Tíminn - 17.03.1974, Blaðsíða 3

Tíminn - 17.03.1974, Blaðsíða 3
Sunnudagur 17. marz 1974. TÍMINN 3 Hafsteinn Austmann Magnús bæjarstjóri þakkar Godek viðskipta-og sendifulltriia gjöfina. Bak viö Godek standa Þorsteinn Baldursson og Páll Zóphóniasson bæjarverkfræöingur i Eyjum. í sæti ökumanns á vAinni er starfs- maöur frá áhaldahúsinu I Vestmannaeyjum. — Timamvnd: GE. PÓLVERJAR GEFA VESTMANNAEYINGUM STÓRA DRÁTTARVÉL CZELSAW GODEK, sendi- og viöskiptafulitrúi Pólverja hér- lendis, brá sér ð miövikudaginn til Vestmannaeyja, þar sem hann afhenti Magnúsi Magnússyni bæjarstjóra stóra dráttarvél, URSUS C-355 aö gjöf til Vest- mannaeyinga frá pólsku þjóöinni. Gisli Jónsson & Co h/f hafði gefið hús á dráttarvélina, ásamt öðru fleira, og var Þorsteinn Baldursson með i förinni. Magnús Magnússon, bæjar- stjóri sagði, er hann veitti gjöfinni viðtöku, að þessi dráttar- vél kæmi i góðar þarfir, og væri fyrsta verkefnið, sem biði hennar, uppgræðsla og sáning. MENNINGARVIKA í KÓPA VOGI HEFST UM HELGINA Dagana 17.-23. marz gengst Leikfélag Kópavogs fyrir vöku i Félagsheimilinu, i samvinnu við rekstrarstjórn þess. Tilgangurinn er að auka starfsemi Félags- heimilisins og gera bæjarlifið fjölbreytilegra. Dagskráin er við það miðuð, að sem flestir, bæði ungir og aldnir, geti fundið þar eitthvað sér til skemmtunar eða fróðleiks. Vakan hefst á sunnudag kl. 3 með fjölskyldudagskrá, en meðal efnis þar eru 15 fóstbræður, Skólahljómsveit Kópavogs, dans- sýning frá Dansskóla Heiðars Ástvaldssonar, gamanþættir og fleira. Um kvöldið sýna Leikfélag Selfoss og Leikfélag Hveragerðis, Skuggá-Svein Matthiasar Jochumssonar. Mánudagskvöldið er helgað æsku bæjarins og mun hún sjá um og flytja allt efni. A þriðjudag verður kynning á verk- um nokkurra rithöfunda og kvikmyndasýning. Meðal þeirra höfunda, er þarna lesa, eru Svava Jakobsdóttir og Jónas Guðmundsson, ennfremur mun Geirlaug Þorvaldsdóttir leikkona lesa ljóð. Miðvikudagurinn mun verða helgaður tónlistinni og mun Tón- listarskóli Kópavogs, Karlakór- inn Fóstbræður og 10 manna söngflokkur sjá um flutninginn. Á fimmtudagskvöld mun Leikfélagið flytja kafla úr Hrafn- hettu Guðmundar Danielssonar en höfundur verður sögumaður. A föstudagskvöldið verður þjóð- lagakvöld. Flytjendur verða nokkrir kunnustu listamenn landsins á þvi sviði, eins og Kristin ólafsdóttir, Hörður Torfason, Árni Johnsen, Kristin Lilliendahl og fleiri. Vökunni lýk- ur svo með almennu hófi á laugardagskvöld, en þar verða ýmis skemmtiatriði, og Kátir félagar” leika fyrir dansi. A meðan vakan stendur mun Lista- og menningarsjóður Kópa- vogs sýna grafik i neðri sal, en á annarri hæð verður sýnt úrval teikninga barna i skólum bæjar- ins. Þá mun Leikfélagið ásamt barnaskólum bæjarins sjá um skemmtun fyrir yngstu bæjarbú- ana 3 fyrstu daga vökunnar. fj| ÚTBOÐ Tilboö óskast I sölu á stórum vatnsmælum fyrir Vatns- veitu Reykjavikur. Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri. Tilboð verða opnuð á sama stað, fimmtudaginn 18. apríl 1974, kl. 11.00 f.h. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Fríkirkjuvegi 3 — Sími 25800 opnar sýningu að Kjarvalssföðum Gsal—Reykjavik. — Hafsteinn Austmann listmálari opnaði laugard. kl. 2, málverkasýningu aö Kjarvalsstööum á Miklatúni. Sýningin verður opin frá klukkan fjögur til tiu á virkum dögum, en frá tvö til tiu um helgar. A mánu- daginn verður lokaö. Syningin stendur til sunnudagskvöldsins 24. marz. Hafsteinn Austmann hefur haldið sex einkasýningar, þá fyrstu 1956 i gamla listamanna- skálunum, auk fjölda samsýninga hér heima og erlendis. M.a. hefur Hafsteinn tekið þátt i samsýning- um ungra myndlistarmanna i Moskvu, Danmörku, Róm og viðar. A sýningu þessari eru 49 myndir, sem málaðar eru siðustu fjögur árin. Þar af eru átta vatns- litamyndir, en þær eru sumar hverjar eldri. Hafsteinn er „abstrakt” listmálari, eins og ljósmyndirnar bera með sér. Hann sagði viö blaðamann Timans i gær: — Ég er orðinn gamaldags, — það eru allir farnir að mála landslag. En ég á töluvert mikið eftir óunnið i þessu, og á meðan svo er, snýst ég ekki. — Hvað er verðið á myndun- um? — Þarna kemur þú við viðkvæman punkt. Satt bezt að segja hef ég ekki enn ákveöið verðið, en ef að likum lætur, verður það eitthvað á milli 20 og 130 þúsund. Ilafsteinn Austmann hengir upp siöustu myndirnar. Timamyndir: Róbert. Sumarbústaður land eða litið býli, óskast til kaups. Get skipt á litilli ibúð i Reykjavik. Tilboð sendist Timanum, merkt Trúnaður 1694. Certina-DS: úrið, sem þolir sitt af hverju! Certina-DS, algjörlega áreiðanlegt úr, sem þolir gifurleg högg, hita og kulda, i mikilli hæð og á miklu dýpi, vatn, gufu, ryk. RTINA Ú Certina Kurth Fréres SA Grenchen/Switzerland Með DS (DS merkir "double security’’ tvöfallt öryggi) hefur Certina framleitt einstakt armbandsúr, úr sem eru i fullri notkun þegar önnur stöðvast. Úr fyrir þá, sem bjóóa hættunum byrginn, hafa ævintýrablóð i æðum, taka áhættur, sýna áræðni og hugrekki, þá sem eru kröfu- harðir við sjálfa sig. Hið sérstæöa DS byggingarlag. Certina-DS lætur sér ekki nægja venjulega höggdeyfa til verndar jafnvæginu. Certina hefur til við- bótar mjög teygjanlega fjöðrun, sem verndar allt verkið. Það má segja, að það fljóti innan i kassanum fyrir tilstilli sérstaks höggdeyfikerfis, sem' er utan um verkið. Þannig hefur Certina-DS fengió auknefnió sterkasta úr i heimi.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.