veglegum tónleikum á morgun, sunnudag. „Félagslega er þetta líka mjög sérkennilegt fyrirbæri, hljóð- færi sem samanstendur af manneskjum,“ segir hann. Mótettukórinn hefur þótt með betri kórum landsins. Hörð- ur segist því geta leyft sér að vera kröfuharður þegar hann velur fólk í kórinn. „Þetta er auðvitað spurning um framboð og eftirspurn, nú er mikið af frambærilegu fólki og ég þarf að vísa mörgum góðum frá á hverju hausti.“ Mótettukórinn telur 50 manns og Hörður segir hlutfallið milli radda vera best með um 18 sóprana og tólf í öðr- um röddum.“ En getur kór bein- línis verið of góður? „Ég hef reyndar verið gagnrýndur fyrir of mikla fágun, en það er alltaf smekksatriði,“ segir hann. Og félagslífið? Hörður hlær og seg- ir Mótettukórinn ekki mikinn partýkór. „Einn vissi ég um sem var ráðlagt að fara ekki í Mótettukórinn, það væri ekki nógu mikið stuð. En auðvitað er félagslífið skemmtilegt, utan- landsferðir og allskyns uppá- komur.“ Hvað með aldurstak- mark á kórmeðlimi? „Þegar ég byrjaði þótt mér fólk um fertugt komið að fótum fram og bara búið að vera,“ svarar Hörður. „Nú þegar ég er sjálfur kominn yfir þessa „grensu“ sé ég hvað þetta er rangt.“ Dagskrá afmælistónleikanna er afar vönduð. „Meginverkið á efnisskránni eru Óttusöngvar á vori eftir Jón Nordal. Það er galdur í þessu verki sem hefur alltaf hrifið áheyrendur. Sigrún Hjálmtýsdóttir og Sverrir Guð- jónsson syngja með kórnum og undirleikarar eru Douglas A. Brotchie, Inga Rós Ingólfsdóttir, sellóleikari og Eggert Pálsson slagverksleikari. Önnur verk á tónleikunum eru Kvöldbænir Þorkels Sigurbjörnssonar, sem voru samdar fyrir Mótettukór- inn, og sálmarnir „Víst ertu, Jesú, kóngur klár“, „Dýrð, vald, virðing“ og „Svo stór synd engin er“. Texti allra þessara verka er eftir Hallgrím Pétursson. Ég get lofað áheyrendum yndislegri stund í Hallgrímskirkju á morg- un,“ segir stjórnandinn að lok- um. Tónleikarnir hefjast klukk- an 20 annað kvöld. edda@frettabladid.is Veglegir afmælistón- leikar Mótettukórsins Kórinn hefur starfað í tuttugu ár. Upplifun að syngja í kór, segir Hörður Áskelsson stjórnandi, og skemmtilegt félagslíf þótt kór- inn þyki reyndar ekki mikill partýkór. HÖRÐUR, DIDDÚ OG SVERRIR Hörður hefur stjórnað Mótettukórnum frá upphafi. Hann er ásamt kór og einsöngvurum að undirbúa tuttugu ára afmælishátíð kórsins. ARKITEKTÚR Óvenjuleg framsetning hversdagslegra byggingarefna og forma í nýju samhengi, mark- vissri notkun ljóss sem, andstætt dreifðri birtu, felur í sér allt lit- rófið og allan birtuskalann er grundvöllur að verkum arkitekt- anna Arno Lederer, Jórunnar Ragnarsdóttur og Mark Osei. Sýn- ing á ljósmyndum og líkönum eft- ir arkitektana hefur opnað í mið- rými Kjarvalsstaða. Einkennandi fyrir byggingar- list þessa arkitekta er að hún er þung og samanstendur af gegn- heilum múrsteinsveggjum, sí- valningum, kröftugum súlum, keilulaga loftræstingarrörum og öllum þeim formum sem brjóta upp lögmál flatarmálsfræðinnar. Þetta er byggingarlist sem þorir að hafa lágt til lofts og leyfir sér að móta dimm skot og afkima. Sýningin sem sett er upp á Kjarvalsstöðum hefur verið sett upp áður í Berlín og München. Byggingar á sýningunni eru eftir- farandi: Salem International Col- lege í Überlingen við Bodensee, Akademie í Stuttgart-Hohenheim, Grunnskóli í Ostfildern og Orku- stofnun EVS í Stuttgart. Sýningin stendur til 27. október.  Kjarvalsstaðir: Úti er ekki inni, inni er ekki úti GRUNNSKÓLI, OSTFILDERN - INNI Meginatriði í verkum Arno, Jórunnar og Marc er mótun innra rýmis sem gefur skjól og nálægð. Þau hafna gegnsæjum arki- tektúr sem lokar manneskjuna úti og gerir hana varnarlausa. Þess í stað leitast þau við að skapa hlýlegt andrúmsloft í bygg- ingum sem veitir manneskjunni öryggi. JAZZTÓNLEIKAR 31. ÁGÚST KL. 16:00 JAZZ TÓNLEIKAR Á VEGAMÓTUM OG Í TJALDINU LAUGARDAGINN 31. ÁGÚST KL. 16:00 KVARTETT KÁRA ÁRNASONAR: KÁRI ÁRNASON- TROMMUR ÓMAR GUÐJÓNSSON- GÍTAR ÓLAFUR JÓNSSON- TENÓR SAX GUNNAR HRAFNSSON- BASSI ÞEIR SPILA ÞEKKTA JAZZSTANDARDA Í ÚTSETNINGUM KVARTETTSINS LAUGARDAGURINN 31. ÁGÚST DJ NICK WARREN & ALFONSO X EXCLUSIVE-PARTY Í TJALDINU FRÁ KL. 21:00 - 24:00 Á frett.is er hægt að sækja Fréttablaðið í dag á pdf-formi. Þar er einnig hægt að nálgast eldri tölublöð Fréttablaðsins á frett.is. Þú getur sótt Fréttablaðið þitt á frett.is í útlöndum úti á landi í vinnu í útlöndum

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.